Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 18

Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016 ✝ Ragna Hall-dórsdóttir frá Arngerðareyri á Langadalsströnd í Djúpi, fæddist 14.12. 1919. Hún lést í Reykjavík 29.7. 2016. Foreldrar Rögnu voru Steinunn Guð- rún Jónsdóttir hús- freyja, f. 5.3. 1890 á Auðshaugi á Barðaströnd, d. 7.9. 1962, og Halldór Jónsson, bóndi, f. 28.2. 1889 á Grasi við Þingeyri, d. 24.7. 1968 og varð þeim 11 barna auðið. Systkini Rögnu eru Guðrún húsmóðir, f. 4.7. 1915, d. 16.12. 2009, Hólmfríður Theo- dóra húsmóðir, f. 11.7. 1916, d. 22.8. 1994, Jón húsasmíðameist- ari, f. 28.10. 1917, d. 8.12. 2008, Þórhallur verkstjóri, f. 21.10. 1918, d. 4.5. 2015, Inga Lára, f. 9.2. 1921, d. 19.6. 1938, Theódór garðyrkjumaður, f. 17.1. 1925, Erlingur Ebenezer rithöfundur, f. 26.3. 1930, d. 10.10. 2011, og Hjördís hjúkrunarfræðingur, f. 4.4. 1931, d. 1.10. 2015. Ragna giftist 27.10. 1945 Kristni Ragnari Sigurjónssyni húsasmíðameistara, f. 4.8. 1920, d. 5.10. 2007. Foreldrar hans voru Sigurjón Jóhannesson bóndi, f. 12.4. 1880, d. 24.2. 1965, og Kristín Jónsdóttir hús- móðir, f. 20.9. 1875, d. 14.2. 1953. Börn Rögnu og Kristins eru: 1) Steinunn Lára heilbrigð- isritari, f. 9.12. 1945, m. Jón Kal- dal byggingartæknifræðingur, f. 14.3. 1942, d. 11.2. 2003. Börn þeirra eru: a) Jón, f. 24.6. 1968, m. Ragna Sæmundsdóttir, þau eiga tvö börn. b) Guðrún, f. 16.7. 1970, m. Jóhann G. Jóhannsson, þau eiga tvo syni. c) Steinar, f. 24.5. 1979, m. Soffía Erla Ein- arsdóttir, þau eiga tvo syni. d) Sóley, f. 21.1. 1983, m. Jakob Þór Jakobsson, þau eiga tvö börn. Samb.m. Steinunnar er Reidar Kolsöe, flugstjóri. 2) Fríða Svandís, textílhönnuður og kennari, f. 5.2. 1950. Synir hennar og f.m. Vilhjálms H. Vil- hjálmssonar hæstaréttarlög- manns, f. 24.6. 1950, eru: a) Vil- hjálmur Hans, f. 20.10. 1971, hann á einn son með f. samb.k. Önnu Lilju Johansen, b) Finnur Þór, f. 12.5. 1979, samb.k. Jó- hanna Katrín Magnúsdóttir, þau eiga tvö börn, og c) Ingi Freyr, f. 27.9. 1980, m. Sigrún Hallgrímsdóttir, þau eiga þrjú börn. 3) Halldór, athafna- maður, f. 5.2. 1950. Börn hans og, f. k. Hrafnhildar Ein- arsdóttur, f. 22.9. 1951, eru: a) Ragn- ar, f. 25.1. 1968, hann á eina dóttur, og b) Jóna Björg, f. 27.9. 1975, m. Sindri Snæsson, þau eiga fjögur börn. Synir Halldórs og samb.k. hans Eyrúnar Antonsdóttur, f. 24.3. 1954, eru: c) Rúnar, f. 18.10. 1980, m. Malin Schaedel, þau eiga eina dóttur, og d) Arnar, f. 25.2. 1982, m. Agnes Agnarsdóttir, þau eiga þrjú börn. 4) Guðbjörg Kristín bankamaður, f. 30.12. 1955, m. Ingólfur R. Ingólfsson húsa- smiður, f. 6.8. 1949. Börn þeirra eru a) Ingólfur Ragnar, f. 14.5. 1980, samb.k. Sigrún Ein- arsdóttir. Sigrún á eina dóttur og Ingólfur einn son. b) Ragna Björg, 22.2. 1983, samb.m. Steinn Baugur Gunnarsson, þau eiga tvö börn. 5) Fóstursonur og dóttursonur Rögnu er Kristinn Ragnar kennari, f. 1.2. 1963, m. Helga Guðrún Jónasdóttir og eru börn þeirra c) Hulda Hvönn, d) Jökull Jónas og e) Kolfinna. Kristinn á að auki dæturnar a) Tinnu og b) Láru. Kristinn er sonur Steinunnar og Sigurbergs Braga Bergsteinssonar. Þá eignaðist Ragna tvö langalang- ömmubörn. Ragna fæddist á Skálmarnes- múla í Múlasveit, Austur- Barðastrandarsýslu. Vorið 1920 fluttist fjölskyldan á Arngerð- areyri á Langadalsströnd og þar ólst hún upp. Ragna fór í hús- mæðraskólann Ósk á Ísafirði og lauk gagnfræðaprófi frá Ingi- marsskóla (síðar Lind- argötuskóli) áður en hún giftist og hóf búskap með eiginmanni sínum. Ragna og Kristinn bjuggu lengst af í Álfheimum 5, Reykjavík. Síðustu ár