Morgunblaðið - 30.06.2016, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016
M
óskarðshnúkar eru litfagrir,
af þeim glampar eins og
gulli enda er aðalbergteg-
undin hið bjarta líparít.
Fyrir neðan bæinn Hrafnhóla sem er
við Leirvogsá liggur vegur inn að litlu
sumarhúsahverfi. Vegurinn er ekki góð-
ur en með lagni fær fólksbílum. Hann
liggur að Skarðsá og þar er best að
leggja þó að þarna sé ekki almennilegt
bílastæði.
Móskarðshnúkur heitir austasti og
hæsti hnúkurinn. Hann er 807 metra
hár. Vestan við hann heitir Móskarð en
ekki eru allir sammála því og telja að
Móskarð sé frekar nafn á Svínaskarði
en það er á milli hnúkanna og Skála-
fells. Þar um var forðum þjóðvegur
þeirra sem fóru vestur og norður á
land.
Frá ánni er gengið upp gróðursælar
lyngbrekkur. Þarna hefur markast
greinilegur göngustígur, sem er miður
því hann grefst smám saman niður.
Stígurinn er hægra megin við hnúkinn
gráa sem raunar heitir Gráhnúkur.
Fyrir neðan Móskarð er djúpt gil,
sem göngumaðurinn verður ekki var við
fyrr en hann er næstum kominn að því.
Fyrir ofan Gráhnúk er greinilegur
göngustígur upp í skarðið og er best að
fylgja honum. Þar er góð leið upp á
Móskarðshnúk.
Uppi er tiltölulega lítið pláss og það
sem mest kemur á óvart er að tind-
urinn er tvöfaldur. Hinn samvaxni sí-
amstvíburi er aðeins lægri og nyrðri. Í
norður gengur svo fjallið Trana, fjall
sem fæstir vita af nema kannski Kjós-
verjar og göngumenn á Móskarðs-
hnúka.
Áfram er haldið og nú aftur niður í
Móskarð. Vanalega er sama leið farin
niður en ekki í skriðurnar eins og svo
margir gera og þar hefur því miður
myndast stígur sem er lýti á fjallinu.
Haldið er svo upp á næsta tind sem
er nokkuð frábrugðinn Móskarðshnúk,
bæði lægri og klettóttari. Tilsýndar eru
þessir tveir tindar hæstir og tignarleg-
astir. Skörðin þar fyrir vestan eru
grynnri og ekki eins erfið yfirferðar.
Sjálfsagt er að ganga að Lauf-
skörðum enda er þar afar fallegt og
stórkostlegt útsýni yfir norðurhlið
Móskarðshnúka.
Sumir halda áfram og ganga um hina
heillandi leið út á Esju, fyrir Þverárdal
og á Hátind. Þaðan er gengið niður á
Þverárkotsháls. Þessi leið, merkt með
blárri punktalínu á kortinu, er afar til-
komumikil og tekur um þrjá til fjóra
tíma að fara hana. Þar af leiðandi er
brýnt að hafa vatn og nesti meðferðis.
sigurdur.sigurdarson@simnet.is
Gönguleiðir – Móskarðshnúkar
Fjallganga í nágrenni borgarinnar
Stórkostlegt útsýni er
yfir norðurhlið
Móskarðshnúka.
Móskar!shnúkur
Móskar!
Gráhnúkur
Laufskör!
"verárdalur
Þverá alur
Laufs rð
Gráh kur
Mós rð
Móskarð núkur
N
ú um mitt sumar ætti að vera
orðið fært fyrir ökumenn í
Holuhraun. Staðurinn er
undraveröld á einum af-
skekktasta stað landsins, náttúra sem
eldsumbrot sem stóðu frá í ágúst
2014 fram í mars á síðasta ári sköp-
uðu. Til skamms tíma hefur þarna
mátt finna hita í hrauninu og stutt er
niður á glóð. Rætur þessara hamfara
voru í Bárðarbungu á Vatnajökli sem
enn skelfur svo ýmislegt gæti gert á
þessum slóðum í framtíðinni.
Landverðir Vatnajökulsþjóðgarðs
hafa aðsetur við Drekagil í Dyngju-
fjöllum og sinna þaðan landvörslu.
Frá hringveginum, Hrossaborg við
Grímsstaðabrúna á Jökulsá á Fjöll-
um, eru 115 kílómetrar í Dreka og
þaðan svo 15 kílómetra leið að Holu-
hrauni. Til skamms tíma hefur vatn
runnið undan brún hraunsins og þar
var í fyrrasumar- og er hugsanlega
enn – hægt að baða sig í snarpheitu
vatni og láta ferðaþreytu líða úr
kroppnum.
Mikilvirk eldstöð í Dyngjufjöllum
Á leiðinni frá hringveginum til suðurs
inn á hálendið eru margir áhugaverð-
ir staðir. Náttúrufegurð í Herðu-
breiðarlindum er einstök, þar sem
tærar lindir spretta fram og í baksýn
er drottning íslenskra fjalla, sjálf
Herðubreið. Nokkru sunnar eru
Dyngjufjöll, hin mikilvirka eldstöð
þar sem Askja er í miðdepillinn. Mik-
ið eldgos í Öskju árið 1875 og öskufall
því samfara skertu skilyrði til bú-
skapar á Norður- og Austurlandi
mikið og átti það stóran þátt í því að
þúsundir Íslendinga héldu vestur um
haf og settust þar að, flestir í Kanada.
Þá gaus í svonefndum Vikraborgum
við Öskju árið 1961. Ágætur vegur er
frá Drekagili að Vikraborgum – það-
an sem er gönguleið að gígnum Víti
og sjálfu Öskjuvatni. sbs@mbl.is
Undraveröld á öræfum
Herðubreiðarlindir, Askja og Holuhraun eru áhuga-
verðir staðir, en langt frá mannabyggðum.
Holuhraun Það er eins gott að horfa niður fyrir sig þegar gengið er um nýrunnið Holuhraunið.
Útivist Askja sogar til sín ferðafólk.
Herðubreiðarlindir Staðurinn er undraveröld á einum afskekktasta stað landsins.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðamannastraumur Fullar rútur af fólki sem flykkist upp á hálendið.