Víkurfréttir - 14.08.2003, Qupperneq 11
Varnarliðsmenn í Sierra
Lione söknuðu DUUS og
íssins úr Ný-Ung
að þótti tíðindum sæta á
dögunum þegar björg-
unarþyrlur Varnarliðs-
ins voru sendar í verkefni til
Afríku. Þar hafa þær verið að
undanförnu og Varnarliðs-
menn héðan fóru einnig með
vélunum þarna suðureftir.
Loftleiðir, systurfélag Iceland-
air, sinna sérverkefni á þessu
sióðum þar sem þeir fljúga frá
London til Afríkuríkisins Si-
erra Lione og sjá einnig um
flugfólk í þessar ferðir.
Flugfreyjur í ferð þangað nýlega
voru fjórar Keflavíkurkonur, tvær
systur, þær Jenný og Sólveig
Þorsteinsdætur (Arnasonar) og
ffænkumar Bergþóra Tómasdótt-
ir (Tómassonar) og Halldís Jóns-
dóttir (Jóhannssonar). Það þykir
okkur Suðurnesjamönnum
skemmtileg frétt en samkvæmt
heimildum okkar frá ferðinni
þótti þeim skondið að meðal
fyrstu gesta sem þær hittu á hót-
eli sem þær gistu á voru Vamar-
liðsmenn af Keflavíkurflugvelli.
Þeim þótti það skemmtileg til-
viljun að hitta fólk úr nágranna-
bænum þarna suðurfrá mörg
þúsund mílur í burtu. Höfðu
flugkappamir bandarísku á orði
að þeir söknuðu Keflavík mjög
mikið. Og hvað er það helsta
sem þeir söknuðu í hitanum: Jú,
það var maturinn á Duus og ísinn
á Ný-ung en þetta er jú báðir
þekktir staðir í bítla- og „vamar-
liðsbænum” og vinsælir mjög hjá
nágrönnum okkar á Vellinum...
Nýlega var sleppt í Sel-
^örn stórum urriða af
Isaldarstofni sem er sá
sami og er í Veiðivötnum á
Landmannaafrétti og Þing-
vallavatni. Var þessi fiskur mest
á bilinu 2-5 pund en nokkrir
ennþá stærri slægðust með til
að hrella veiðimenn enn frekar.
Eru menn sammála um að um
gífurlega skemmtilegan sport-
fisk er að ræða og eru tökum-
ar oft ofsafengnar og því aug-
ljóslega ánægðir veiðimenn
sem stunda vatnið um þessar
mundir.
Mikið íjör hefur því verið við
veiðar í Seltjöm síðustu vikur og
hafa fluguveiðimenn verið að
taka allt upp í 30 fiska yfir dag-
inn en mest öllum fiski er sleppt
aftur í vatnið þannig að ekki
gengur mikið á stofhinn þrátt fýr-
ir mikla veiði. Hefur gefist best
að nota ýmiss konar kúluhausa
og má þar nefna frumhnýtta
flugu íýrir Seltjömina sjálfa sem
kallast „Birgitta” eftir hinni
frægu og viðkunnalegu söng-
konu (brúnt skegg, silfurbúkur
og rauð fjöður í skott, hnýtt á
agnhaldslausa einkrækju nr. 14).
Er það von manna að veiðin
haldi áffarn að vera góð og munu
umsjónaraðilar vatnsins halda
áffarn að bæta í það vænum ur-
riða í sumar og næstu sumur
þannig veiðimenn geti ávallt átt
von á mikilli skemmtun og væn-
um urriðum í Seltjöm.
KEFLAVIKURVOLLUR
Föstiudaginn 15. ágúst: kl. 19
JVesprýði
I\lú mæta allir á völlinn!!!
A
ÍAV
SpJM
Sparlsjóðurlnn í Keflavík
rblaðið 20031 \ j Auglýsingasíminn er i ji AAAA
fimmtudaginn 4. september nk. L J 421OOOO
VÍKURFRÉTTIR I 33.TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGIJRINN14. ÁGÚST 2003 111