Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
U
mhverfi Hattvers er stór-
fenglegt land sem í marg-
breytileika sínum getur verið
bæði bjóðandi og storkandi.
Litafegurðin er afar mikil og allt í senn
svo fíngert og aðlaðandi að undrum
sætir en um leið afar mikilfenglegt.
Jafnframt er það víða svo gróft og illi-
legt að göngumönnum hreinlega
bregður.
Ég hef nokkrum sinnum komið á
þessar slóðir og oftast farið fyrir
litlum hópum sem aldrei hafa litið
staðinn augum nema á ljósmyndum.
Viðbrögð fólks eru alltaf eins: Taum-
laus hrifning sem vex eftir því sem
ferðin dregst á langinn og það gerir
hún jafnan því það er svo margt sem
glepur. Og minningin og myndirnar
…
Fjölmargir gangvegir liggja í Hatt-
ver. Hér er einum lýst. Lagt er upp
frá Landmannalaugum og er göngu-
leiðin um það bil átta kílómetra löng.
Fyrir flest göngufólk tekur gangan
vart meira en þrjár klukkustundir,
aðra leiðina.
Gengið er í suðaustur frá Land-
mannalaugum, sunnan við Reykja-
koll, fyrir mynni Brandsgils og þar
upp á lítinn fjallshrygg. Stikurnar eru
ekki þéttar og því betra að hafa aug-
un hjá sér. Hálfkúlulaga fjall sem
nefnist Skalli er mikilvægt kennileiti
á göngunni. Það rís nokkuð hátt yfir
umhverfið og sést víða að. Þarna skil-
ur leiðir, sú stikaða er í vestur en við
förum niður í Hattver.
Af Skalla er víðsýnt yfir Hattver,
innsta hluta Jökulgils og til Torfajök-
uls. Þarna blasir við einstaklega
heillandi landslag, sérstaklega þegar
sól skín í heiði. Þá er eins og landið sé
allt úr gulli.
Gengið er niður fallegan, marglitan
fjallsrana sem er örmjór, brattar hlíð-
ar til beggja handa. Hann er nefndur
Uppgönguhryggur og smálækkar
eftir því sem lengra dregur og loks er
gengið af honum ekki langt frá sjálf-
um Hatti. Þegar þarna er komið sögu
er ágætt að leita að góðum stað til að
matast og hann finnst fljótt.
Hattver er eiginlega ekkert annað
en lítill gróðurblettur undir svörtum
Hatti. Þarna í innsta hluta Jökulgils
er afar fagurt og um margar leiðir að
velja. Héðan er gengið í Stóra-
Hamragil. Nokkurt torleiði er þangað
því Jökulgilskvísl tálmar för og því
verður að klöngrast upp brattar líp-
arítbrekkur nálægt Hatti. Þaðan er
stutt í gilið sem þrengist eftir því sem
innar dregur. Stórt bjarg stendur
þrástöðu við lækinn innarlega í gilinu
og þar skammt fyrir innan er brött en
fær gönguleið upp eftir hlíðinni.
Uppi er komið að „Gullfjallinu“
sem sumir nefna svo. Líparítbjarg
sem endurvarpar sólargeislunum rétt
eins og af gulli. Norðvestan við það er
brött leið upp á fjallsöxlina. Þar er
aftur komið inn á stikaða gönguleið
enda ekki langt í Skalla og ekki langt
inn á gönguleiðina milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur.
Gera má ráð fyrir að þegar komið
er aftur í Landmannalaugar hafi ró-
leg og þægileg gangan tekið um það
bil tíu klukkustundir og um tuttugu
km eru að baki. sigurdur.sig-
urdarson@simnet.is
Gönguleið Hattver
Ljós og skuggar – Fíngert og gróft
Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson
Andstæður „Litafegurðin er afar mikil og allt í senn svo fíngert og aðlaðandi að undrum sætir en um leið afar mikilfenglegt.“
Hattver eru í nágrenni
Landmannalauga. Þar
eru miklar andstæður í
litum og umhverfi.
Gönguleiðir Margir gangvegir liggja í Hattver fyrir göngufúsa ferðalanga.
Litadýrð „Hattver er lítið annað en lítill gróðurblettur undir svörtum Hatti.“
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
25ÁRA
1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst
LOFTNET FYRIR FERÐABÍLA,
HJÓLHÝSI OG FELLIHÝSI