sín dvaldi Ragna á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Rögnu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 8. ágúst 2016, klukkan 13. Rögnu Halldórsdóttur, sem síðar varð tengdamóðir mín, hitti ég fyrst í júní 1968. Hún tók strax vel á móti þessum unga manni og naut ég hlýju hennar og vináttu alla tíð. Ragna ólst upp á Arngerðar- eyri við Ísafjarðardjúp ásamt mörgum systkinum sínum, þar sem foreldrar hennar bjuggu myndarbúi í 40 ár. Staðurinn var henni mjög kær og áttum við oft skemmtilegar samræður sein- ustu ár hennar um æskuár henn- ar við Djúp. Hún stundaði nám í Húsmæðraskólanum á Ísafirði og fluttist svo til Reykjavíkur þar sem þau Kristinn Sigurjónsson gengu í hjónaband og stofnuðu sitt heimili. Á nokkrum árum fæddust þeim fjögur börn. Ragna stýrði þessu stóra heimili af dugnaði og hlýju. Hún var glað- vær, gestrisin og tók á móti fjöl- skyldu og öðrum gestum af ánægju og með rausn. Þegar barnabörnin fóru að koma í heiminn var hún ævinlega tilbúin að taka á móti þeim í stutta eða langa heimsókn, einnig þegar foreldrarnir brugðu sér frá í ferðalög. Ragna hafði góða nær- veru og veitti þessum litlu mann- eskjum, sem henni þótti svo vænt um, mjög margt. Hlýju, sögur og samræður og alltaf eitthvað gott að borða fyrir utan hvatningu og heilræði sem hún var óspör á. Það var gott að koma til hennar ömmu Rögnu. Hún tók ekki síður vel á móti öðrum og átti ég marg- ar skemmtilegar samverustundir við eldhúsborðið í Álfheimum 5 með henni, Kristni og fleirum. Ragna var ákveðin í skoðunum um menn og málefni eins og Arngerðareyrarsystkinin gjarn- an voru. Alltaf lauk þó umræðun- um með því að allir stóðu glaðir upp frá kaffinu. Ragna var heilsuhraust fram undir það síð- asta og bar aldurinn vel. Síðustu æviárin átti hún gott skjól í Sól- túni. Þar naut hún fyrirmyndar umönnunar. Ég þakka Rögnu fyrir þá góðvild og umhyggju sem hún sýndi mér alla tíð. Fyrir allar góðu stundirnar og samræð- urnar sem framan af snerust um allt mögulegt, einkum börnin, en undir það seinasta um mannlífið, einkum við Djúp. Blessuð sé minning Rögnu Halldórsdóttur. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Mig langar að minnast í fáum orðum Rögnu Halldórsdóttur, elskulegrar tengdamóður minn- ar. Ragna var örlát kona, gestris- in og greiðvikin. Reiðubúin hvar og hvenær sem var, að rétta fram hlýja hjálparhönd; styrkja sína og styðja. Ég minnist hæglátrar konu, mikils dugnaðarforks sem fátt óx í augum og lét verkin tala. Miklar orðlengingar áttu ekki við hana. Ekki var hún heldur fyrir tildur eða prjál. Vissi, sem sú góða og heilsteypta kona sem Ragna Halldórsdóttir Stjórnendur bankanna og þá ekki síst Lands- bankans, sem er í eigu ríkisins og þar með þjóð- arinnar, hafa sýnt af sér ámælis- verða áhættu- hegðun í lánveit- ingum til sjávarútvegs á undanförnum misserum. Landsbankinn hefur beitt afli sínu til að tryggja fullar endurheimtur á lánum sem minni fyrirtæki í sjávar- útvegi hafa á undanförnum árum tekið til kaupa á kvóta á uppsprengdu verði. Ýmsar ástæður liggja að baki him- inháu verði kvótans. Ein er sú að stjórnvöld innheimta ekki raunvirði af útgerðinni fyrir afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, fisk- inum í sjónum. Fyrir vikið hafa kvótasterk útgerðarfyr- irtæki bolmagn til að borga yfirverð fyrir kvótann. Önn- ur er sú að Landsbankinn og aðrir bankar hafa lánað á færibandi til kvótakaupa og í raun þrýst verðinu upp með óábyrgum lánveitingum. Þau fyrirtæki, sem ekki hafa yfir að ráða uppsjáv- arveiðiheimildum jafnframt bolfiskkvóta, ráða hins vegar