Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.08.2003, Síða 14

Víkurfréttir - 14.08.2003, Síða 14
Fyrstogfremst: Reynismenn unnu auðveldan 8-1 skyldusigur á Afríku á Sandgerðis- velli í síðasta heimaleik sínum í riðla- keppni 3. deildar. Heimamenn, sem eru öryggir í úrslitakeppni deildar- innar, áttu aldrei ívandræðum með gestina. Mörk Reynis skoruðu Haf- steinn Friðriksson (2), Sverrir Hákon- arson (2), Smári Guðmundsson, Bjarki Dagsson, Hafsteinn Heigason og Gísli Þór Þórarinsson. Reynirá eft- ir að fara til Hveragerðis og spila við Hamar, en laugardaginn 23. ágúst byrja átökin í úrslitakeppninni þegar annað hvort Fjarðabyggð eða Höttur koma í heimsókn á Sandgerðisvöll- inn. Víðir sigraði Sindra 2-0 á heimavelli um helgina í 2. deild karla í knatt- spyrnu. Rafn Markús Vilbergsson og Ragnar Steinarsson skoruðu mörk Víðis. Víðir er í 6. sæti deildarinnar með 20 stig og munu ekki eiga möguleika á að komast upp um deild. Islenska kvennalandsliðið í körfuknattleik skipað stúlkum fædd- um '85 og síðar gerði sér lítið fyrir og sigraði á Promotion-Cup mótinu sem haldið var í Hafnarfirði dagana 5. - 9. ágúst. Þrjár stúlkur úr Grinda- vík voru í liðinu; þær Ólöf Helga Páls- dóttir, Petrúnella Skúladóttir og Erna Rún Magnúsdóttirogein úrNjarð- vík; Sigurlaug Guðmundsdóttir. Grindvík- ingar lágu í Eyjum Grindvíkingar töpuðu fyrir ÍBV, 1-0, á útivelli í 13. umferð Lands- bankadeildar karla í knatt- spyrnu. Lcikurinn var frekar bragðdaufur, bæði lið léku var- færnislega þó gestirnir væru hættulegri framan af. Markið kom á 83. mínútu en það var Steingrímur Jóhannesson sem skoraði það. Það má segja að hann hafi siökkt í vonarneista Grindvíkinga um að verða meistarar því sjö stig eru í efstu tvö liðin, Fylki og KR þegar fimm umferðir eru eftir. Grindvíkingar eru í 4. æsti deild- arinnar með 19 stig, jafn mörg stig og ÍBV sem er í 3. sæti. Þess má geta að aðeins tvö stig skilja að liðið í 3. sæti og liðið í 8. sæti. í dag leika Grindvíkingar gegn Helga Kolviðssyni og félögum í Kárnten, en leikurinn fer fram í Klagenfurt í Austurriki og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma. Leikurinn er sýndur í beinni út- sendingu á erlendum sjónvarps- stöðvum, en samkvæmt heimild- um Víkurfrétta er leikurinn sýnd- ur á Ölveri í Glæsibæ og eflaust víðar. Stórsigur hjá Keflavík Keflvíkingar tóku Aftureldingu í karphúsið á útivelli i 1. deild karla i knattspyrnu í kvöld. Keflvíkingar komu ákveðnir til leiks og réðu gangi Ieiksins frá upphafi. Það tók liðið aðeins um korter að ná 3-0 forystu og eftir það var aðeins spurning hve stór sigurinn yrði. Þórarinn Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Keflavík og Magnús Þorsteinsson og Haraldur Guðmundsson sitt markið hvor. Með sigrinum náðu þeir fjögurra stiga forskoti á ný á toppi deildarinnar með 30 stig en Víkingur er í 2. sæti með 26 stig. Keflvíkingar sem leikið hafa mjög vel í sumar stefna beint upp í úrvalsdeild að nýju en einungis fimm leikir eru eftir af tímabilinu. Magnús Þorsteinsson, hinn skæði sóknarmaður Keflvíkinga, hefur leikið vel í vetur, skorað 9 mörk ásamt því að leggja upp fjöldann allan af mörkum fyrir félaga sína. Hann sagðist í samtali við Víkur- fréttir vera ánægður með sína frammistöðu í sumar. „Við Tóti höfum spilað vel saman í framlínunni og það væri ekki leiðinlegt ef annar hvor okkar tæki markakóngstitilinn". Magnúsi líst vel á lokabarátt- una í deildinni enda segir hann liðið tilbúið í átökin. „Við ætlum okkur sigur í næstu tveimur leikjum og þá ættum við að vera nokkuð góðir. Við tökum auð- vitað bara einn leik fyrir í einu en ég held nú að við eigum ekki eftir að tapa mörgum stigum. Það er mikill kraftur í liðinu á æfingum og stemningin inn- an liðsins er góð sem hjálpar mikið“. En er úrvalsdeildarsætið ekki öruggt? „Nei, ég myndi ekki segja það. Við þurfum bara rétt að misstíga okkur til að Víkingur og Þór komi í rassgatið á okkur. Við ætlum hins vegar ekki að láta það gerast. Ég held að Víkingur fylgi okkur upp. Það væri þó ekki leiðinlegt að skemma það fyrir þeim á heimavelli okkar í lokaumferðinni. Það yrði tvöföld hamingjal. NJARÐVÍKURTAP í A/IARKASÚPULEIK Njarðvík tapaði fyrir Þór, 4 - 5, á Njarðvíkurvelli sl. laugardag. Leikurinn var hin mesta skemmtun fyrir áhorfendur sem fengu marka- súpu af bestu gerð. