Morgunblaðið - 08.08.2016, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Félagsvist með vinningum kl. 13.
Félagsheimili Gulsmára Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handa-
vinna kl. 13, félagsvist kl. 20. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á
staðnum. Allir velkomnir!
Garðabær Heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með
síðdegiskaffinu frá kl. 14-15.50.
Gjábakki Handavinna kl. 9, kanasta kl. 13.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30. Miðvikudaginn
10. ágúst verður Frida Martins með örnámskeið í myndlist kl. 13,
nánari upplýsingar og skráning í síma 535-2720.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, púttvöllurinn er opinn,
ganga kl. 10, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegis-
kaffi kl. 14.30, nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Glóðargangan á þessu sumri 2016 verður frá
Digranesi, Skálaheiði 2, á mánudögum kl. 10, þar til annað verður
ákveðið. Upplýsingar í síma 564-1490 og á www.glod.is.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á
2. hæð kl. 15.30. Upplýsingar í síma 411-2760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og
búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari
upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568-2586.
Vitatorg Sumarferð frá Vitatorgi 12. ágúst kl. 9. Ekið upp í Borgarnes
og ekið um Brokey og farið í Landnámssetrið og fleira. Ekið að fossin-
um Glanna og Hraunsnefi í Norðurárdal og snæddur hádegisverður.
Þaðan ekið yfir á Hvítársíðu, Ferjukot um Andakíl að Hvanneyri og
safnið skoðað. Síðan endum við á Akranesi og snæðum kvöldverð í
gamla Kaupfélagshúsinu. Skráning og upplýsingar í afgreiðslunni og
símum 411 9450 og 822 3028. Síðasti skráningardagur er 10. ágúst.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
10.9
00.
-
10.9
00.
-
10.9
00.
-
11.9
00.
-
Mikið úrval af
sundfatnaði
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Jóna Sig-urðardóttir
fæddist á Urr-
iðaá í Álftanes-
hreppi hinn 9.
apríl 1935. Hún
lést 23. júlí
2016 á Heil-
brigðisstofnun
Vesturlands.
Jóna var
dóttir hjónanna
Hólmfríðar Þór-
dísar Guðmundsdóttur
(Doddu), og Sigurðar Guð-
jónssonar, bónda á Urriðaá.
Jóna var elst þriggja systk-
ina, hin eru: Erlendur (d.
2009) og Guðrún á
Leirulæk.
Jóna giftist
Kjartani Magn-
ússyni 28. mars
1970 og eignuðust
þau eina dóttur,
Hönnu Sigríði. Fyr-
ir átti Jóna dótt-
urina Svandísi Eddu
og Kjartan synina
Hauk og Eyþór.
Kjartan lést árið
2010.
Útför Jónu verður gerð frá
Borgarneskirkju í dag, 8.
ágúst 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
„Mér finnst að núna ætti ég
að mega fá allt sem mig langar
í … en mig langar bara ekki í
neitt.“
Þetta sagði mamma við okk-
ur sem vorum hjá henni dag-
inn áður en hún lést og þá vissi
hún vel í hvað stefndi. Þessi
orð lýsa henni og hennar hóg-
værð vel. Þó að síðustu dagar
og vikur sem mamma lifði hafi
verið henni erfiðar gerði hún
lítið af því að kvarta. Það var
ekki hennar stíll.
Mínar minningar um
mömmu tengjast oft útreiðum
og spilum. Mamma var mikil
hestakona og að skreppa á bak
var eitt hennar mesta áhuga-
mál en því áhugamáli deildu
hún og pabbi saman. Þau
höfðu alltaf taugar til sveita-
lífsins og þrátt fyrir að búa á
mölinni stunduðu þau búskap
til margra ára í Holti auk hefð-
bundinnar vinnu. Í Holti voru
þau bæði með kindur og hesta
svo nóg var að gera, heyskap-
ur á sumrin og svo gefa á
garðann á veturna.
Við vorum líka duglegar að
taka í spil á veturna en það var
bannað að spila yfir sumartím-
ann, regla frá afa Sigga. Við
spiluðum mikið Lomber bæði á
Urriðaá og svo einnig í
Borgarnesi og þá oft við spila-
félaga mömmu og pabba. Þó að
ekki hafi farið mikið fyrir
mömmu var hún bæði ákveðin
og vinnusöm. Hún vann í kaup-
félaginu ásamt því að reka
heimilið og sinna bústörfunum
í Holti auk þess sem hún var
mjög lagin við að prjónaskap
og handavinnu ýmiss konar.
