Morgunblaðið - 06.08.2016, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016
Húsið er 60 m2 að grunnfleti kjallari, hæð og ris. Birt flatarmál
109 m2. Húsið stendur á 409 m2 leigulóð í eigu Fjallabyggðar.
Upplýsingar í síma 897 6963.
Eyrargata 31, Siglufirði
er til sölu
TIL LEIGU
VANDAÐAR ÍBÚÐIR Í SKIPHOLTI 11-13
í
MEÐ EÐA ÁN
HÚSGAGNA
FRÁ OG MEÐ 15. ÁGÚST
Rúmgóðar 2ja herbergja íbúðir með
suðursvölum á góðum stað í miðborginni
LEIGA Á MÁNUÐI: ÁN HÚSGAGNA KR. 240.000MEÐ HÚSGÖGNUM KR. 340.000
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar:
www.leigufelagid.is
SÍMI: 571 6403- leigufelagid@leigufelagid.is
Það þarf engan sérfræð-
ing í gatnagerðarmálum
til að sjá hve gatnagerð
og viðgerðum á götum
höfuðborgarsvæðisins
virðist vera ábótavant.
Það eru ekki bara búta-
saumsviðgerðir sem
hafa „trosnað á saum-
unum“, sem stinga í
augun, heldur virðist
nýleg vinna vera hroð-
virknislega gerð og jafn-
vel ónýt.
Á meðfylgjandi mynd
má sjá hvernig komið er
fyrir malbiki á götu í
Kópavogi. Þarna hefur
væntanlega verið mal-
bikað ofan á „lifandi“
undirlag, því komnar
eru sýnilegar vatnsrásir
í malbikið auk þess sem
það hefur risið og sigið á
köflum.
Væri ekki skynsam-
legra að taka fyrir minni
svæði í einu og vinna
þau þá svo vel að þau
dugi í nokkur ár, heldur
en drífa af stór svæði
sem verða hálfónýt jafn-
vel á fyrsta ári?
Vegfarandi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hroðvirknisleg gatnagerð
Boðlegt? Þarna hlykkjast hálfgerður skurður að
brunnum í malbikinu.
Það má með sanni
segja að vatnaskil
hafi orðið í fram-
lögum til afreks-
íþrótta á Íslandi með
undirritun tímamóta-
samnings mennta- og
menningarmálaráðu-
neytis og Íþrótta- og
ólympíusambands Ís-
lands í síðustu viku.
Með þessum nýja
samningi fjórfaldast
framlag ríkissjóðs til Afrekssjóðs
á árunum 2017-2019. Grunnur
samningsins byggist á mikilli og
sameiginlegri faglegri vinnu og út-
tekt sem aðilar létu gera á um-
fangi afreksstarfs á Íslandi auk
samanburðar við norræn íþrótta-
samtök. Þetta eru í raun stór-
íþróttapólitísk tíðindi og við-
urkenning til
íþróttahreyfingarinnar fyrir afar
öflugt samfélagslegt starf. Eins og
alþjóð veit og hefur fylgst með á
undanförnum árum hafa íþrótta-
konur og íþróttamenn þjóðarinnar
svo sannarlega verið góð land-
kynning með afrekum sínum og
framkomu. Hér heima er íþrótta-
starfið hornsteinn félagslegra
samskipta í hverju byggðarlagi.
Íþróttir er vettvangur leiks og lífs,
síung uppspretta hverrar kyn-
slóðar, sem stendur traustum fót-
um í bæjarlífinu. Íþrótta- og ung-
mennafélögin hafa gríðarlega
samfélagslega þýðingu. Þau skapa
afreksfólkið sem verður fyr-
irmyndir og drifkraftur ungra
barna og unglinga.
Sérsamböndin taka
svo við hinum bestu
og standa fyrir þátt-
töku í erlendum
keppnum. Við erum í
raun að tala um nýtt
umhverfi sér-
sambandanna og af-
reksfólks í ein-
staklings- sem
hópíþróttum. Á und-
anförnum árum hefur
KSÍ verið eina sér-
samband ÍSÍ sem hef-
ur verið sjálfbært í
rekstri sínum og hefur getað hald-
ið úti öflugu afreksstarfi allra
landsliða. Og uppskorið sam-
kvæmt því. Nú skapast tækifæri
fyrir önnur sérsambönd sem er af-
ar ánægjulegt. Við þessar miklu
breytingar verður ÍSÍ að fara í
gagngert endurmat á reglum og
úthlutunum Afrekssjóðs ÍSÍ.
Vandi fylgir vegsemd hverri.
Sérstök ástæða er til að þakka
Illuga Gunnarssyni mennta-
málaráðherra fyrir framsýni,
skilning og kjark í þessu stóra
hagsmunamáli íþróttahreyfingar
og þjóðarinnar allrar. Hann fékk
góðan bakstuðning frá Bjarna
Benediktssyni fjármálaráðherra
og Sigurði Inga Jóhannessyni for-
sætisráðherra. Ég er jafnframt
fullviss um að þessi samningur
fær góðan stuðning í öllum flokk-
um enda um mikið hagsmunamál
að ræða. Að lokum er rétt að óska
forseta ÍSÍ, Lárusi Blöndal og
hans fólki, til hamingju með þetta
risaskref í sögu íþróttahreyfing-
arinnar. Lárus hefur barist ein-
arðlega fyrir þessu máli og upp-
sker vel.
Takk Illugi – takk ríkisstjórn
Eftir Stefán Snæ
Konráðsson » Við erum í raun að
tala um nýtt um-
hverfi sérsambandanna
og afreksfólks í ein-
staklings- sem hóp-
íþróttum.
Stefán Snær
Konráðsson
Höfundur er formaður Íþrótta-
nefndar ríkisins og situr í Afrekssjóði
ÍSÍ.
