Víkurfréttir - 14.08.2003, Qupperneq 19
BETRIBÆR
- stofnfundur á mánudaginn
Umræða um Reykjanes-
bæ, hefur farið vaxandi
síðustu misseri, og fleiri
og fleiri eru að uppgötva hvað
við í raun búum í skemmtileg-
um bæ. Uppgangurinn má
segja að hafi byrjað þegar
Ljósanótt kom okkur á kortið,
og gerði Reykjanesbæ að
spennandi stað til að heim-
sækja fyrir brottflutta Suður-
nesjamenn, og alla forvitna ís-
lendinga, og ekki síst okkur
bæjarbúa. Ljósanótt hefur
stækkað og dafnað ár frá ári,
og stefnir í að verða enn glæsi-
legri í ár en á síðasta ári.
Einnig er bærinn að festa sig í
sessi sem mesti jólabær á land-
inu. Vitað er um marga sem
koma sér ferð frá höfuðborga-
svæðinu og víðar, einungis til
að skoða skreytingarnar hér í
Reykjanesbæ. Fólk kemst ekki
í rétt jólaskap fyrr en það er
búið að skoða öll ljósin í bæn-
um og þá sérstaklega hjá Grét-
ari (J)Ola
Ný liðinn lifandi laugardagur
sýndi okkur að fólk tekur því
fagnandi þegar einhveijar uppá-
komur eru í bænum. Því er það
okkur sem erum að þjónusta
bæjarbúa hvatning til enn frekari
verka.
Næstkomandi mánudag verða
stofnuð samtök fyrirtækja og
áhugasamra um betri bæ.
Markmið samtakana er að vinna
að sameiginlegum hagsmunum
fýrirtækja í bænum, standa fýrir
lifandi laugardögum reglulega,
vera í samstarfi við bæjaryfir-
völd, félagssamtök og alla þá
sem áhuga hafa á að gera góðan
bæ betri. Hugmyndir eru um td.
gjafakort til nota í Reykjanesbæ,
sem hægt yrði að nota í verslun-
um, matsölustöðum, eða gisti-
stöðum. Þemadaga í tengslum
við lifandi laugardaga, (bíladag-
ur, götumarkaður, skóladagur,
íþróttadagur). Þetta er einungis
brot af þeim hugmyndum sem
komið hafa fram, og viljum við
hvetja áhugasama að senda okk-
ur hugmyndir á netfangið okkar
lifandi_laugardagur@hot-
mail.com
Stofhfundur þessa samtaka á að
fara ffam mánudaginn 18. ágúst
á Ránni kl 20:00. Og viljum við í
undirbúningsnefnd hvetja alla
sem áhuga hafa á að efla bæinn
okkar að mæta.
Rúnar Ingi Hannah
túngata 1 / 230 keflavik +354 555 7575 Staður 1 simi i
DACODA +354 555 7516 540102-4060 www.dacoda.ia dacoda@dacoda.ia lax kennitala HH vefsiða 1 nctlang H
CONMAN 2.0
VEFUMSJÓNARKERFI
Bláa lóniö
Flugstöö Leifs Eiríkssonar
Keflavíkurverktakar
Kjöreign
SBK
Sparisjóðurinn í Keflavík
Víkurfréttir
ConMan vefumsjónarkerfið -
...þú verður ekki svikinn
ESBÆR
Tjarnargötu 12 • Póstfang230 • S:421 6700 • Fax:421 4667 • rcykjancsbaer@reykjanesbaer.is
GRUNNSKÓLAR REYKJANESBÆJAR
SKÓLINN ER AÐ BYRJA
- VELKOMIN TIL STARFA
Upphaf skólastarfs 2003 - 2004
í grunnskólum bæjarins verður eins og hér segir:
Heiðarskóli, sími 420 4500
Kennarafundur föstudaginn 15. ágúst kl. 9. Nemendur
eiga aö koma í skólann föstudaginn 22. ágúst sem hér
segir:
Kl. 9 8. bekkur, 9. bekkur, 10. bekkur.
Kl. 10 5. bekkur, 6. bekkur, 7. bekkur.
Kl. 11 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur.
Kl. 13 1. bekkur
Holtaskóli, sími 421 1135
Kennarafundur mánudaginn 18. ágúst kl. 9. Nemendur
eiga aö koma í skólann föstudaginn 22. ágúst sem hér
segir:
Kl. 9 8. bekkur, 9. bekkur, 10. bekkur.
Kl. 10 5. bekkur, 6. bekkur, 7. bekkur.
Kl. 11 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur.
Kl. 13 1. bekkur
Myllubakkaskóli, sími 420 1450
Kennarafundur mánudaginn 18. ágúst kl. 9. Nemendur
eiga að koma í skólann föstudaginn 22. ágúst sem hér
segir:
Kl. 9 8. bekkur, 9. bekkur, 10. bekkur.
Kl. 10 5. bekkur, 6. bekkur, 7. bekkur.
Kl. 11 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur.
Kl. 13 1. bekkur
Njarðvíkurskóli, sími 420 3000
Starfsmannafundur mánudaginn 18. ágúst kl. 9.
Nemendur eiga að koma í skólann föstudaginn 22. ágúst
sem hér segir:
Kl. 8.30 9. bekkur, 10. bekkur.
Kl. 9.30 7. bekkur, 8. bekkur.
Kl. 10.30 4. bekkur, 5. bekkur, 6. bekkur.
Kl. 11.30 2. bekkur, 3. bekkur.
Kl. 13 Lbekkur.
Forráðamenn eru hvattir til að koma með börnum sínum
til skólasetningar. Gert er ráð fyrir að frístundaskóli fyrir
1.- 4. bekk taki til starfa 15. september en upplýsingar
um skólagæslu fram að þeim tíma eru veittar á
skrifstofum skólanna.
Fræðslustjóri
• • • reykj anesbaer.is
VlKURFRÉTTIR I 33. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN14. ÁGÚST 2003 I 19