Morgunblaðið - 08.08.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.08.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 Fæst í: Hagkaup – Fjarðarkaup – Byko – Krónunni – Húsasmiðjunni ...ómissandi í eldhúsið Oddný Harðardóttir, formaðurSamfylkingarinnar, skilur ekki hvernig á því stendur að fáir landsmenn segjast vilja kjósa flokkinn.    Það séu von-brigði hve lítið gagn hafi verið að því fyrir fylgi flokksins að Árni Páll hætti sem for- maður og hún tók við.    En Oddný telur sig hafa svarvið fylgisvandanum. Við upp- haf næsta ríkisstjórnarsamstarfs, sem Oddný telur bersýnilega að hún verði aðili að, verði haldnar kosningar um það hvort að Ísland eigi að sækja um aðild að ESB.    Samfylkingin og Vinstri grænirhöfnuðu því raunar síðast þeg- ar þessir flokkar komust í stjórn og sóttu um aðild að ESB að leyfa þjóðinni að hafa nokkuð um það að segja. Nú á sem sagt að bera þetta undir þjóðina.    Þar sem Oddný hefur áhyggjuraf fylginu eftir að hún tók við sem formaður væri þó ekki úr vegi fyrir hana að velta því fyrir sér hvort það kunni ekki að vera sam- hengi á milli ESB-þráhyggju Sam- fylkingarinnar og fylgisleysisins.    Og ætli það sé nú líklegt til aðauka vinsældir flokksins að hóta kjósendum því að næsta kjör- tímabil hefjist með hörðum slag um jafn fráleitt mál og aðild að ESB?    Er Samfylkingin virkilega svolaustengd við raunveruleik- ann að hún telji að þjóðin þurfi helst að því að halda? Oddný Harðardóttir Er vænlegt að hóta kjósendum? STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.8., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 8 heiðskírt Akureyri 12 heiðskírt Nuuk 7 heiðskírt Þórshöfn 11 rigning Ósló 14 rigning Kaupmannahöfn 19 rigning Stokkhólmur 21 alskýjað Helsinki 18 rigning Lúxemborg 28 heiðskírt Brussel 18 léttskýjað Dublin 19 léttskýjað Glasgow 16 rigning London 26 heiðskírt París 28 heiðskírt Amsterdam 22 léttskýjað Hamborg 23 léttskýjað Berlín 27 heiðskírt Vín 25 léttskýjað Moskva 24 rigning Algarve 27 heiðskírt Madríd 34 heiðskírt Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 31 heiðskírt Róm 29 rigning Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 23 heiðskírt Montreal 19 heiðskírt New York 28 heiðskírt Chicago 26 rigning Orlando 28 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:59 22:08 ÍSAFJÖRÐUR 4:47 22:30 SIGLUFJÖRÐUR 4:29 22:14 DJÚPIVOGUR 4:25 21:42 Jóhannes Tómasson johannes@mbl.is Prófkjör Pírata vegna alþingis- kosninga standa nú yfir í Suður- kjördæmi og á höfuðborgarsvæð- inu. Opnað var fyrir kosningarnar, sem fara fram í rafrænu kosn- ingakerfi Pírata, 2. ágúst og standa þær til 12. ágúst. Fór of hratt í gegnum kerfið Einn kjósandi í prófkjörinu birti færslu á Facebook-síðu Pírata, „Pírataspjallið“ þar sem hann taldi þá frambjóðendur sem hann valdi á lista sinn hafa horfið af listanum í kjölfar valsins. Annar kjósandi gerði athugasemd þar sem hann sagðist hafa lent í hinu sama. Í frétt sem birt var á heimasíðu Pírata var vandamálið útskýrt: „Kjósandinn smellti á ,,Kjósa“ hnappinn og svo strax á hlekk til að lesa um næsta frambjóðanda. Kerfið fékk þannig ekki tíma til að taka á móti atkvæðinu. Þegar hann fór aftur til baka á kjörseð- ilinn sá hann í augnablik ástandið eins og hann skildi við það en vef- síðan uppfærði sig svo með réttum gögnum frá kosningakerfinu sjálfu, og þá sá hann að atkvæðið hafði ekki verið móttekið. Hann upplifði þetta þannig að frambjóð- endur væru að „hverfa“ af seðl- inum. Kerfisstjóri útskýrði málið fyrir viðkomandi og þar með var málið leyst.“ Viðmótið var endur- bætt af kerfisstjóra Pírata í kjöl- farið. Í prófkjörinu nota Píratar svo- nefnda „Schulze-aðferð“ þar sem hver kjósandi raðar frambjóðend- um á tölusettan lista. Sá sem er oftast valinn fram yfir alla aðra frambjóðendur er líklegastur til að lenda í efsta sæti. Frambjóðendur „hurfu“ af listanum  Prófkjör Pírata stendur yfir til 12. ágúst  Kosið í rafrænu kosningakerfi Morgunblaðið/Ófeigur Píratar Margir sóttu „opið hús“ með frambjóðendum í prófkjörinu í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.