Það er erfitt og skrýtið að
mamma sé farin en ég óska
henni góðrar ferðar. Ég ætla
að kveðja mömmu með sömu
bæn og ég kvaddi ömmu með.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Svandís.
Í dag fylgjum við til grafar
kærri vinkonu, henni Jónu frá
Urriðaá. Við höfum verið saman
í saumaklúbbi í næstum 60 ár
og fékk hann það virðulega
heiti „Saumaklúbbur vestur-
landskjördæmis“. Jóna er sú
þriðja úr þeim hópi, sem við
kveðjum.
Jóna fékk gott veganesti frá
æskuheimili sínu. Urriðaár-
heimilið var einstakt, þar var
falleg umgengni úti sem inni,
heimilisfólkið glatt, gestrisið og
skemmtilegt.
Jóna var miklum mannkost-
um gædd, hrein og bein í fram-
komu, sanngjörn, umtalsfróm
og laus við fordóma. Hún var
vel að sér, málefnaleg, víðlesin
og fróð. Í samræðum bar ým-
islegt á góma, sem við hinar í
klúbbnum vissum ekki eða
mundum kannski ekki til hlítar,
þá var gjarnan sagt „Flettum
upp í Jónu.“. Og oftar en ekki
hafði hún svör á reiðum hönd-
um.
Jóna var höfðingi heim að
sækja og höfum við notið góðra
veitinga og viðmóts á heimili
hennar og Kjartans og eins eft-
ir að hann féll frá.
Jóna naut virðingar og vin-
áttu samstarfsmanna og ann-
arra samferðamanna, sem kom
ekki hvað síst í ljós í veikindum
hennar og hafa nágrannar
hennar sýnt ómælda umhyggju
og velvild.
Æðrulaus tókst hún á við
sorgina eftir andlát Kjartans.
Af sama æðruleysi brást hún
við sínum veikindum, var róleg,
yfirveguð sem fyrr og gerði að
gamni sínu fram undir það síð-
asta.
Vinátta er guðsgjöf, það er
aldrei sjálfgefið að eiga góða
vini. Þótt hún hafi kvatt skilur
hún eftir ótal góðar minningar,
sem við munum njóta í ríkum
mæli.
Við kveðjum Jónu vinkonu
okkar með virðingu og þökk.
Dætrum hennar, stjúpsonum,
systur, og fjölskyldunni allri,
vottum við einlæga samúð.
Guð blessi minningu Jónu
Sigurðardóttur.
Björk, Dóra, Helga og
Ragnheiður.
Við bræðurnir Halldór, Böðv-
ar og Sigurður Valgeirssynir
vorum allir í sumarvist á Urr-
iðaá í æsku þar sem við kynnt-
umst Jónu Sigurðardóttur og
hennar ágætu fjölskyldu. Hall-
dór er nú fallinn frá en okkur
Böðvar og Sigurð langar til að
minnast Jónu með nokkrum
orðum. Böðvar fær sem eldri
bróðir eðlilega fyrstur orðið.
Fyrst þegar ég fór í sveitina
að Urriðaá var ég ekki hár í
loftinu enda ekki nema sex ára.
Ég fór með Halldóri bróður
sem var fimm árum eldri og
mig minnir að Denni frændi og
jafnaldri hafi komið um svipað
leyti. Á þessum tíma tók heilan
dag að komast á leiðarenda.
Farið var með Laxfossi í Borg-
arnes og þaðan með mjólkur-
bílnum að afleggjara til Urr-
iðaár þar sem við vorum sóttir
á hestvagni. Ég man að mér
fannst að ekki væri hægt að
fara lengra í burtu að heiman.
Svolítið ógnvekjandi í fyrstu.
Árin mín í sveitinni urðu fimm
eða sex og eru ljúf endurminn-
ing. Búskapurinn var frum-
stæður enda lítið um seinni
tíma vinnuvélar. Og að sjálf-
sögðu var þetta fyrir tíma raf-
væðingar.
