Morgunblaðið - 08.08.2016, Síða 32

Morgunblaðið - 08.08.2016, Síða 32
Vegir ástarinnar í Listasafni Sigurjóns MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Börnin sem foreldrarnir myrtu 2. Gerðu sér að leik að fara í ána 3. Pistorius fluttur á sjúkrahús 4. Rosalega leiðinlegt mál »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tankurinn nefnist rými fyrir list- sköpun sem opnað verður formlega á Djúpavogi í kvöld kl. 20. Tankurinn er gamall lýsistankur sem hreinsaður var að innan í sumar, en íbúar stað- arins gáfu vinnu sína. Umbreyting rýmisins naut styrks frá Uppbygging- arsjóði Austurlands. Samkvæmt upp- lýsingum frá Erlu Dóru Vogler, ferða- og menningarmálafulltrúa Djúpa- vogshrepps, er afar góður hljóm- burður inni í tankinum. Bendir hún á að það hve hrár tankurinn er geri hann að afburða viðburða- og sýning- arrými. Tankurinn er eign íbúa Djúpa- vogshrepps, en hver sem er getur nýtt sér hann fyrir viðburði og sýn- ingar. Ferða- og menningarmála- fulltrúi sveitarfélagsins sér um að taka við bókunum. Tankurinn vígður á Djúpavogi í kvöld Á þriðjudag Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum og stöku skúrir sunnanlands, en annars víða bjart veður. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast um landið vestanvert. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðvestan 2-9 m/s. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands, annars úr- komulítið. Hiti víða 9 til 14 stig. VEÐUR Íslendingar hófu keppni á Ól- ympíuleikunum um helgina. Einn Íslendingur keppti á fyrsta keppnisdegi og þar var á ferðinni Anton Sveinn McKee úr Ægi. Keppti hann í 100 metra bringusundi en var talsvert frá sínu besta en Anton keppti einnig fyrstur Íslendinga í London fyrir fjórum árum. Eygló Ósk og Hrafnhildur eru einn- ig komnar af stað í sund- inu. »2 Aftur reið Anton á vaðið á ÓL FH-ingar urðu bikarmeistarar í frjáls- um íþróttum á Laug- ardalsvelli á laug- ardaginn. FH hefur oft notið velgengni í bikarkeppninni en í þetta skiptið rauf lið- ið sex ára sigur- göngu ÍR eftir harða en skemmtilega keppni með breyttu fyrirkomu- lagi. »4 FH bikarmeistari í frjálsum íþróttum Fjölnir er í 2. sæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu eftir sannfærandi stór- sigur á ÍA í Grafarvoginum í gærkvöldi. Þrír leikir fóru þá fram í 14. umferð og lýkur umferðinni í kvöld með öðrum þremur. Eyjamenn fengu mikilvæg stig í Ólafsvík og fjarlægðust aftur fall- svæðið. Fylkismönnum gengur hins vegar erfiðlega að safna stigum og eru í erfiðum málum. »6,7,8 Fjölnir í 2. sæti eftir stórsigur á ÍA ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á  Vegir ástarinnar eða Les chemins de l’amour er yfirskrift loka- tónleikanna í sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar sem fram fara annað kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Þar flytja Hrafnhildur Árna- dóttir Hafstað sópran og Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanó ástríðufull, einlæg og seiðandi sönglög eftir Richard Strauss, Francis Poulenc, Er- ik Satie, Gabriel Fauré og Reynaldo Hahn. Að vanda verður kaffistofan opin þar sem boðið er upp á heima- bakað bakk- elsi. