Víkurfréttir - 14.08.2003, Page 12
Gerðaskóli
Stuðningsfulltmi
óskast næsta skólaár í 65% starf til aðstoðar
við dreng á miðstigi. Karlmenn ekki síður
en konur eru hvattir til að sækja um.
Upplýsingar gefur skólastjóri
í síma 422 7020.
Hp SANDGERÐISBÆR
Helgi Bjarnason blaða-
maðuráMorgun-
blaðinu og Vilhelm
Guðmundsson hvíldu
lúin bein á bekk i
verðlaunagarðinum.
Snyrtilegir garðar í Garð-
inum verðlaunaðir
„Stórfenglegt sólarlag á Garðskaga”
- tré gróðursett og gangstéttar steyptar í Garðinum
Að undanfornu hefur verið gert stórátak í
fjölga svæðum í Garðinum þar sem gróð-
ursett eru tré. Setur þetta mjög skemmti-
legan svip á sveitarfélagið. Einnig er nú unnið að
því á fullu að steypa gangstéttir, segir á vef sveit-
arfélagsins.
Segja má að allt sé gert til að vinna að því að fegra
og snyrta byggðarlagið. „Ég vil hvetja fólk til að fá
sér bíltúr í Garðinn og skoða okkar ágæta sveitarfé-
lag”, segir Sigurður Jónsson sveitarstjóri jafhframt á
vefnum. „Margir hafa lagt leið sina til okkar til að
skoða hið stórfenglega sólarlag sem sést hefur vel í
veðurblíðunni að undanfomu. Sólarlagið við Garð-
skagavita er alveg stórkostlegt”.
Úrverðlaunagarðinum að
Garðbraut 86 - eigendurnir Björg og
Vilhelm við gosbrunninn góða.
Fegrunar- og umhverfis-
nefnd Gerðahrepps hef-
ur afhent verðlaun og
viðurkenningar fyrir snyrtilega
og fallega garða í sveitarfélag-
inu þctta árið. Að þessu sinni
voru þrír garðar verðlaunaðir.
Verðlaunagarðurinn 2003 er
að Garðbraut 86. Hann er
mjög fallegur og mikið gróinn,
skreyttur með gosbrunni.
Garðurinn fékk einnig viður-
kcnningu sem fallegasti garð-
urinn í Gerðahreppi árið 1984.
Eigendur hans eru hjónin Vil-
helm Guðmundsson og Björg
Björnsdóttir.
Lyngbraut 7 fékk viðurkenningu
fyrir snyrtilegan og fallegan garð.
Hann eiga hjónin Sæunn Andrés-
dóttir og Tryggvi Einarsson.
Götuhlið garðsins byggist upp á
steinum og grjóti, skreytt með
brunni og trépöllum. Fram-
kvæmdir við garðinn standa enn
yfir og hann á eftir að þróast enn
ffekar segja garðeigendumir.
Eyjaholt 5 fékk viðurkenningu
fyrir sérstæðan og listrænan garð.
Eigendur hans em hjónin Bryn-
dís Rögnvaldsdóttir og Unnar
Guðmundsson. Lítil listaverk í
garðinum, rnáluð á grjót, vekja
athygli.
Fegrunar- og umhverfisnefnd
Gerðahrepps vill koma á fram-
færi þökkum til allra þeirra
Garðbúa sem sýnt hafa gott for-
dæmi með því að fegra umhverfi
sitt. Margir garðar lofa góðu í
dag, auk allra þeirra sem fengið
hafa viðurkenningar og verðlaun
á liðnum árum. Atak í gróður-
setningu tijáa og blóma á vegum
sveitarfélagsins virkar einnig
hvetjandi og gefur byggðarlaginu
fallegan svip, svo eftir er tekið,
segir í stuttu erindi frá nefndinni.
Nemendur mæti sem hér segir:
Miðvikudaginn 20. ágúst
8. til 10. bekkur kl. 9.
Fimmtudaginn 21. ágúst
1. til 7. bekkur kl. 10.
Skólastjóri.
12
VlKURFRÉTTIR Á NETINIU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!