ekki við að greiða af lánum vegna kvótakaupa. Kemur þar til verð kvótans og að vextir á Íslandi eru hæstu vextir á byggðu bóli vegna alvarlegrar fákeppni á fjár- málamarkaði inni á lokuðu myntsvæði íslensku krón- unnar. Af hverju heyrist ekkert frá SFS? Það er alvarlegur brestur í samkeppnisumhverfi í ís- lenskum sjávarútvegi. Að- gangurinn að fiskinum í sjónum er niðurgreiddur af hálfu rík- isins með því að gjald- taka fyrir afnot af hinni tak- mörkuðu auðlind nemur ein- ungis brota- broti af þeim raun- verulegu verðmætum sem ríkið af- hendir kvótahöfum. Hagnaðurinn verður eftir í höndum kvótahafanna, og þá einkum þeirra sem ráða yfir bæði bolfisk- og upp- sjávarkvóta. Í raun er um fullkomnar aðgangshömlur að ræða í sjávarútvegi okk- ar Íslendinga fyrir til- stuðlan bankanna. Nýliðun er því sem næst engin, enda þýðir ekkert að keppa við þá sem fyrir eru á fleti og njóta niðurgreidds að- gangs að hráefni auk óskor- aðs stuðnings bankakerf- isins. Þetta er sorgarsagan á bak við kvótann sem hvarf frá Þorlákshöfn og kvótann sem á undanförnum árum hefur horfið úr hverju sjáv- arplássinu á fætur öðru hringinn í kringum landið. Það er athyglisvert að Sam- tök fyrirtækja í sjávar- útvegi (SFS), sem kynna sig sem heildarsamtök fyr- irtækja í sjávarútvegi, skuli ekki sjá ástæðu til að mót- mæla því þegar bankar neyða hvert sjávarútvegs- fyrirtækið á fætur öðru til að selja frá sér kvótann til hinna stóru í greininni. Þess í stað lofsama SFS fiskveiðistjórnunarkerfið, sem markvisst stuðlar að samþjöppun kvóta og auðn í fyrrverandi blómlegum út- gerðarplássum víða um land. Eru SFS aðeins að gæta hagsmuna hinna stóru? Óhófleg áhætta bankanna Þá vekur framferði bank- anna í þessari kvóta- samþjöppun ekki síður at- hygli. Bankarnir eru stærstu kvótaeigendur á Íslandi. Þeir eiga veð í mestöllum kvóta á Íslandsmiðum. Und- anfarin misseri hafa bank- arnir neytt smærri útgerð- arfyrirtæki til að láta af hendi kvótann í skulda- skilum og selt hann til stórra samþættra útgerð- arfyrirtækja, sem hafa yfir að ráða ríkulegum aflaheim- ildum fyrir, bæði í bolfiski og uppsjávartegundum. Heimamönnum hefur verið meinað að stíga inn til að halda kvótanum í byggð- arlaginu. Ekki aðeins hafa bank- arnir lánað stóru fyrirtækj- unum fyrir kvótakaupum, sem jafnan eru afgreidd á bak við luktar dyr, rétt eins og þegar hlutur Landsbank- ans í Borgun var seldur til handvalins hóps kaupenda á verði sem kaupendurnir sjálfir ákváðu. HB Grandi, sem keypti kvótann af Hafn- arnesi VER í Þorlákshöfn á fjóra milljarða, ætlar að byggja nýja bolfiskvinnslu á Vopnafirði, sem kostar millj- arða. Varla gerist það án lántöku, ekki hjá fyrirtæki, sem á síðustu þremur árum hefur greitt hluthöfum sín- um 8,5 milljarða í arð á sama tíma og pantaðir eru fimm nýir togarar að verð- mæti hátt í tuttugu millj- arðar. Jafnvel þó að aðgang- urinn að fiskinum í sjónum sé niðurgreiddur er víst að gríðarlegar lántökur fylgja allri þessari fjárfestingu og arðgreiðslum. Umboðslausir bankamenn? Í núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi er kvót- anum úthlutað til eins árs í senn og enginn eignarréttur fylgir þeirri úthlutun um- fram eins árs afnotarétt. Samt sem áður lánar Lands- bankinn stórum útgerðarfyr- irtækjum til kvótakaupa og annarra fjárfestinga með veði í kvótanum rétt eins og kvótinn og aflaheimildir séu óvefengjanleg og varanleg eign þessara fyrirtækja. Í ljósi skýrrar kröfu al- mennings og fylgis flokka í könnunum er eins líklegt að eftir næstu kosningar verði gerðar breytingar á fisk- veiðistjórnun hér við land til