Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 16

Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Grunnhyggnirskýrendurslá einatt um sig með því að vika sé langur tími í pólitík, eins og það eigi frekar við um stjórnmál en annað. Jarð- skjálftar, flóðbylgjur, hryðju- verk eða hörmuleg slys þurfa aðeins sekúndur til að snúa við lífstafli einstaklinga, hundraða þeirra eða hundraða þúsunda. Og svo hitt: Eitt augnakast og allt er breytt. En það gæti verið að þeim grunnhyggnu þætti þessi lúni frasi hafi sannast í bandarísk- um stjórnmálum síðustu dag- ana. Blóðþrýstingsmælar stjórn- málanna, skoðanakannanir, sýndu að fylgi Donalds Trumps vænkaðist verulega með flokksþingi repúblikana, þótt þar gengi á ýmsu. Flokks- þing demókrata, með frú Clin- ton í broddi fylkingar, varð heldur ekki eins friðvænlegt og vonast var til á þeim bæ. En fylgi hennar styrktist einnig verulega, að sögn mælinga- manna. Voru þeir nokkuð sam- dóma um það, að þótt sú regla væri ekki algild þá væru flokksþingin til þess fallin að styrkja viðkomandi frambjóð- anda. Það þyrfti hins vegar að bíða fram í september til að fá kannanir sem væri mikið að marka. En nú hefur það gerst að fylgið á milli nýkrýndra for- setaframbjóðanda sveiflast skyndilega. Munurinn er orð- inn mikill á milli þeirra á landsvísu og langt utan við skekkjumörk. En repúblikön- um þykir þyngst að í þeim ríkj- um sem sérfræðingar telja víst að endanleg úrslit muni ráðast í hefur fjarað hratt undan Trump, t.d. í Flórída, Penn- silvaníu og Ohio. Við bætast vísbendingar um að oddvita- staða Trumps í flokknum skaði einstaka frambjóðendur hans til öldungadeildar og full- trúaþings verulega. Ekki er útilokað að slíkir frambjóð- endur reyni að vinna það sér til stjórnmálalegs lífs eða fram- haldslífs að afneita Trump sem forsetaefni. Það er von að spurt sé hvað ráði þessu. Þeir fyrstu til svars munu benda á að vika sé lang- ur tími í pólitík, því í vikunni frá flokksþingi demókrata hafi Trump náð að ganga fram af fjölda Bandaríkjamanna. Hann hafi skorað á Pútín forseta að birta tölvupósta frú Clinton, hafi hann þá undir höndum. Hann hafi dregið lappirnar með stuðning við Paul Ryan, forseta Fulltrúadeildar þings- ins, og McCain öldungadeild- arþingmann og fyrrverandi for- setaframbjóðanda í kosningabaráttu þeirra. Trump reyndi að skýra fyrra atriðið og að nokkru þau síðari með því að hann hefði verið að gantast. Og það má vera rétt. En honum er ekki eins létt að fara með gam- anmál og Ronald Reagan. Fjórða atriðið, sem virðist hafa skaðað Trump síðustu dægrin, eru viðbrögð hans við ræðu Khizr Khan, Bandaríkja- manns af pakistönskum upp- runa, á þingi demókrata. Khan er fræðimaður á sviði lögfræði, en sonur hans hvílir í Arling- ton-kirkjugarðinum með öðr- um föllnum hetjum Bandaríkj- anna. Khan veittist að Trump persónulega í ræðu með áþekkum hætti og ættmenni einstaklings sem féll í Beng- hazi veittist að frú Clinton á þingi repúblikana. Hillary lét þetta yfir sig ganga en Trump hjólaði í Kahn og raunar óbeint einnig eiginkonu hans. Trump skaðaði sig af tveimur ástæð- um. Óviðeigandi þótti að hann svaraði syrgjandi foreldrum fallins hermanns með þeim hætti sem hann gerði. En í annan stað var því haldið fram að það að Trump gleypti allar flugur sem egnt var fyrir hann sannaði enn að hann væri óhæfur sem forseti Bandaríkj- anna. En þá er það þetta með vik- una í pólitík og hversu stutt hún sé. Bent hefur verið á að það sé annað spakmæli sem eigi betur við í þessu sam- bandi, enda standist það að teljast lögmál: „Það er síðasta stráið sem brýtur bakið á úlf- aldanum.