Morgunblaðið - 08.08.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
Nolta
Okkar megin áherslur eru:
◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf
Sigurjón
Þórðarson
Sími: 893 1808 •
sigurjon.thordarson@nolta.is
Friðfinnur
Hermannsson
Sími: 860 1045 •
fridfinnur.hermannsson@nolta.is
Ráðgjöf og þjálfun nolta.is
Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki
Frekari upplýsingar á nolta.is
Nolta er á Facebook
Leiðtoginn á réttum kúrs
Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa
þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur
skipulagi á sín helstu verkefni.
Árni
Sverrisson
Sími: 898 5891 •
arni.sverrisson@nolta.is
8. ágúst 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.3 119.86 119.58
Sterlingspund 156.76 157.52 157.14
Kanadadalur 91.54 92.08 91.81
Dönsk króna 17.871 17.975 17.923
Norsk króna 14.101 14.185 14.143
Sænsk króna 13.989 14.071 14.03
Svissn. franki 122.4 123.08 122.74
Japanskt jen 1.1798 1.1868 1.1833
SDR 166.57 167.57 167.07
Evra 132.93 133.67 133.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.9895
Hrávöruverð
Gull 1362.6 ($/únsa)
Ál 1616.0 ($/tonn) LME
Hráolía 44.18 ($/fatið) Brent
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Gengi rafmyntarinnar bitcoin tók
mikla dýfu á þriðjudag þegar upp-
lýst var að hakkarar hefðu náð að
stela bitcoin fyrir andvirði 65 millj-
óna dala, jafnvirði um 7,8 milljarða
króna, frá rafmyntamarkaðinum
Bitfinex í Hong Kong.
Bitfinex rekur fimmta stærsta
bitcoin-markað heims, og þann
stærsta utan kínverska meginlands-
ins. Kostaði ein bitcoin-eining um
613 dali áður en fréttir bárust af
þjófnaðinum, en lækkaði mest niður
í 480 dali á þriðjudeginum. Tók
myntin að styrkjast aftur þegar líða
tók á þriðjudag og kostaði 597 dali
á sunnudag.
Reuters segir þjófnaðinn þann
næststærsta í sögu Bitcoin. Bitfi-
nex-stuldurinn kemst þó ekki með
tærnar þar sem Mt. Gox-þjófnaður-
inn frá 2014 hefur hælana en þar
hvarf 460 milljóna dala virði af
bitcoin. Þá tókst óprúttnum aðilum
í júní að stela 60 milljóna dala virði
af annarri rafmynt, ethereum.
Tapinu deilt jafnt
Öll viðskipti á Bitfinex voru
stöðvuð eftir að þjófnaðurinn kom í
ljós. Bitfinex geymir innistæður
viðskiptavina á aðskildum reikning-
um eða „sýndar-veskjum“, frekar
en að safna þeim saman á eina bók,
og þarf notandi fleiri en einn að-
gangslykil til að nálgast myntirnar í
veskinu sínu. Á sunnudag tilkynnti
Bitfinex að tjóninu vegna þjófnað-
arins verði dreift jafnt á alla inni-
stæðueigendur. „Þegar þeir skrá
sig inn í kerfið munu notendur sjá
að þeir hafa tapað 36,07% af eign
sinni,“ sagði í tilkynningu Bitfinex
sem tiltók jafnframt að ítarlegri
upplýsingar um forsendur lækkun-
arinnar yrðu birtar innan skamms.
Að sögn WSJ munu viðskiptavinir
fá nokkurs konar inneignarnótur í
sárabætur. Inneignarnótunum
verður hægt að skipta fyrir hluti í
móðurfyrirtæki Bitfinex, iFinex
Inc. Kveðst Bitfinex eiga í viðræð-
um við fjárfesta um leiðir til að
bæta viðskiptavinum tjónið að fullu.
Á sunnudag var stefnt að því að
viðskiptavinir gætu skráð sig inn á
Bitfinex að 24 til 48 stundum liðn-
um.
Reuters greinir frá að ekki sé
enn ljóst hvernig þjófunum tókst að
fá aðgang að innistæðum í kerfi
Bitfinex. Hafa bæði talsmenn Bitfi-
nex og utanaðkomandi sérfræðing-
ar vísað á bug vangaveltum um að
hakkararnir hafi nýtt sér örygg-
isveikleika í blokchain – gagna-
grunninum sem bitcoin-tæknin
reiðir sig á.