að tryggja þjóðinni sjálfri eðlilegt endurgjald fyrir af- not auðlindarinnar. Þar með geta veðin í kvótanum orðið verðlaus á einni nóttu. Ut- anaðkomandi áföll geta einn- ig laskað þessi veð. Lánveitingarnar eru þann- ig ekki einungis hömlulausar heldur líka fullkomlega óá- byrgar og til þess fallnar að skaða eigendur bankanna, sem eru reyndar íslenska þjóðin. Er þessi áhættu- hegðun stjórnenda Lands- bankans í samræmi við eig- endastefnu ríkisins í bankanum? Er fjár- málaráðherra samþykkur þessari samþjöppun kvóta og lánaáhættu Landsbank- ans? Hefur bankastjóri Landsbankans umboð frá fulltrúum eigenda bankans til að stunda svona áhættu- hegðun? Hömlulaus áhættu- hegðun bankastjórnenda Eftir Ólaf Arnarson »Er þessi áhættuhegðun stjórnenda Lands- bankans í samræmi við eigendastefnu ríkisins í bank- anum? Ólafur Arnarson Höfundur er hagfræðingur og hefur unnið að verkefnum fyr- ir Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ). Í ársreikningi Hörpu fyrir árið 2015 kemur fram að tap ársins er tæpar 443 millj- ónir króna. Er þá tekið tillit til lækkunar fast- eignagjalda árs- ins 2015 upp á 242 milljónir vegna dóms Hæstaréttar frá febrúar 2015. Hefði ekki komið til lækkunar fast- eignagjalda hefði tap Hörpu orðið rúmar 684 milljónir sem er verri nið- urstaða en vegna 2014. Rekstur Hörpu er því ekki að færast nær því að vera sjálf- bær. Margar út- gáfur virðast vera á kreiki varðandi byggingarkostnað Hörpu. Samkvæmt ársreikn- ingi Hörpu fyrir árið 2015 er hann sagður 17,9 milljarðar án áhalda, tækja og innrétt- inga. Sé tekið tillit til áhalda, tækja og innréttinga er byggingarkostnaður rúmir 21,4 milljarðar króna. Í ný- legri fyrirspurn frá alþing- ismanni til fjármála- og efna- hagsráðherra um byggingarkostnað Hörpu, svaraði ráðherra að frá því ríkið og Reykjavíkurborg hefðu tekið yfir framkvæmd- ina væri byggingarkostnaður samtals 20,9 milljarðar miðað við verðlag í mars 2015. Ef tekið væri tillit til afskrifaðs byggingarkostnaðar fyrri framkvæmdaraðila upp á 10 milljarða, væri heildarbygg- ingarkostnaður alls 30,9 milljarðar. Fróðlegt er að skoða frétt í Morgunblaðinu 1.7. 2010 um Hörpu. Þar sagði einn aðalforsvarsmaður Hörpu um byggingarkostnað henn- ar: „Heildarbyggingarkostn- aður nemur um 28 millj- örðum en ekki 17,7 milljörðum.“ Vert er að minna á að enn er fyrirspurn Péturs H. Blöndal, heitins, ósvöruð á Alþingi. Þ.e.a.s. hver er óupplýstur kostnaður vegna Hörpu og upplýsingar sem vantar um rekstur og rekstr- aráætlanir frá A-Ö?! Enn fremur skal minnt á ofurviðhaldið á húsinu, alls um 161 milljón á aðeins fimm árum (sjá fjárlög og svör til fjárlaganefndar). Hvar eru allar stórráðstefnurnar (5-6 þúsund manns) sem virðast allar hafa brugðist, en þær áttu að gera Hörpu sjálfbæra í síðasta lagi 2014? Tap á Hörpu þrátt fyrir lækkun fasteignagjalda Eftir Örnólf Hall »Hvar eru allar stórráðstefn- urnar ... en þær áttu að gera Hörpu sjálfbæra í síðasta lagi 2014? Örnólfur Hall Höfundur er arkitekt. Þannig var að frystikistan mín, sem var enn í ábyrgð, bilaði um daginn. Ég hafði samband við Rafha á Suðurlandsbraut 16 þar sem hún var keypt á sínum tíma. Það skipti engum togum að daginn eftir voru þeir komnir með nýja frystikistu heim til mín. Þeir tóku hana úr umbúðunum, settu hana í samband og tóku umbúðirnar með sér. Þvílík þjónusta! Ég vil hvetja alla, sem þurfa að kaupa heimilistæki að versla við Rafha. Bestu kveðjur til Rafha, Hulda í Engihjalla. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Þakkir til Rafha

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.