Morgunblaðið - 30.06.2016, Page 21
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 21
Njóttu sumarsins
það gerist ekki betra
með úrvals vörum - heitar og
kaldar sósur með öllum mat.
Í
bígerð er að reisa nýja þjónustu-
miðstöð á Þingvöllum í stað þeirrar
sem nú er á svonefndum Leirum. Þetta
er í samhengi við áætlanir Vegagerð-
arinnar að leggja nýjan veg af gjárbarmi
nokkru ofar þar sem kæmi ný tenging inn
á Uxahryggjaleið. Á nýjum krossgötum
yrði því ný miðstöð fyrir gesti og gang-
andi. Þetta kom fram í máli Sigrúnar
Magnúsdóttur, umhverfisráðherra og for-
manns Þingvallanefndar, sem fór fyrir
fræðslugöngu þar eystra síðastliðið
fimmtudagkvöld.
Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við
byggingu nýs gestaskála á Hakinu, það er
við suðurenda Almannagjár. Stefnt er að
opnun stofunnar á næsta ári, þar sem verð-
ur fræðsluaðstaða og stafræn sýning um
helstu megindrætti í náttúru og sögu Þing-
valla. Einnig er ráðgert að reisa veitinga-
hús á Hakinu og leggja þaðan gönguleiðir
með tengingu við Hestagjá og svonefndan
Valhallarreit. „Ég er ekki í vafa,“ segir
Sigrún „að þetta yrði skemmtilegur göngu-
hringur um söguríkar gjár og grundir“.
Sigrún Magnúsdóttir greindi einnig frá
hugmyndum um hús þings og þjóðar á
Völlunum, sem hún kallar svo. „Þetta hús
yrði stoð þegar stórar útihátíðir eru haldn-
ar á Þingvöllum eins og 2030 og ef til vill
þegar árið 2018, þegar 100 ár eru liðin frá
því Íslendingar fengu heimastjórn. Húsið
mætti vera þannig að unnt væri að setja
Alþingi þar á haustin. Svona hús og útisvið
er alveg nauðsynlegt fyrir árið 2030, en þá
eru 1.200 ár frá stofnun Alþingis,“ segir
formaður Þingvallanefndar. sbs@mbl.is
Þjónustumiðstöð á Þingvöllum verði á nýjum stað
Ýmsar framkvæmdir eru í bí-
gerð og undirbúningi á helgi-
stað þjóðarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölmenni Ferðamenn á Þingvöllum á leið niður Almannagjá, en þar er oft margt um manninn.
Það er örstutt af Suðurstrandarvegi
fyrir austan Grindavík að Krýsuvíkur-
bergi. Þetta er einn fárra staða við
suðurströndina þar sem er reglulegt
og formsterkt bjarg – og hér kraum-
ar lífið. Að gera sér erindi á þessar
slóðir er vel þess virði, og leiðin er
fær öllum á vel útbúnum bílum.
Krísuvíkurberg er reglulegt og form-
fagurt, um 7 km langt. Á nokkrum
stöðum ganga hér fram klettar og
nibbur. Mikið fuglalíf er í bjarginu,
þar sem eru rita, langvía, álka, stutt-
nefja og fýll sem sveimar við vegg-
inn.
Krýsuvíkurberg er í Reykjanesfólk-
vangi sem nær yfir sunnanverðan
Reykjanesskaga. Þetta svæði er um
300 ferkílómetrar og er það stærsta
sinnar gerðar á Íslandi. Landið þarna
þykir, segir á vefnum visitreykjavik-
.is, kjörið til útivistar en meðal
áhugaverðra staða þar eru Krýsuvík,
Seltún, Kleifarvatn, Grænavatn,
Krýsuvíkurberg, Búrfell og Búr-
fellsgjá, Stóra-Eldborg og Brenni-
steinsfjöll.
Bergið við
suðurströnd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litir Krýsuvík er vinsæll staður.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vinsæl Margir heimsækja Krýsuvík.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fuglaparadís Krýsuvíkurberg er eitt
stærsta fuglabjarg landsins.