Morgunblaðið - 08.08.2016, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2016
Hjólavagnar
Fást í verslun okkar að Bíldshöfða 10
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is/hjolavagnar | stilling@stilling.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ástarsamband, rómantík, skemmtan
eða frí er efst á óskalistanum núna. Gott hjá
þér! Láttu eins og allar óskir þínar hafi þegar
ræst.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér finnst samstarfsfólk þitt ekki nægi-
lega samvinnufúst í dag. Hafðu ekki sekt-
arkennd heldur safnaðu kröftum og vertu
heill í því sem þú gerir. Sýndu honum þó
samt fyllstu kurteisi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það hefur ekkert upp á sig að setja
markið lægra en þú veist að þú ræður við. En
nú kemur það þér til góða. Vandamál eru til
að leysa þau.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er þér léttir að komast að því að
nú eru peningar og bjargir til staðar og því
unnt að gera úrbætur á vinnustað. Frestaðu
ónauðsynlegum innkaupum til morguns.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu verða af fyrirætlunum þínum sem
tengjast yfirvöldum eða stórum stofnunum.
Nú er röðin komin að þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að hemja fljótfærni þína í
dag. Virðing þín fyrir hugmyndum og áliti
annarra skapar fjölbreytileika og vinnur gegn
ótta.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er yfir margan þröskuldinn að fara
til að ná því takmarki sem þú hefur sett þér.
Reyndu að njóta alls þess fallega og róm-
antíska sem gæti orðið á vegi þínum í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert upptekinn við að láta öð-
um líða vel yfir framlagi þeirra. Hættu að
greina og gefðu ímyndunaraflinu lausan
tauminn. Þú ættir að sinna heilsunni betur
en þú hefur gert.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að kynna sér
vel smáa letrið áður en skrifað er undir. Ein-
beittu þér að eigin málum og láttu aðra eiga
sig um hríð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur óvart tengst upplýs-
ingum sem eru mikils virði. Fyrst þarftu að
gefa hinni manneskjunni pláss til að taka eig-
in ákvörðun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta er góður dagur til að breyta
og bæta í vinnunni. Tilgangurinn helgar með-
alið, en ekki er víst að allir séu þér sammála.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu engan komast í þína hluti,
nema þú hafir áður gengið úr skugga um að
þú getir treyst viðkomandi. Notaðu gáfurnar
þér til framdráttar.
Fía á Sandi er góð myndlistar-kona, – og fellur vel að mála
með orðum eins og í þessari ágúst-
mynd!
Gott að sjá
sól skína á
sæ og hauður.
Sóli við sker
sólgul er
sjórinn rauður.
Ólafur Stefánsson veltir „lífs-
kúnstinni“ fyrir sér:
Þó reynist oft varla heilt né hálft,
hæpin vöðin, og lapið úr skel,
er tilgangur lífsins lífið sjálft,
og lykillinn gullni: að nýta vel.
Hér er Ólafur í öðrum hugleið-
ingum þar sem hann skrifar á Leir-
inn að það sé „búið að bóka forset-
ann á svo margar samkomur og
hátíðir strax í fyrstu embættisvik-
unni að það mætti æra óstöðugan
að telja það allt upp. Vonandi tekur
hann upp rétta ræðu á hverjum
stað, svo að hann geti sagt amen
eftir efninu.
Ýmislegt munum við upplifa hér
áður en lýkur nösum,
þegar um landið forsetinn fer
með fullt af ræðum í vösum.“
Svo að Vísnahorn haldi sig við
Bessastaði enn um hríð þá sagði
Sigurlín Hermannsdóttir „eigi skal
gráta þótt Ólafur hafi ekki verið
endurnýttur, nóg er eftir.
Við vitum öll að heimur snýst í hring
í heimturnar nú færist góður kraftur;
Mundi fannst og Árni þarf á þing
og því er best að herinn komi aftur.“
Davíð Hjálmar Haraldsson veltir
hér fyrir sér almennum sannindum
eða hvað?
Situr lengi sorgum í,
segir fátt af einum
uns hann kemst á kreik á ný
að kasta hellusteinum.
Davíð Hjálmar á létt með að
kasta fram limru:
Á sumrin þá sólskin er mest um
og sveittar þær fara úr vestum
og pilsum og buxum
er bannað að hugśum
hvort brenni ekki tungan í flestum.
Það er vissara að gæta sín!