Hækkar vegna „helmingunar“
Lengst af þessu ári hélst verð
bitcoin nokkuð stöðugt í kringum
400 dala markið en tók svo að
hækka töluvert og fór hæst upp í
um 768 dali í júní. Þá lækkaði geng-
ið og hélst bitcoin á 600-700 dala
bilinu í júlí.
Hækkunin í sumar er einkum
rakin til sjálfvirkar breytingar sem
varð í bitcoin-kerfinu snemma í júlí.
Breytingin er kölluð „helmingunin“
(e. halving) en bitcoin tæknin bygg-
ist á því að einstaklingar og fyr-
irtæki haldi úti gagnaverum sem
skrá og geyma færslur í bitcoin-
kerfinu. Fyrir ákveðinn fjölda
færslna fær sá sem hýsir skrárnar
bitcoin-einingar í verðlaun. Aðeins
verður hægt að framleiða 21 milljón
bitcoin-einingar og til að hægja á
framleiðslunni eru verðlaunin helm-
inguð á fjögurra ára fresti. Í upp-
hafi fengust 50 bitcoin í verðlaun,
svo 25 árið 2012 en nú 12,5.
Bitcoin jafnar sig eftir risaþjófnað
Tölvuþrjótar stálu jafnvirði 7,8 milljarða króna frá bitcoin-markaði í Hong Kong Verð bitcoin
hefur verið á uppleið í sumar vegna sjálfvirkrar kerfisbreytingar sem á sér stað á fjögurra ára fresti
AFP
Útbreiðsla Búðargluggi fyrirtækis í Hong Kong. Skiltið gefur til kynna að þar sé tekið við bitcoin. Gengi bitcoin
lækkaði mikið þegar fréttir bárust af risaþjófnaði liðinnar viku en rafmyntin náði sér fljótlega aftur á strik
Stjörnuhagfræðingurinn Joseph
Stiglitz hefur sagt sig úr nefnd sem
stjórnvöld í Panama settu á lagg-
irnar til að bæta bankakerfi lands-
ins. Stiglitz, sem hlaut Nóbelsverð-
launin í hagfræði árið 2001, segir
afskipti stjórnvalda af störfum
nefndarinnar hafa jaðrað við rit-
skoðun. Svisslendingurinn Mark
Pieth sagði sig einnig úr nefndinni
á föstudag, en hann er sérfræð-
ingur í spillingarmálum, kennir lög-
fræði við Basel-háskóla og stýrði á
sínum tíma starfshópi hjá OECD
sem skoðaði mútugreiðslur í al-
þjóðaviðskiptum. Var það New
York Times sem greindi fyrst frá
tíðindunum.
Segjast vilja draga úr
misnotkun bankaleyndar
Nefndin var sett á laggirnar í
apríl í kjölfar þess að Panamaskjöl-
unum svokölluðu var lekið. Þar kom
í ljós að panamísk lögfræðistofa
hafði haft milligöngu um að stofna
aflandsreikninga sem sumir virtust
geyma illa fengið fé. Er nefndinni
ætlað að setja fram tillögur um
hvernig má koma í veg fyrir að
fjármálakerfi Panama verði notað í
ólöglegum tilgangi. Fjórir aðrir sér-
fræðingar sem fengnir voru til að
sitja í nefndinni eru enn að störfum.
Utanríkisráðuneyti Panama sendi
frá sér tilkynningu á laugardag þar
sem segir að stjórnvöld „beri fullan
skilning á afsögnunum og þeim
innri ágreiningi“ sem hefur átt sér
stað. Ítrekaði ráðuneytið að stjórn-
völd lofa gagnsæi og alþjóðlegri
samvinnu. Segir ráðuneytið að þeg-
ar sé búið að innleiða sumar frum-
tillögur nefndarinnar á meðan aðr-
ar séu enn í skoðun, að því er BBC
greinir frá.
Í tilkynningu sem Stiglitz og
Pieth sendu frá sér sögðust þeir
hafa áhyggjur af að lokaskýrsla
nefndarinnar yrði ekki birt og telja
þeir að „stjórnvöld séu undir mikl-
um þrýstingi frá aðilum sem hagn-
ast af ógagnsæinu sem í dag ein-
kennir bankakerfi Panama.“
ai@mbl.is
Stiglitz segir sig úr Panama-nefnd
Afskiptum stjórnvalda líkt við ritskoðun Ætlað að bæta bankakerfi landsins
AFP
Leynd Lögfræðistofan Mossack Fonseca var í aðahluterki í Panamaskjöl-
unum. Skjölin sem lekið var fyrr á árinu beindu ljósinu að ýmsu misjöfnu.
Joseph StiglitzMark Pieth