Sómafólkið Dodda og Siggi
réðu þarna ríkjum og hjá þeim
var gott að vera. Auk þeirra var
heimilisfólkið Guðrún móðir
Doddu, Jón Sveinsson vinnu-
maður og svo börnin tvö á þeim
tíma, Jóna og Elli. Gunna fædd-
ist svo undir lok míns tíma.
Jóna er mér ofarlega í huga.
Hún var foreldum sínum stoð
og stytta og við aðkomugrísl-
ingarnir leituðum mikið til
hennar. Hún var alltaf fús að
leysa hvers konar mál sem upp
komu og gerði það af mikilli al-
úð. Svo gekk hún í öll störf inni
sem úti. Heimilið var á sumrin
mjög fjölmennt og það þurfti að
seðja marga munna. Ekkert var
til sparað. Þau ár sem ég var á
Urriðaá man ég ekki eftir að
Jóna hafi nokkurn tímann skipt
skapi þó að mikið hafi oft á
henni mætt. Hún átti ekki
marga frídagana en aldrei var
kvartað eða kveinað. Ég minn-
ist Jónu með mikilli hlýju.
Ég hef sennilega byrjað í
sveit á Urriðaá um það bil 15
árum á eftir Böðvari bróður,
þegar ég var níu ára gamall og
var þar álíka lengi. Jóna var
talsvert eldri en ég og þegar ég
kom á Urriðaá var hún flutt í
Borgarnes og vann þar. Hún
kom þó eðlilega oft að Urriðaá
og tók virkan þátt í bústörf-
unum. Hún átti flottan, grænan
Land Rover jeppa sem maður
fékk stundum að sitja í. Jóna
var eins og aðrir meðlimir fjöl-
skyldunnar dugleg, hæglát og
rólynd kona.
Hún var líka mjög hlý og um-
hyggjusöm og átti sinn þátt í að
búa til þá traustu umgjörð sem
hún og fjölskylda hennar gáfu
ungum kúasmölum og aðstoð-
armönnum úr borginni.
Við bræður vottum fjölskyldu
Jónu okkar innilegustu samúð.
Það er gott að hafa fengið að
vera samtíða henni og hennar
góða fólki.
Böðvar og Sigurður.
Jóna
Sigurðardóttir
og fá stórt knús frá honum. Ég
veit að mamma þín kemur bros-
andi og tekur á móti þér.
Minningar um góðan dreng
eiga eftir að ylja mér um hjarta-
rætur um ókomin ár.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku fjölskylda ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Anna Guðmundsdóttir.
Jón frændi varð bráðkvaddur
26. júlí 2016. Ég á eftir að sakna
hans mikið. Hann og afi Andrés
hafa verið tíðir kaffigestir hjá
mömmu og hefur mér alltaf fund-
ist svo gaman að hitta á þá hjá
henni. Einnig hefur alltaf verið
gaman að hitta Jón þegar þeir afi
voru heimsóttir.
Jón var hugljúfur og góður
maður sem var alltaf til í að
hjálpa öllum. Hann reyndist mér
vel í gegnum tíðina og hefur mér
alltaf þótt vænt um það. Hann
leyfði mér t.d. að gista hjá sér í
Kaupmannahöfn meðan ég leitaði
að íbúð og passaði Viggó kisa í
flest þau skipti sem við hjónin
fórum á flakk auk annarra skipta
þar sem Jón var boðinn og búinn
að rétta þá hjálparhönd sem hann
gat. Þegar ég hugsa til baka um
Jón þá koma upp ýmsar minning-
ar eins og þegar ég var lítil og var
í heimsókn hjá Jóni og fékk að
fara í fyrsta sinn í tölvuleik eða
var að eltast við kisurnar hans.
Eða þegar Jón frændi kenndi
mér að meta Billie Holiday. Þeg-
ar ég sé Jón fyrir mér núna þá sé
ég hann fyrir mér í hvítu jakka-
fötunum sínum, hárið greitt aftur
og með skakkt bros á vör.
Jón var foreldrum sínum mjög
góður en síðustu árin hugsaði
hann um ömmu og afa af alúð og
nærgætni. Fyrir það erum við öll
mjög þakklát.
Ég vil senda Andrési, afa mín-
um og systkinum Jóns mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Elínborg Einarsdóttir.