Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 13

Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 13
hvað öðru fólki finnst. „En ég fæ kannski stundum augngotur þegar bolurinn er kominn hátt upp og bumb- an er bara út í loftið,“ segir hún og hlær. „Þá eru kannski sumir sem hugsa: Jæja, er ekki komið gott hjá þessari? En ég pæli voða lítið í þessu, ég held líka að við séum komin á þann stað að fólk er ekkert mikið að pæla í þessu lengur, það er frekar að koma til mín og hrósa mér fyrir að vera dug- leg.“ Ein stór fjölskylda En getur hver sem er byrjað að æfa crossfit? „Já, það er alltaf hægt að fara á byrjendanámskeið. Hérna hjá okkur í Crossfit Sport er hægt að fara á grunnnámskeið þar sem helstu æf- ingar eru kenndar. Að því loknu er hægt að velja á milli sporthóps sem er fyrir lengra komna eða framhaldstíma ef þú vilt ná æfingunum hægt og ró- lega.“ Hildur segir að það sé engin ástæða til að óttast crossfit. „Þetta er fyrir alla. Ég var ekkert sterk þegar ég byrjaði, ég var bara þessi venjulega fótboltastelpa, svo kom þetta bara með æfingunni. Ég hef líka séð ótrúlegar reynslusögur hjá konum og körlum sem hafa náð ótrúlegum árangri. Lífið snýst kannski um lyftingar í dag hjá fólki sem hafði kannski aldrei stigið fæti inn í almennan lyftingasal áður. Það skemmtilega við crossfit er líka hvað þetta er mikið samfélag. Þetta er eins og fjölskylda, það eru allir að deila með öðrum hvað þeir voru að taka þungt í dag og hver tíminn var í æfingu dagsins. Það er svo gaman að sjá bæt- ingar.“ Öll fjölskylda Hildar er einmitt á fullu í crossfit og boot camp í dag. „Mamma, pabbi og systir mín. Svo er ég líka að reyna að draga kærastann minn í crossfit. Systir mín drífur mig áfram á aukaæfingar, hún hefur verið að keppa á Íslandsmótum og farið á Evrópuleikana í Crossfit.“ Hildur stefnir einnig á Evrópuleikana í fram- tíðinni. „Ég væri alveg til í að vera hluti af liði og reyna að komast þannig á leikana, ég held að það henti mér betur en einstaklingskeppnin.“ Nú er það aftur á móti móðurhlutverkið sem á hug hennar allan, en hún gerir ekki ráð fyrir að taka sér langt hlé frá crossfit-salnum í Sporthúsinu. „Mark- miðið er að hún fái að vera með okkur hérna í vagninum á æfingum fljótlega eftir fæðingu.“ Hildur er einnig skráð í fullt nám í sálfræði, svo það er þétt dagskrá fram undan í haust. „Við sjáum svo bara hvernig það gengur, ég ætla a.m.k. að reyna, ég á eitt ár eftir og tími ekki að hætta.“ Púl Hildur fær stundum augngotur frá fólki þegar bumban gægist út en er lítið að hugsa út í það á miðri æfingu þegar æfingin sjálf á hug hennar allan. Í náttúrunni Hildur á þrjá Husky hunda sem eru duglegir að draga hana út. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Endurskapaðu hlýtt og notarlegt andrúmsloft fyrri tíma. Heimilistækin frá Smeg eru miðpunktur athyglinnar hvar sem þau standa. EIRVÍK FLYTUR HEIMILISTÆKI INN EFTIR ÞÍNUM SÉRÓSKUM ólíklegri til að gefast upp þegar ekki tekst vel til. Þeir sjá ekki sjálfa sig misheppnast við slíkar að- stæður heldur sjá þeir sig vera að læra. Hvort hugarfarið á betur við um þig í dag? Ert þú með fastmótað hugarfar sem hamlar árangri í þínu lífi? Taktu þá ákvörðun í dag um breytt viðhorf. Taktu ákvörðun um að læra og tileinka þér vaxandi hugarfar sem stuðlar að því að þú náir þeim árangri sem þú vilt ná. Af hverju að eyða orkunni í að sanna fyrir þér og öðrum hversu mikla hæfileika eða vitsmuni þú hefur meðan þú getur verið að bæta þig? Af hverju að fela van- hæfni þína í stað þess að yfirstíga hana? Af hverju að leita í það sem þú hefur þegar reynt og þekkir í stað þess að vaxa með nýrri reynslu.  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafa- þjónusta Hugarfar Með því að tileinka þér vaxandi hugarfar ertu ólíklegri til að gef- ast upp þegar ekki tekst vel til. Hugarfar hefur áhrif á árangur, það er ljóst. Vinsældir crossfit hafa aukist jafnt og þétt víðs vegar um heiminn, ekki síst í Bandaríkjunum og þar hafa ís- lenskir keppendur vakið mikla athygli, en líkt og flestir Íslendingar vita sigraði Katrín Tanja Davíðsdóttir á heimsleikunum í crossfit í síðasta mánuði, annað árið í röð. Hún er önnur íslenska konan sem gerir slíkt, en Annie Mist Þórisdóttir hefur einnig hlotið titilinn hraustasta kona heims í tvígang. Hildur segir þennan árangur vera mikla hvatningu fyrir íslenska crossfit- iðkendur og íþróttaiðkendur yfirhöfuð. „Það er eins og það sé eitthvað í íslenska vatninu, miðað við allar ís- lensku stelpurnar sem eru að sigra íþróttaheiminn, sama í hvað sporti, fótbolta, crossfit eða sundi, þær eru magnaðar. Íslensku stelpurnar eiga crossfit- heiminn, ef þú ert íslensk og kemst inn á Evrópuleikana eða heimsleikana þá ertu súperstjarna í augum cross- fittara. Allt í einu varð sprenging í crossfit-heiminum, ég veit ekki af hverju, en ég held að blanda æfinganna og óvissan skipti töluverðu máli.“ Árangur íslensku stelpnanna mikil hvatning VINSÆLDIR CROSSFIT AUKAST Katrín Tanja Hraustasta kona í heimi, annað árið í röð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.