“ Í rauninni hafi Trump hagað sér með svipuðum hætti þessa vikuna og síðustu 60 vikurnar. En hann hafi farið létt með það, að hlaupa með áfellin sem á hann hafa hlaðist af þessum ástæðum og raunar náð að hlaupa alla andstæðingana af sér. En nú sé samansöfnuð byrðin farin að verða mjög íþyngjandi. Því geti farið eins og í tilviki úlfaldans öfluga, að það sé farið að muna um sér- hvert strá. En er eitthvað sem fær bjargað Trump næstu 90 dag- ana? Hugsanlega annað tveggja. Að hann geti hrist af sér hluta byrðar sinnar, svo hún brjóti hann ekki. Eða þá að eitthvað óvænt hitti hinn úlfaldann fyrir og verði honum að falli. Í augnablikinu virðist hvor- ugt líklegt. En minnumst þess þá að á 90 dögum eru augna- blikin æði mörg. Eru sviptingar síð- ustu vikna talandi tákn um væntanleg úrslit?} Atburðir verða á örskotsstund M arga stjórnmálamenn dreymir um töfralykilinn að hjörtum ungra kjósenda. Nú síðast kynnti þingmaður Pírata hugmynd um að gera Poké- stop á kjörstöðum landsins og að þannig væri hægt að „lokka ungt fólk á kjörstað“. Gæti ekki verið að allt tal um að „lokka“ þurfi ungt fólk á kjörstað með japönskum tölvuleikjafíg- úrum sé ein ástæða þess að ungt fólk kýs í æ minni mæli? Ungt fólk þarf vettvang til að fá að taka þátt í raunverulegri stjórnmála- umræðu, umræðan þarf að vera um þau mál- efni samfélagsins sem snúa beint að því og flokkarnir verða að móta skýrar stefnur um það hvernig best sé að leysa vandamálin. Í könnun sem innanríkisráðuneytið lét framkvæma vegna minnkandi kjörsóknar í sveitarstjórnarkosningunum 2014 kemur fram að yngsti kjósendahópurinn (18-29 ára) er sá aldurshópur sem finnst hvað mestur skoðanamunur á stjórnmálaflokk- unum sem í framboði voru. Ljóst er því að ungt fólk sér að flokkarnir hafa mismunandi stefnur. Hins vegar er þetta sami hópur og finnst flokkarnir höfða hvað síst til sín. Það má því draga tvær ályktanir með talsverðri ein- földun. Ungt fólk sér stefnumun á flokkunum en finnst það ekki skila sér í stjórnun landsins. Ungt fólk ákveður því að sitja heima. Í öðru lagi þá finnst ungu fólki að flokkarnir höfði ekki til sín. Málefnin sem flokkarnir deila um snúast ekki um hagsmuni þeirra, og því ákveður unga fólkið að sitja heima. Hvernig verður bætt úr þessu? Skólakerfið ætti að vera góður staður til þess að byrja á. Höfundar nýju aðal- námskrárinnar virðast vera meðvitaðir um það enda kemur orðið „lýðræði“ fyrir næst- um 100 sinnum í rúmlega 200 bls. námskrá. Það er hins vegar ekki nóg. Ungt fólk veit hvað lýðræði er. Það ákveður hins vegar bara að taka ekki þátt í kosningum. Heldur ein- hver að lýðræðisörvunin í grunnskólum landsins muni skila sér í stórkostlegri kosn- ingaþátttöku þegar fram líða stundir? Ég hef stórkostlegar efasemdir. Flestir sjá að fleira þarf til. Ungt fólk verð- ur að fá svigrúm til þess að tjá sig. Umræður verður að leyfa í framhaldsskólum þar sem fulltrúar flokkanna en ekki síst krakkarnir sjálfir fá að tjá sig og rökræða. Ögra ríkjandi skoðunum og fá að heyra sjónarmið sem þau hafa ekki heyrt áður. Hvernig eigum við að búast við því að ungt fólk taki mark á því sem fullorðið fólk segir við það, ef fullorðið fólk í skólastjórnum er hrætt við að leyfa til dæmis stjórnmálamönnum að ræða við unga nemendur? Á tímum internetsins hljómar það farsakennt að vera hræddur við að leyfa stjórnmálaumræðu innan veggja skólans. Vill eldra fólk að algóryþmar samfélagsmiðla móti skoðanir unga fólksins frekar en bein samskipti í raunheiminum? Nú, þá skulum við bara fara alla leið og gera Pokéstop á öllum kjörstöðum. Og gefa ókeypis hjólabretti og derhúfur. „Noh, dúllukrakkar! Þið eruð svo krúttleg með ykkar skoðanir og Pokémon Go.