Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 1
M Á N U D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 1 6
Stofnað 1913 183. tölublað 104. árgangur
SUMIR METNIR
OF MIKILS EN
AÐRIR OF LÍTILS
LYFTIR 110 KÍLÓUM Á
MEÐGÖNGUNNI
FYRSTA ÍSLENSKA
FIMLEIKAKONAN Á
ÓLYMPÍULEIKUM
STUNDAR CROSSFIT AF KAPPI 12 ÁHALDAFIMLEIKAR ÍÞRÓTTIRBANDARÍKJAFORSETAR 26
Morgunblaðið/Ófeigur
Hinsegin dagar Einyrningurinn vakti
mikla athygli í gleðigöngunni um helgina.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar
Hjálmtýsson greiddi úr eigin vasa
allan kostnað við einhyrninginn
sem stal senunni í gleðigöngu Hins-
egin daga um helgina. Hann telur
að kostnaðurinn verði um tvær
milljónir króna þegar upp er staðið.
Páll Óskar segir að fyrir löngu hafi
sú stefna verið mörkuð að þiggja
ekki styrki frá auglýsendum í göng-
unni, enda sé þá allur pólitískur
broddur farinn úr henni. Einhyrn-
ingurinn verður rifinn og ekki not-
aður aftur. Næstu daga verður
hann til sýnis fyrir aftan Héðins-
húsið í Reykjavík og er fólki frjálst
að mæta og taka myndir af sér við
hann. »6
Páll Óskar greiddi
sjálfur kostnaðinn
við einhyrninginn
Hvað er GAMMA?
» GAMMA Capital Manage-
ment Limited er í eigu sömu
hluthafa og GAMMA Capital
Management hf. á Íslandi.
» GAMMA er með yfir 90 millj-
arða króna í stýringu.
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Breska fjármálaeftirlitið veitti
GAMMA Capital Management
Limited sjálfstætt starfsleyfi til að
veita fjármálaþjónustu í Bretlandi
síðastliðinn föstudag.
„Með þessu skrefi verður
GAMMA í enn betri stöðu en áður til
að veita viðskiptavinum sínum öfluga
þjónustu á alþjóðlegum vettvangi,
meðal annars þegar kemur að er-
lendum verkefnum, fjárfestingum,
fjármögnun og greiningavinnu,“
segir Gísli Hauksson, forstjóri fyr-
irtækisins. Með leyfinu verður
GAMMA fyrsta íslenska fjármála-
fyrirtækið sem hefur starfsemi í
London með leyfi breskra yfirvalda
eftir hrunið 2008. Áður hafði
GAMMA sinnt starfsemi í London í
rúmt ár á grundvelli íslensks starfs-
leyfis, en GAMMA varð á síðasta ári
fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið til
þess að hefja starfsemi í London í
kjölfar tilkynningar um fyrirhugað
afnám hafta.
Einnig rekur GAMMA fjárfest-
ingarsjóðinn Total Return Fund,
sem hefur heimildir til að fjárfesta
erlendis. „Þær heimildir verða nýtt-
ar þegar gjaldeyrishöftum verður af-
létt,“ segir Gísli.
Fjármálaútrás hafin á ný
Bretar veita fjármálafyrirtækinu GAMMA sjálfstætt starfsleyfi í London
Fyrsta íslenska fyrirtækið síðan fyrir hrun sem fær breskt starfsleyfi
MGAMMA veitt starfsleyfi … »2
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðamenn Í landkönnun á áhuga-
verðum slóðum við Sólheimajökul.
„Til framtíðar litið er ögrandi verk-
efni að koma fólki í jöklaferðir,“ seg-
ir Benedikt Bragason hjá ferðaþjón-
ustunni Arcanum. Hann býður
meðal annars upp á göngur á Sól-
heimajökul í Mýrdal þar sem pyttir
og svelgir eru orðnir áberandi,
vegna bráðnunar. Nærri láti að jök-
ullinn hafi á tuttugu árum hopað um
einn kílómetra.