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki þær bestu, loðinn og blautur völlur, en það kom ekki í veg fyrir að mörkin litu dags- ins Ijós. Þórsarar náðu forystu um miðjan fyrri hálfleikinn en einungis mín- útu síðar jöfnuðu heimamenn með marki frá Eyþóri Guðna- syni. Þegar flautað var til hálf- leiks höfðu Þórsarar komist yfir og þannig stóðu leikar í hléi. Gestimir komust í 4-1 á 20 mín- útna kafla í síðari hálfleik og þá virtist fátt geta komið i veg fyrir sigur Þórs. Hins vegar gáfust Njarðvíkingar ekki upp og á tveggja mínútna kafla minnkuðu þeir muninn í 4-3 með mörkum frá Guðna Erlendssyni og Bjama Sæmundssyni. Það tók Þórsara þó aðeins fáeinar mínútur að skora aftur, nú beint úr aukaspymu og tveggja marka sigur blasti við þeim. Njarðvík- ingar voru þó ekki hættir og minnkuðu muninn enn einu sinni þegar um tvær mínútur vom eftir en þar við sat og fjörugum leik að hætti Njarðvíkinga lokið. Njarðvík er sem stendur 1 6. sæti deildarinnar með 15 stig, ljómm stigum frá fallsæti. Sverrir Þór Sverrisson, leik- maður Njarðvíkinga, hefur leikið vel í sumar þrátt fyrir að hafa byijað seint og hefur hann oftar en ekki verið mjög skapandi fram á við. Sverrir sagði í samtali við Víkurfréttir að sér litist vel á lokabaráttuna sem framundan væri í deildinni. „Þetta mun koma til með að verða erfitt. Við ætlum að tryggja sæti okkar í deildinni og verður allt lagt í söl- umar. Takmarkið fyrir mót var að halda liðinu uppi og það er ekk- ert breytt. Ef svo verður verða allir ánægðir", segir Sverrir. Hann sagðist vonast eftir því að þetta yrði ekki barátta fram á síð- ustu stundu. „Ég vona að við náum í stig í næstu tveimur leikj- um og tryggjum sætið í deildinni. Þetta gæti þó orðið barátta fram á síðustu mínútu. Lokaleikur okkar er gegn Aftureldingu sem er í 9. sæti og það verður erfiður leikur ef við verðum ekki búnir að tryg- gja vem okkar í deildinni". Að- spurður hvort hann ætlaði sér ekki að vera með í körfunni í vet- ur svaraði Sverrir því játandi. „Um leið og fótboltinn er búinn byija ég í körfunni“. Jetskikappsigling á ✓ hugahópur um Jetski í Reykjanesbæ mun verða með jetski kappsiglingu á ljósanótt fyrir neðan nýju uppfyllinguna við Hafnargöt- una. Keppnin fer fram á laug- ardeginum og hefst hún kl. 13.30. Sex keppendur innan áhugahópsins munu keppa í þessari kappsiglingu þar sem einungis heiðurinn er að veði. Jetskiin sem keppt verður á eru engin smá smíði, 160 hest- öfl og komast i alit að 110 km. hraða á klukkustund. Sigurður Gunnarsson, einn af stofnendum áhugahóps um Jetski, sagði í samtali við Víkur- fréttir að keppnin yrði í mótor- krossstíl. „Við munum affnarka braut með baujum. Allir kepp- endur „reisa" á sama tíma og verða famir 3x10 hringir þar sem tekin er pása milli hverrar lotu. Sá sem sigrar í flestum lotum er sigurvegari". Fólki mun gefast kostur á að skoða skíðin en þau verða til sýn- is að lokinni keppni. Strákamir í áhugahópnum munu Ljósanótt einnig bjóða almenningi upp á ferðir á gúmmíbanana sem dreg- inn er á eftir jetski. Slíkar ferðir tíðkast á sólarströndum og eru oftar en ekki mjög vinsælar. Ferðimar á banananum byrja að hádegi á laugardeginum og stan- da yfir allan daginn. „Fólk getur farið smá rúnt með okkur á ban- ana því að kostnaðarlausu. Sex farþegar komast í hveija ferð og munum við vera með galla og annan aðbúnað fyrir fólk“, segir Sigurður. 14 VfKURFRÉTTIRA NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.