“ Björn Már Ólafsson Pistill Að höfða til unga fólksins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Nokkur sveitarfélög á Suð-urlandi hafa sett upp nýskilti sem sýna hvar ekkimá tjalda og jafnframt frekari upplýsingar um tjaldsvæði í sveitarfélaginu. Þetta hefur gefið góða raun og náðst hefur að stýra bet- ur umferð fólks. Skiltin eru í sam- ræmi við reglur sem mörg sveitar- félög hafa samþykkt á undanförnum mánuðum. Reglurnar eru flestar á þann veg að ekki megi gista í tjöldum, húsbílum, fellihýsum, hjólhýsum, tjaldvögnum eða öðrum sambærilegum búnaði á almannafæri innan marka sveitarfé- lagsins, utan sérmerktra svæða. Skilti sem sýna hvar megi ekki tjalda eða leggja húsbíl yfir nótt hafa m.a. verið sett upp í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi og Vík í Mýrdal. Í öðrum sveit- arfélögum verða sambærileg skilti sett upp á næst- unni, t.d. í Árborg. Sveitarstjórn- endur sem Morg- unblaðið ræddi við eru sammála um að það þurfi að fræða ferðamenn betur um hvar megi gista því oft eru þeir ekki með réttar upplýsingar. Töluvert hefur borið á því að ferða- menn gista í tjöldum eða í bílum á bílastæðum, úti í kanti, á afleggjurum og meðfram vegum þar sem salern- isaðstaða er engin. Nauðsynlegt hefur verið að grípa til þessara aðgerða. Tjalda ekki við skiltin „Ég hef hvorki séð né heyrt af því að það sé tjaldað þar sem skiltin eru. Við settum þau á staði þar sem oft var tjaldað áður,“ segir Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi, um skiltin sem sett voru upp í sumarbyrjun. Hann tekur þó fram að sveitarfélagið hafi ekki vald- heimildir til að reka fólk í burtu held- ur sé fólki vinsamlegast bent á tjald- svæði í nágrenninu. Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Víkur í Mýrdal, tekur í sama streng og Björgvin Skapti. Á nokkrum stöð- um eru skilti sem sýna að bannað er að leggja húsbílum yfir nótt, m.a. á bílastæði við kirkjuna í Vík. „Þetta hefur borið nokkurn árangur en við höfum ekki komið alveg í veg fyrir þetta. Fyrst og fremst viljum við beina fólki inn á tjaldsvæðin og að nýta þjónustuna þar,“ segir Ásgeir. Í Rangárþingi ytra verða sett upp upplýsingaskilti innan skamms sem sýnir að það sé bannað að tjalda og með mynd af tjaldsvæðum. Einnig verður gefinn út lítill bæklingur með þessum sömu upplýsingum sem hægt verður að setja undir rúðuþurrkur á bílum sem er lagt út í kanti eða á bíla- stæðum. Starfsmenn og einnig íbúar sveitarfélagsins geta dreift bækling- unum. Á fundi byggðaráðs Rang- árþings ytra 17. júlí sl. var tillaga um þessar ábendingar um tjaldsvæði samþykkt. „Þetta er svipað og í hinum sveit- arfélögunum. Við viljum fara mildi- lega í þetta án þess að vera mjög ókurteis. Í haust tökum við svo stöð- una en það eru margir að reyna eitt- hvað til að koma í veg fyrir þetta,“ segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra. Líta til nágranna Þegar sveitarstjórn Bláskóga- byggðar kemur fljótlega saman verð- ur skoðað hvort settar verði sam- bærilegar reglur um hvar megi tjalda en málefnið var rætt fyrir sumarfrí. „Ég tel mikilvægt að það verði sam- ræmdar reglur um þetta. Það verður líka gott að eiga samtal við nágranna- sveitarfélög um hvernig best verður að útfæra þetta,“ segir Valtýr Val- týsson, sveitarstjóri Blá- skógabyggðar. Fjölga upplýsinga- skiltum jafnt og þétt Morgunblaðið/Kristján Tjaldsvæði Sveitarfélög á Suðurlandi setja upp skilti til að koma í veg fyrir að fólk komi sér fyrir yfir nótt utan tjaldsvæða en töluvert hefur borið á því. „Við höfum stuggað við ferða- fólki og bent því á tjaldsvæði en ekki gert mikið af því. Flest málin hafa verið austur á Höfn í Hornafirði,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, spurður hvort lög- reglan hafi haft afskipti af ferðafólki sem hefur komið sér fyrir næturlangt á bílastæðum eða tjaldað utan tjaldsvæðis. Í sveitarfélaginu Árborg líkt og annars staðar á landinu hefur ferðamönnum fjölgað mikið. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki á tjaldsvæðinu á Selfossi er það þétt setið og hefur meira borið á því í sum- ar að ferðamenn sækja í þjón- ustuna sem þar er, t.d. að þvo þvott eða komast í sturtu án þess að dvelja yfir nótt á tjaldsvæðinu. Þeir greiða sérstaklega fyrir þá þjón- ustu. Flest málin á Höfn UTAN TJALDSVÆÐA Oddur Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.