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Tvíburasysturnar Tanja Dóra og Tinna Dröfn Benjamínsdætur eru á sautjánda ári. Þær starfa báðar í Reiðskóla Reykjavíkur sem leiðbein- endur og kenna yngstu kynslóðinni tökin á hestamennskunni en þær stigu sín fyrstu skref í hestamennskunni á reiðnámskeiði í Reiðskóla Reykjavík- ur sex ára gamlar. Eftir fyrsta nám- skeiðið varð ekki aftur snúið og hafa þær verið í hestamennsku upp frá því. „Við höfum elskað hesta frá því við vorum litlar. Foreldrar okkar ákváðu að senda okkur hingað á reiðnámskeið og fórum við á hverju ári eftir það,“ segir Tanja en enginn í fjölskyldu systranna stundar hestamennsku fyr- ir utan þær. „Jafnvægisæfingarnar,“ svarar Tanja spurð hvað henni fannst skemmtilegast á reiðnámskeiðunum þegar hún lítur til baka. Í slíkum æf- ingum er riðið berbakt og m.a. hönd- um sleppt og snúið öfugt. „Allir reiðtúrarnir, útiveran og fé- lagsskapurinn. Maður eignaðist svo marga vini,“ segir Tinna spurð hvað standi upp úr eftir árin í reiðskól- anum. Vinskapurinn hefur haldið sér í gegnum árin og hafa til að mynda margir sem starfa í reiðskólanum í sumar verið saman á námskeiðum á yngri árum. Á hverju sumri hafa systurnar ver- ið í kringum reiðskólann með einum eða öðrum hætti. Þær hafa verið að- stoðarmenn í reiðskólanum frá því þær höfðu aldur til og eru sammála um að þetta sé skemmtilegasta sum- arstarf sem hægt sé að hugsa sér. „Við erum allavega ekki að fara að hætta að vinna hér á sumrin,“ segir Tinna og brosir. Þær þekkja starfið inn og út og hestana vel en nokkrir þeirra voru einnig í reiðskólanum þeg- ar þær byrjuðu. Þeim þykir ein- staklega gaman að miðla til krakk- anna og eiga auðvelt með að setja sig í þeirra spor. „Í fyrra varð sprenging en þetta er stærsta sumarið okkar hingað til. Það er biðlisti á öll námskeið hjá okkur,“ segir Edda Rún Ragnarsdóttir, eig- andi Reiðskóla Reykjavíkur í Víðidal, en yfir 500 nemendur hafa verið í reiðskólanum í sumar. Reið- námskeiðin byrja um leið og skól- anum lýkur og síðustu námskeiðin eru 19. ágúst. Í sumar var gert hlé á námskeiðunum vikuna sem Lands- mót hestamanna fór fram á Hólum í Hjaltadal, því Edda Rún og eig- inmaður hennar Sigurður Vignir Matthíasson sýndu þar hross og kepptu. Í reiðskólanum er boðið er upp á fjölbreytt námskeið, jafnt fyrir byrj- endur sem lengra komna. Svokallað ævintýranámskeið sem er fyrir lengra komna var vel heppnað, að sögn Eddu Rúnar, enda hefur veðrið í sumar ekki spillt fyrir góðum tengslum barnanna við hesta og nátt- úru. Á ævintýranámskeiðinu var m.a. riðið upp í Heiðmörk og sundriðið í Hólmsánni. Það vakti mikla gleði nemenda sem stukku sjálfir út í ána og busluðu í sólinni. Í ár er 15. starfsár reiðskólans og hafa margir nemendur farið af fullum krafti í hestamennskuna eftir sitt fyrsta námskeið í reiðskólanum. „Það gleður hjartað alltaf jafn mikið að rekast á gamla nemendur í reiðtúr sem hafa jafnvel dregið alla fjölskyld- una í hestamennskuna. Þá er toppn- um náð, að framleiða nýja hesta- menn,“ segir Edda Rún. Ekki hætt eftir fyrsta námskeið  Aldrei meira að gera í Reiðskóla Reykjavíkur Tvíburar Tanja Dóra og Tinna Dröfn Benjamínsdætur segja hestamennsk- una frábært áhugamál, útiveran og félagsskapurinn sé toppurinn. Morgunblaðið/Styrmir Kári Reiðskóli Allir hestar og knapar í röð og ekki annað að sjá en knöpum framtíðarinnar líki vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.