Hjálmar Freysteinsson orti:
Þú gerir mistök of mörg!
sagði Móna við bónda sinn örg.
Þá ansaði hann: Kona,
því ýkirðu svona?
Svo álpaðist hann fyrir björg.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af forsetanum, góðum
heimtum og hellusteinum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
BÍLLINN MINN VARÐ
BENSÍNLAUS Í DAG
ERU TÖFRARNIR ÞEIR AÐ
ÞÆR VERÐA AÐ RISA
BAUNAGRASI?
NEI. TÖFRARNIR ERU ÞEIR AÐ
HANN SAGÐI AÐ MÉR MYNDI Í
ALVÖRU ÞYKJA ÞÆR GÓÐAR
ÉG KEYPTI
TÖFRABAUNIR
AF GALDRAKARLI
ER ÞAÐ YFIR
HÖFUÐ HÆGT?!
VISSIR ÞÚ AÐ
KETTIR SKILJA
EKKI EFTIR SIG
FINGRAFÖR?
ÞRISVAR
„ÉG VAR AÐ VONAST TIL AÐ ÞETTA YRÐI
ÁKVEÐIN VAKNING, EN HANN DOTTAÐI ÁÐUR
EN ÉG GAT SAGT HONUM NIÐURSTÖÐURNAR.“
„Í ÚTLITSLÝSINGUNNI SKAL ÉG BARA SEGJA AÐ ÞÚ
SÉRT AÐ LEITA AÐ KONUM MEÐ GOTT SKOPSKYN.“
STEFNUMÓTAMIÐLUN AMORS
…Að útbúa morgun-
mat fyrir einhvern
Ferðasögur má segja með ýmsumóti. Oft birtast slíkar í blöðum
og á vefmiðlum og eru gjarnan frá-
sagnir með myndum úr heimsóknum
á hefðbundna túristastaði. Allir hafa
lesið ferðapistla ungra Íslendinga frá
Austurlöndum fjær og greinar um ís-
lenska kóra sem syngja í Péturskirkj-
unni í Róm. Bestu ferðalýsingarnar
eru hins vegar þær þegar lesandinn
verður ósjálfrátt förunautur höfund-
arins. Þannig finnst Víkverja að hann
hafi heimsótt Færeyjar liðins tíma
eftir að hafa lesið bókina Eyjarnar
átján eftir Hannes Pétursson. Bókin
kom út fyrir bráðum hálfri öld og er
gullmoli í flokki ferðabóka, svo vel
stílaðar eru myndrænar lýsingarnar
frá þessu fallega nágrannalandi okk-
ar.
x x x
Það er skemmtilegur siður að skrifadagbók, punkta niður helstu tíð-
indi hvers dags og skapa heimildir
fyrir framtíðina. Þetta gerðu margir
15. október 1998 þegar Þjóðminja-
safn Íslands og fleiri stóðu fyrir sér-
stökum dagbókardegi. Fjöldi fólks
sendi inn frásagnir og nokkrar þeirra
eru birtar í Dagbók Íslendinga sem
kom út 1999. Nú, tæplega tuttugu ár-
um síðar, er þessi bók orðin stór-
merkileg, því hún gefur innsýn í dag-
legt líf fólks á þessum tíma. Almennt
talað þá virðist lífið í landinu í kring-
um aldamótin síðustu hafa verið í öllu
hægari takti en nú er raunin. Flest
sækjumst við eftir því að lífið sé
stresslítið og á þessum tíma stjórn-
uðu símar ekki lífi fólks jafn mikið og
nú. Þá eru lýsingar á hinu nýstárlega
fyrirbæri sem kallað er tölvupóstur
svolítið skemmtilegar. Sennilega er
kominn tími á nýjan dagbókardag,
þannig að komandi kynslóðir geti
fræðst um hvernig lífi Íslendinga var
varið á því herrans ári 2016.
x x x
Að undanförnu hefur starfsfólkBorgarbókasafns Reykjavíkur
verið að grisja í hillunum. Bækur sem
lítið hafa hreyfst síðustu árin eru
seldar á slikk og nánast gefnar. Vík-
verji fór í Grafarvogssafnið og labb-
aði út með fangið fullt af alls konar
góðgæti. Fékk til dæmis gömlu útgáf-
una af Íslenskri orðabók. Árni Bö. á
100 kall, hver býður betur?
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar. (Sálm. 121.2)