Tilgangurinn helg-
ar meðalið í skrifum
Ólafs Arnarsonar þar
sem hann beinir
spjótum sínum að
Vinnslustöðinni hf. og
veður elg í dylgjum,
hálfsannleik eða
hreinum ósannindum.
„Er ekki mál að
linni?“ spyr hann í
fyrirsögn Morg-
unblaðsgreinar 30.
júlí 2016. Því skal eindregið svarað
játandi.
Látum nú vera að greinarhöf-
undur fari rangt með ártalið þegar
Vinnslustöðin (VSV) og Meitillinn í
Þorlákshöfn sameinuðust. Það
gerðist 1996 en ekki 1991. Sér-
kennilegri og alvarlegri er sú
„sagnfræði“ sem birtist í eftirfar-
andi klausu:
„Ekki leið á löngu þar til Vest-
mannaeyingum fannst ófært að
kvóti þeirra væri unninn í Þorláks-
höfn og lyktir þeirra mála urðu að
Frostfiskur keypti fiskvinnslu
Meitilsins. Eftir aldamót var
skráning skipa Meitilsins flutt til
Eyja og þau auðkennd VE. Kvóti
Meitilsins er þar með kominn til
Eyja.“
Hér er óhjákvæmilegt að gera
athugasemdir, enda of léttvægt að
tala um missagnir. Nær væri að
segja að hlutunum sé snúið á
hvolf.
1. Rekstur Meitilsins var að
mestu óbreyttur árin eftir samein-
inguna. Bolfiskvinnsla var þannig
rekin áfram, í Þorlákshöfn og í
Vestmannaeyjum.
2. Þegar kom fram á árið 1999
blasti við gríðarlegur rekstr-
arvandi VSV með Íslandsmeti í
rekstrartapi það árið.
Félagið stefndi í gjald-
þrot með tilheyrandi
afleiðingum fyrir
byggðarlögin bæði tvö.
3. Uppstokkun allr-
ar starfsemi VSV var
nauðsynleg en afar
sársaukafull. Rekstr-
areiningum var fækk-
að og fjölda fólks sagt
upp störfum, þar á
meðal öllum starfs-
mönnum í Þorláks-
höfn. Bolfiskvinnsla í
Eyjum var lögð af.
4. Í apríl 1999 voru starfsmenn á
launaskrá VSV 320 talsins en 150
manns mættu til starfa hjá félag-
inu þá um haustið.
5. Markvisst var reynt að finna
frystihúsinu í Þorlákshöfn verkefni
og það tókst með því að Vinnslu-
stöðin lagði Frostfiski hf. til 40%
aukningu hlutafjár með öllum
eignum VSV í Þorlákshöfn, tog-
bátnum Danska-Pétri og 500
þorskígildistonna kvóta. Frost-
fiskur var þá með fiskvinnslu í
Reykjavík en skilyrði fyrir hluta-
fjáraukningunni var að fyrirtækið
flytti starfsemi sína til Þorláks-
hafnar. Það gekk eftir.
6. Gunnar Sturluson, þáverandi
og núverandi stjórnarformaður
Frostfisks, tjáði sig um málið í við-
tali við Morgunblaðið 3. september
1999 og sagði meðal annars „að
með þessum aðgerðum styrkist
staða félagsins verulega. Enn
fremur breytist vinnslumynstur fé-
lagsins talsvert. Í stað þess að
kaupa fisk á fiskmarkaði verði lögð
áhersla á að vinna afla Danska-
Péturs, sem og afla sem keyptur
verði af útgerðarmönnum á grund-
velli fastra löndunarsamninga.
„Við erum að setja okkur niður í
nánd við ein gjöfulustu fiskimið á
Íslandi. Það er vandfundin betri
staðsetning en á hafnarbakkanum í
Þorlákshöfn. Þarna fáum við tæki-
færi til að stækka okkar fyrirtæki.“
7. Frostfiskur óx og dafnaði eftir
flutning til Þorlákshafnar og hluta-
fjáraukningu með stuðningi VSV.
Síðar ákvað Frostfiskur að selja
Danska-Pétur frá Þorlákshöfn með
aflaheimildum og árið 2005 leystu
aðaleigendur Frostfisks til sín 40%
eignarhlut VSV í félaginu. Þar með
lauk afskiptum VSV af starfsemi í
Þorlákshöfn
8. Í Eyjum var viðvarandi at-
vinnuleysi, með því mesta á land-
inu á árunum 2000 til 2004, og til-
heyrandi fólksfækkun vegna
brottflutnings allt fram að hruni.
Áhrifa fjöldauppsagna í VSV gætti
verulega á þessum árum og bruni
frystihúss Ísfélagsins hafði sitt að
segja líka til að gera slæmt at-
vinnuástand enn verra.
Hver er sinnar gæfu smiður.
Okkur tókst sem betur fer að koma
Vinnslustöðinni á réttan kjöl. Fyr-
irtækið, sem stefndi í gjaldþrot
1999, rétti sig smám saman af með
markvissum aðgerðum og er komið
í flokk stöndugustu fyrirtækja
landsins á síðustu árum, að mati
Creditinfo. Staðreyndir tala sínu
máli. „Sagnfræði“ Ólafs Arn-
arsonar er ekki heppilegur vegvísir
þeirra sem vilja hafa það er sann-
ara reynist.
Já, mál er að linni
Eftir Sigurgeir B.
Kristgeirsson
» Staðreyndir tala sínu
máli. „Sagnfræði“
Ólafs Arnarsonar er
ekki heppilegur vegvísir
þeirra sem vilja hafa
það er sannara reynist.
Sigurgeir B.
Kristgeirsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf.
Atvinnublað alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN
Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is