Morgunblaðið - 14.07.2016, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2016
Í
safjarðarbær er alþjóðlegt sam-
félag. Þar búa hundruð fólks af
erlendum uppruna sem gert
hefur Ísland að nýju heima-
landi sínu þar sem ræturnar
liggja á Ísafirði. Þessir nýbúar eru í
lykilhlutverki í atvinnulífinu vestra
og leggja mörgu lið. Þeirra á meðal
er Isabel Alejandra Diaz sem út-
skrifaðist með stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Ísafirði 28. maí
síðastliðinn með hæstu einkunn
allra nemenda í íslensku, ensku,
spænsku og portúgölsku. Eins og
svo margir útlendingar sem flust
hafa til Íslands bar Isabel hingað á
öldum örlaganna og hún kom til Ís-
lands fjögurra ára gömul frá El
Salvador. Hér býr Isabel með
ömmu sinni og afa, er fyrir löngu
orðin góður Íslendingur og rík-
isborgararétt fékk hún árið 2014.
Góður námsárangur Isabel var í
frásagnir færður á mbl.is nú í vor –
en sjálf segist Isabel vera betur
mælt á íslensku en spænsku sem þó
er móðurmál hennar. Þessu tvennu
blandar hún þó vel saman í sum-
arstarfi sínu hjá Vesturferðum hvar
hún meðal annars tekur á móti far-
þegum sem koma með skemmti-
ferðaskipum til Ísafjarðar. Skipa-
fólkið fer þá gjarnan í rútuferðir um
nærliggjandi svæði og sé spænsku-
mælandi fólk þess á meðal segir
Isabel því frá því sem fyrir augu
ber. Í þessum ferðum er svo gjarn-
an staldrað við í Súðavíkurkirkju
eða Hólskirkju í Bolungarvík – þar
sem Isabel syngur fyrir gesti. Er
hún þá í íslenskum upphlut, þjóð-
búningi sem hún saumaði sjálf síð-
astliðinn vetur.
Óskaplega skemmtilegt
„Mér finnst söngurinn óskaplega
skemmtilegur,“ segir Isabel. Í 20
mínútna stoppi gestanna í kirkju
syngur Isabel yfirleitt þrjú íslensk
þjóðlög; það er Maístjörnuna, Sofðu
unga ástin mín og Ísland er land
þitt. „Það eru oft 40-50 manns í
hverjum hóp sem ég syng fyrir.
Mér finnst fólkinu líka þetta vel; að
koma í íslenska kirkju hér á fjörð-
unum og heyra þjóðlegan sönginn.
Þetta er skemmtilegt innlegg úr
menningu þjóðarinnar,“ segir söng-
konan ísfirska Isabel Alejandra Di-
az. Hún er yfirleitt ein í kirkju-
söngnum en stundum með vinkonu
sinni; Kristínu Hörpu Jónsdóttur.
Saman mynda þær og Hólmfríður
María Bjarnardóttir sönghóp HIK
sem kemur fram við ýmis tækifæri.
sbs@mbl.is
Dúxinn syngur í kirkjunum
Ísland er land þitt og
Isabel syngur. Tekur á
móti farþegum af
skemmtiskipum. Er í
upphlut sem hún saum-
aði sjálf í vetur.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Líflegt Yfir sumartímann er oft mikill fjöldi ferðamanna á Ísafirði. Það fólk er af ýmsu þjóðerni sem vill njóta áhugaverðra menningar og þess sem almennt einkennir svæðið og samfélagið.
Menning Ísafjarðarbær er alþjóðlegur. Isabel Alejandra Diaz má teljast góður fulltrúi fjölmargra á svæðinu.
Æ
tla má að góð hafnarskilyrði hafi
ráðið mestu um að Ísafjörður
varð verslunarstaður – sem aft-
ur leiddi til þess að sótt var um
kaupstaðarréttindi eins og gekk
eftir. Þannig er Pollurinn í Skutulsfirði einhver
besta höfn landsins frá náttúrunnar hendi. Var
henni þannig lýst árið 1780 að hún gæti rúmað
allan flota konungs og væri með réttu talin ein
hin fegursta og tryggasta sumarhöfn á öllu
landinu. Aðrir þættir voru síðan hagstæðir
þegar þilskipaútgerð og saltfiskvinnsla hófst
að ráði um og fyrir miðbik 19. aldar. Landrými
var nægilegt til að allnokkrar verslanir gætu
starfað og á sléttri malareyrinni voru ákjós-
anleg skilyrði til fiskbreiðslu og þurrkunar. Á
Ísafirði stunduðu viðskipti menn af ýmsum
þjóðernum þar til danska einokunarverslunin
var lögfest árið 1602, þó sú verslun hafi líklega
ekki verið stórfelld. Eftir það stunduðu ein-
göngu danskir kaupmenn verslun og siglingar
til staðarins. Frá þeim tíma eru fjögur elstu
hús bæjarins, sem enn standa í Neðsta-
kaupstað, byggð árið 1734-1790, segja má að
þar sé nú elsta verslunarhverfi landsins.
Áræði og framtakssemi
Þegar útgerð og frjálsri verslun óx fiskur um
hrygg á síðari hluta 19. aldar ríkti samfellt
vaxtarskeið á Ísafirði fram til fyrri heimstyrj-
aldar. Vafalaust átti Ásgeir Ásgeirsson í Ás-
geirsverslun mikinn þátt í þessum vexti, með
áræði og framtakssemi. Þá hefur það einnig
haft mikil áhrif að íbúar á Tanganum, eins og
neðri hluti eyrarinnar var kallaður, fengu að
kjósa sér bæjarstjórn árið 1866 og ráða þannig
nokkru um eigin framfaramál. Þann 16. júlí
1866 var þannig í fyrsta skipti gengið til kosn-
inga um bæjarstjórn í Ísafjarðarbæ og reynd-
ar á Vestfjörðum yfirhöfuð. sbs@mbl.is
Íbúarnir fengu að ráða eigin framfaramálum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Byggingar Húsin í Neðstakaupstað, byggð 1734 til 1790, mynda elsta verslunarhverfi landsins.
Pollurinn á Ísafirði er góð
höfn frá náttúrunnar hendi.
Ákjósanleg skilyrði.