Morgunblaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
30.06.2016
FERÐALÖG
30|06|16
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Blaðamenn
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Sigurður Sigurðarson
sigurdur.sigurdarson@simnet.is
Líney Sigurðardóttir lineysig@simnet.is
Auglýsingar
Auglýsingadeild Morgunblaðsins
augl@mbl.is
Forsíðumynd
Sigurður Sigurðarson
Prentun
Landsprent ehf.
Heiðmörkin er bakland
borgarinnar og býður upp á
marga útivistarmöguleika.
4
Langanesið er áhugaverður
staður að sækja heim.
18
Andstæðurnar mætast í
náttúrunni í Hattaveri.
8
Drangaskörðin búa yfir dul-
úð úr fjarskanum séð.
20
D
yrfjöll sjást víða að og vegna skarðsins
sem nefnt er Dyr vekja þau athygli um
nær allt Fljótsdalshérað. Fjöllin eru há
og afar svipmikil, Dyrfjallstindur er
1.137 m hæð. Sjálfar Dyrnar eru í 856 m hæð.
Að öllum líkindum hefur skriðjökull brotið
fjallið og myndað skarðið fyrir árþúsundum.
Brotin úr fjallinu féllu þá ofan á jökulinn og
smám saman bar hann þau fram. Síðar hörfaði
hann, bráðnaði og hvarf, og urðu þau þá eftir og
þannig var Stórurð til. Raunar er Stórurðardal-
ur mjög reglulega lagaður, mótaður af sama
skriðjöklinum.
Margar gönguleiðir eru á Dyrfjöll. Hægt er
að ganga á ytri fjöllin, það er Dyrfjallatind, Súl-
ur. Það síðarnefnda er afar tilkomumikið en
gengið er þá frá Borgarfirði eystri. Frá réttinni
sunnan við Bakkagerði eru um fimm kílómetrar
upp á Dyrfjallatind, um fjögurra tíma gangur.
Leiðin er nokkuð erfið en fagurt útsýni er af
tindinum.
Stórurð vekur flestum áhuga enda stór-
fenglegur staður. Um sex kílómetra góð göngu-
leið er frá þjóðveginum í Vatnsskarði og í
Stórurð. Bílastæði er nálægt vatninu í skarðinu
og nokkuð greinileg slóð upp og með fjallinu
fyrir ofan, Geldingafelli, um Geldingaskörð og
suður með Súlum.
Þegar komið er fyrir Súlur er útsýnið til Dyr-
fjalla bókstaflega stórbrotið. Þarna blasa við
Dyrnar og fyrir neðan er Stórurð. Yfirleitt er
mikill snjór í fjöllunum og einnig á gönguleið-
inni. Skaflinn niður hlíðar dalsins og að urðinni
getur verið brattur og jafnvel erfiður niður á
við, sérstaklega ef kalt er í veðri.
Magnað er að koma í Stórurð í góðu veðri og
björtu. Raunar er það svo að göngumaðurinn er
nær agndofa yfir náttúrunni sem er við það að
hvolfast yfir hann. Fegurðin er mikil og hann
veltir fyrir sér þeim ógnarátök sem urðu hér
forðum daga er jökullinn tókst á við fjallið og
bar björgin úr því meira en einn kílómetra niður
eftir dalnum og skildi þau þar eftir.
Borgarfjörður eystri er síðan stórmerkilegur
staður sökum fegurðar fjölda líparítfjalla. Þar
er einnig mikil ferðaþjónusta. Leiðsögumenn
eru nokkrir og fáanlegir til að fara með göngu-
hópa í Stórurð, á Súlur eða Dyrfjallatind og víð-
ar. Tilvalið er að nýta sér þaulkunnuga heima-
menn í svona ferðum. Hér er vakin athygli á
vefsíðunni borgarfjordureystri.is en þar má fá
margvíslegar upplýsingar og fróðleik um Dyr-
fjöll sem og gönguferðir um Víknaslóðir. Þar að
auki er boðið upp á dagsettar ferðir á staði sem
göngumenn sækjast eftir að sjá. Nefna má Dyr-
fjöll, Stórurð og Víknaslóðir.
Mjög gott tjaldsvæði er á Bakkagerði, gisti-
hús og matsölustaðir.
sigurdur.sigurdarson@simnet.is
Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson
Á brattann Margar gönguleiðir eru á Dyrfjöll og eru þær margar tilkomumiklar. Hér er göngufólk með Dyrnar í baksýn.
Svipmikil fjöll og stórbrotið útsýni
Mikil náttúrufegurð er við Dyr-
fjöll og Stórurð. Tilvalið er að
nýta sér þaulkunnuga heima-
menn til leiðsagnar í ferðum.
Gönguleið Dyrfjöll og Stórurð
Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson
Bakhliðin Norðan við Dyrfjöll.
Íslenska sumarið er ævintýri líkast og þá er gaman að vera
á ferðalagi. Við höfum líka öll gott af því að komast að
minnsta kosti annað veifið í nýtt umhverfi, enda er það gott
fyrir sálina. Og þá er líka alveg gráupplagt að nota sólríka
dagana til að kanna nýjar slóðir og njóta lífsins. Og nú er
einmitt ein mesta ferðahelgi ársins að ganga í garð og alveg
tilvalið að bregða undir sig betri fætinum og fara á flakk.
Í þessu blaði segir meðal annars frá fjölmörgum áhuga-
verðum gönguleiðum víða um landið. Að arka upp um fjöll
og firnindi er íþróttir við flestra hæfi. Fyrirhöfnin er raunar
sama og engin. Ekki þarf annað en binda á sig góða skó,
fara í flíspeysu og leggja á brattann. Þegar komið er á
hæsta hjalla má svo segja að sigur sé unninn; hæfileg
áreynsla er góð fyrir líkamann og fyrir sálina
er sælt að sigra tindinn. Hugurinn hreinsast
og verkefni sem virtust torfæra verða
auðleyst.
Víða er stungið niður staf í
þessu blaði – og segja má að land-
ið allt sé undir.
Góða ferð!
Sigurður Bogi Sævarsson
Kanna nýjar slóðir
og njóta lífsins