Morgunblaðið - 06.08.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vilt þú létta á líkamanum
eftir verslunarmannahelgina!
Morgunblaðið/Golli
Leiðsögumaðurinn Steinn Ármann Magnússon hefur verið meira og minna hjólandi allan ársins hring í mörg ár.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Steinn Ármann Magnússon,leikari, skemmtikraftur oguppistandari, hefur verið áhjólum kringum túrista all-
ar götur frá því hann lauk námi í
Leiðsöguskólanum fyrir hartnær
sex árum. „Konan eiginlega rak
mig út í þetta, það var eitthvað lítið
að gera í leiklistinni,“ segir hann.
Fjallahjólaferðir út um hvippinn og
hvappinn sem og styttri hjólreiða-
túrar um borgina þar sem hann er
leiðsögumaður hafa síðan nánast
verið daglegt brauð auk þess sem
hann fer allra sinna ferða hjólandi.
Þegar hann er ekki í hlutverki
leiðsögumannsins talsetur hann
barnaefni og tekur annað slagið að
sér ýmis hlutverk í leikhúsum,
sjónvarpi og kvikmyndum. Á
sunnudaginn er honum þó ekki til
annarrar setu boðið en hjólasetu
frekar en aðra daga vikunnar.
Hjólaleiðsögn um Viðey stendur
fyrir dyrum upp úr hádeginu á
morgun. „Fólk bara mætir með
hjólin sín í ferjuna við Skarfabakka.
Eftir að lagt er að bryggjunni í
Viðey verður haldið sem leið liggur
í eins og hálfs tíma hjólareiðatúr,“
upplýsir Steinn Ármann, sem telur
líklegt að hópurinn samanstandi
mestmegnis af fróðleiksfúsum Ís-
lendingum á öllum aldri. Sjálfur
hefur hann vitaskuld stúderað sögu
þessarar merkilegu eyju og hyggst
miðla úr viskubrunni sínum á leið-
inni. „Nei, ekki á meðan við hjól-
um,“ svarar hann fremur hugs-
unarlausri spurningu.
Talar meira en hjólar
„Við stoppum á völdum stöð-
um. Ég tala náttúrlega meira en
hjóla og hópurinn hlustar þar af
leiðandi meira en hjólar. Viðey er
ekkert sérstaklega vel til hjólreiða
fallin, en ég er búinn að skipu-
leggja leiðina og sneiði hjá grýttum
jarðvegi og mýrum. Hjólaleiðin er
hvorki löng né strembin og ætti að
henta vel bæði hjólagörpum og öll-
um sem hafa gaman af að hjóla.“
Sjónum verður ekki sér-
staklega beint að náttúrufegurð
eyjunnar heldur ætlar Steinn Ár-
mann að hverfa með hópinn á vit
fortíðar. „Stórmerkilegt hvað marg-
ir bjuggu þarna á sínum tíma og
lifðu af landsins gæðum. Trúlega
nefni ég munkana til sögunnar,
Skúla fógeta og stikla á stóru um
alls konar tilraunir sem þarna voru
gerðar, til dæmis með ræktun tób-
aks og kúmens, og sitthvað fleira.“
Leiðsögumaðurinn Steinn Ár-
mann hefur marga fjöruna sopið.
Þegar Kajakafélag Reykjavíkur
bað hann um leiðsögn um Viðey í
fyrrasumar fylgdi með í kaupunum
að róa þangað á kajak. „Ég fékk að
vísu smá leiðsögn um hvernig ég
ætti að bera mig að ef bátnum
hvolfdi, en var satt að segja með
lífið í lúkunum allan tímann,“ við-
urkennir hann.
Hausinn eins og landakort
Kajakróður heillar Stein Ár-
mann ekkert tiltakanlega, en hann
telur þó ekki loku fyrir það skotið
að taka aftur í árarnar. Hjólreiðar
eru meira í hans anda, þótt ekki
séu þær með öllu hættulausar. „Ég
hef verið keyrður þrisvar sinnum
niður á götum með tiltölulega lág-
um hámarkshraða, en varð ekki
meint af. Fékk reyndar gat á haus-
inn í eitt skiptið eins og oft þegar
ég var yngri. Þegar ég er snögg-
klipptur segir konan mín að haus-
inn á mér sé eins og landakort af
Evrópu.“
Eru öll þessi göt af völdum
hjólreiðaslysa?