Fulltrúar lögreglu á Suðurlandi
munu í vikunni funda með ferðaþjón-
ustufólki í Mýrdal vegna slysahættu
á fjölsóttum stöðum þar í sveit.
Vánni vill lögreglan bregðast við
með bættum merkingum og fræðslu
og segir Víðir Reynisson lögreglu-
fulltrúi að viðleitni í þá átt hafi
nokkrum árangri skilað. Einnig
hendi að mál leysist hreinlega af
sjálfu sér, að minnsta kosti um
stundarsakir. Þannig er slysahætta í
Reynisfjöru ekki söm nú og var til
dæmis síðasta vetur þegar alda hreif
með sér erlendan ferðamann sem
var í fjörunni. Nú séu straumar
þarna ekki jafn þungir og sandur
hafi hlaðist upp í Reynisfjörunni og
nái nú um 100 metra lengra út en var
í fyrravetur. »4
Jökull hopar og fjara fyllist
Kvika í náttúru ögrandi verkefni Bæta þarf merkingar
Breska rokkhljómsveitin Muse hélt tónleika í
Laugardalshöll á laugardagskvöld en hljóm-
sveitin lék áður þar árið 2003. Líkt og fyrir
þrettán árum var uppselt á tónleika Muse en um
11 þúsund manns keyptu sig inn á tónleikana.
Hljómsveitin kom á óvart með því að taka vík-
ingaklappið á tónleikunum. Síðan þakkaði
söngvarinn Bellamy ítrekað fyrir sig á íslensku
og bætti við: „Hvað er að frétta, Reykjavík?“
Stanslaust stuð í Laugardalshöll á laugardagskvöld
Morgunblaðið/Ófeigur
Breska rokkhljómsveitin Muse er jafn vinsæl og hún var fyrir þrettán árum þegar hún kom fyrst til Íslands
Fulltrúar sveit-
arfélaga á Suð-
urnesjum, það er
Reykjanesbæjar,
Sandgerðis, og
Garðs, hafa
myndað sam-
ráðshóp til þess
að vinna að skipulagsmálum og
greiða úr ýmsum flækjum á Mið-
nesheiði. Fjárfestar sýna uppbygg-
ingu þar áhuga, svo sem vegna
flugrekstrar, ferðaþjónustu og
verslunar. Magnús Stefánsson, bæj-
arstjóri í Garði, segir nauðsynlegt
að fá ríkið að þessu máli, en landið
þarna hafi það leyst til sín um 1950
vegna uppbyggingar flugvallar og
herstöðvar. „Á Miðnesheiði eru
miklir möguleikar,“ segir bæj-
arstjórinn. » 6
Heiðin skipulögð
Flug Leifsstöð er á
Miðnesheiðinni.
„Mönnum var pínu brugðið þegar
þeir fengu fréttir af því í morgun að
það væru allavega um 15 látnir á
þeim tíma og fleiri slasaðir,“ segir
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari ís-
lenska U18 karlalandsliðsins í körfu-
knattleik, í gær, en illvígt óveður
gekk yfir höfuðborg Makedóníu,
Skopje, á laugardag en þar er liðið
við keppni á Evrópumótinu.
Tuttugu manns létust þegar mikl-
ar rigningar og flóð gengu yfir borg-
ina og nærliggjandi bæi og margra
er enn saknað. „Þetta er hörmung.
Við höfum aldrei upplifað annað
eins,“ sagði borgarstjóri Skopje í
gær. Gríðarlegar þrumur og elding-
ar fylgdu óveðrinu. Úrkoman var um
93 mm og vatnshæðin fór mest í 1,5
metra. Heimili fólks urðu afar illa úti
vegna flóðanna og liggur rafmagn
niðri.
„Gærdagurinn var stórfurðulegur
því það var fínasta veður þegar við
fórum af hótelinu,“ segir Einar en að
versti hluti veðursins hafi gengið yfir
á meðan þeir spiluðu leik í íþrótta-
höllinni. „Þakið var farið að leka all-
hressilega og ljósin í höllinni að
blikka.“ »15
„Við höfum aldrei
upplifað annað eins“