„Ekkert endilega, bara af öll-
um fjandanum, aðallega frá því ég
var strákur að leika mér í hrauninu
í Hafnarfirði. Á þeim tíma hjólaði
ég reyndar heilmikið, þótt ég fengi
ekki hjólreiðadellu fyrr en um 1990
þegar við Helga Braga vorum að
gera þættina Ungmennafélagið með
Valgeiri Guðjónssyni. Þessar týpur
sem við lékum voru mikið á fjalla-
hjólum og fóru vítt og breitt um
landið. Í framhaldinu fengum við
góðan díl hjá Erninum og keyptum
okkur öll fjallahjól, ábyggilega ein
þau fyrstu sem komu til landsins.“
Þessu fyrsta fjallahjóli var
stolið nokkru síðar og Steinn Ár-
mann fjárfesti ekki í almennilegu
hjóli fyrr en um aldamótin þegar
synir hans voru orðnir nógu gamlir
til að hjóla. „Síðan hef ég meira og
minna verið hjólandi hvernig sem
viðrar allan ársins hring. Lágmark
30 kílómetra á dag því ég hjóla á
hverjum degi frá Hafnarfirði til
Reykjavíkur og til baka. Hvor leið-
in tekur aðeins 45 mínútur.“
Mikil heilsubót væntanlega?
„Það stórsér á mér. Ég var
100 kíló áður en ég fór að hjóla að
staðaldri, en er núna 77 kíló.“
Upp um fjöll og firnindi
En kannski þarf að hjóla meira
en leiðina Hafnarfjörður – Reykja-
vík – Hafnarfjörður til að ná af sér
23 kílóum. Að minnsta kosti er
Steinn Ármann stöðugt á hjólaferð-
inni með erlenda túrista um borg-
Fróðleikur á hjólum
Steinn Ármann Magn-
ússon leikari segir að
stórsjái á sér síðan hann
fór að fara allra sinna
ferða hjólandi og þar fyr-
ir utan í hjólreiðaferðir
um borgina og upp um
fjöll og firnindi með er-
lenda túrista. Mæli-
kvarðinn er 23 kíló. Á
morgun hverfur hann á
vit fortíðar með hóp fólks
í hjólaleiðsögn um Viðey.
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags
Reykjavíkur fer fram í Árbæjarsafni
kl. 14 á morgun, sunnudaginn 7.
ágúst, í Árbæjarsafni. Mótið er
löngu orðið fastur viðburður í skák-
dagatalinu og hefur alltaf þótt við
hæfi að halda það í því sögulega
umhverfi sem Árbæjarsafn er.
Tefldar verða sjö umferðir með
umhugsunartímanum sjö mínútum
á skák og lýkur mótinu kl. 15. Öllum
er frjálst að skrá sig til leiks en
verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú
sætin. Verðlaunin eru 15.000 kr.,
10.000 kr. og 5.000 kr. Þátttöku-
gjald, sem jafnframt er aðgangs-
eyrir í safnið, er 1.500 kr. fyrir 18
ára og eldri, en ókeypis er fyrir
yngri en 18 ára. Þeir sem fá ókeypis
aðgang í safnið, til dæmis eldri
borgarar og öryrkjar borga ekkert
þátttökugjald.
Fleira verður á dagskrá í Árbæj-
arsafni á sunnudaginn því Spilavin-
ir koma í heimsókn kl. 13-15 og þá
gefst krökkum á öllum aldri að
spreyta sig á fjölbreyttum og
skemmtilegum borðspilum.
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur
Teflt í sögulegu umhverfi og öll-
um frjálst að skrá sig til leiks
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kostagripur Það hefur löngum þótt eign í góðu tafli, þetta hér er úr eigu Sam-
úels Jóhannssonar prentara og er varðveitt í Árbæjarsafni.
Viðey var öldum saman ein
besta bújörð landsins og heimili
mennta- og áhrifamanna í ís-
lensku samfélagi. Eyjan skiptist
í Heimaey og Vesturey sem
tengjast með Eiðinu. Á austur-
hluta Heimaeyjar eru rústir
þorps frá tímum Milljónafélags-
ins þegar útgerð og mannlíf
stóð þar í blóma. Á Heimaey
standa einnig ein elstu hús
landsins, Viðeyjarkirkja og Við-
eyjarstofa.
Viðey er um 1,7 ferkílómetrar
að stærð. Meðfram ströndinni
sjást stórbrotnar bergmyndanir.
Æðarfugl er algengasti fuglinn,
en aðrar algengar fuglategundir
eru fýll, grágæs, hrossagaukur,
sendlingur og tjaldur.
Sagan drýpur
af hverju strái
VIÐEY
Morgunblaðið/Ómar
Rústir sem minna á liðna tíma.