Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 1. Á G Ú S T 2 0 1 6
Stofnað 1913 186. tölublað 104. árgangur
TENGSLIN VIÐ
LISTASÖGUNA
OG SAMFÉLAGIÐ
SLÖK STAÐA
Í GAGNA-
TENGINGUM
GLEÐJAST SAMAN
OG FAGNA VITUND
OG ÁRANGRI
VIÐSKIPTAMOGGINN VEGAN-HÁTÍÐ 12SÝNING 31
Milljarðar í Borgarfirði
Mikil uppbygging í ferðaþjónustu Byggt fyrir rúman milljarð í Reykholti
Búist við 40 þúsund manns á Langjökul Fleiri verkefni eru á teikniborðinu
stærstu ferðaþjónustufyrirtæki
landsins.
Til marks um framkvæmdagleð-
ina mun Fosshótel í Reykholti hefja
framkvæmdir sem miða að því að á
árinu 2018 muni hótelið státa af ríf-
lega 80 hótelherbergjum ásamt
heitum inni- og útilaugum, gufuböð-
um og annarri lúxusþjónustu. Við
breytingarnar fjölgar herbergjum
hótelsins um 28 og öll eldri herbergi
þess verða endurnýjuð ásamt ann-
arri aðstöðu sem fyrir er á staðnum.
Mun kostnaður við uppbygginguna
hlaupa á rúmum milljarði króna.
Ferðaþjónustuaðilar eru sam-
mála um að aukin fjárfesting á
svæðinu sé öllum til hagsbóta og að
sífellt fjölgi þeim sem sæki svæðið
heim. Nú í haust opnar Krauma
starfsemi við Deildartungu en þar
gefst gestum tækifæri til að baða
sig upp úr vatni sem sótt er í vatns-
mesta hver veraldar.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rekstraraðilar í ferðaþjónustu
greina aukinn áhuga ferðamanna á
Vesturlandi. Á þessu ári og því síð-
asta hefur fjárfesting í atvinnu-
greininni vaxið gríðarlega og mörg
stór verkefni komist á koppinn,
ekki síst í Borgarfirði. Eru verk-
efnin bæði drifin áfram af fjárfest-
um úr héraði en einnig fagfjárfest-
um á borð við lífeyrissjóði og
Mörg verkefni
» Fjárfest hefur verið í Húsa-
felli fyrir ríflega milljarð á
tveimur árum.
» Nýtt hótel rís í Borgarnesi
fyrir 1,6 milljarða króna.
» Innviðir styrktir við hellinn
Víðgelmi.
MViðskiptaMogginn
Regnboginn sem prýddi tröppur Menntaskólans
í Reykjavík á hinsegin dögum var þrifinn af á
síðustu dögum. Skiptar skoðanir eru á nauðsyn
aðgerðarinnar en tekið var fram í samningi við
MR að málningin yrði þrifin af 8. ágúst. Hafa
þrifin staðið yfir síðustu þrjá daga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Regnboginn kvaddur með háþrýstidælu
Guðni Sigurðs-
son, upplýsinga-
fulltrúi Isavia,
segir fjölda far-
þega sem fluttir
hafa verið milli
Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar
og flugvéla með
rútum vera kom-
inn yfir milljón.
Isavia er því
með stærri fyrirtækjum í strætó-
rekstri hér á landi, en til sam-
anburðar flutti Strætó bs. rúmlega
10 milljónir farþega í fyrra.
Til að anna þessum flutningum
hefur Isavia fest kaup á 12 stórum
farþegarútum og einni minni rútu.
einnig hafa verið teknir í notkun
tveir lyftubílar til að ferja fólk í
hjólastólum á milli. »6
Milljón farþegar
með rútum Isavia
Flug Margir sækja
landið heim í ár.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Verkefnið felst í því að framleiða
og leggja um 3.000 tonn af malbiki
á götur Tasiilaq,“ segir Sigþór Sig-
urðsson hjá Malbikunarstöðinni
Hlaðbær-Colas en þeir hafa nú oft-
ar en einu sinni komist í verkefni á
Grænlandi við malbikun.
Núna er um verkefni að ræða
sem er í einum stærsta bæ austur-
strandar Grænlands. Þar munu
þeir malbika götur meðal annars
framhjá sjúkrahúsinu og skólanum
í bænum og eftir sumarið ættu um 4
kílómetrar að vera kláraðir.
Flytja þarf allan búnað og tæki
héðan frá Íslandi ásamt því að flytja
þarf bikið sem blanda þarf í mal-
bikið í sérstökum gámum sem hægt
er að hita upp í 150 gráða hita.
Afskekkt byggð á austur-
ströndinni
Þótt malbikunarfyrirtæki sé í
Nuuk í höfuðstað Grænlands er
vegalengdin til Tasiilaq svipuð frá
Íslandi og Nuuk. Þannig að kostn-
aðurinn af því að malbika í Tasiilaq
er minni ef íslenskt fyrirtæki tekur
þetta að sér, jafnvel þótt það þurfi
nánast að flytja heila verksmiðju út.
»4
Forvitnilegt Krakkarnir eru sérstaklega glaðir að sjá Íslendingana að verki
við malbikun í Tasiilaq. Bæjarbúar eru allir ánægðir að sjá loksins malbik.
Fara með bik í gámum til Grænlands
Íslendingar á fullu að malbika í bæn-
um Tasiilaq á Grænlandi í sumar
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í nýju nefndaráliti fjárlaganefndar
Alþingis er viðruð sú skoðun að fá
einkafjárfesta að frekari uppbygg-
ingu innviða á Keflavíkurflugvelli.
Er í álitinu bent á að þeim flug-
völlum sem séu alfarið eða að hluta
til í eigu einkaaðila fari mjög fjölg-
andi í Evrópu og að um 80% flug-
farþega sem leggja leið sín til og frá
álfunni fari um fyrrnefnda velli.
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir að
það felist mikil áhætta í því fyrir ís-
lenska ríkið að fyrirtæki sem sé al-
farið í þess eigu, Isavia, ráðist í inn-
viðafjárfestingu á vellinum sem
nemi um 70 til 90 milljörðum króna.
„Þarna erum við að tala um fjár-
festingu sem jafngildir tveimur há-
tæknisjúkrahúsum, hvorki meira né
minna. Og þetta eru sannarlega
mjög mikilvægar framkvæmdir og
lúta að einni mikilvægustu burð-
arstoð íslensks efnahagslífs um
þessar mundir, ferðaþjónustunni.
En þegar þetta mikla fjármagn fer í
þessa uppbyggingu þá er ekki hægt
að ráðast af sama krafti í aðra mjög
mikilvæga uppbyggingu sem er ekki
síður nauðsynleg.“
Guðlaugur segir að nefndin geri
ráð fyrir því að tillit verði tekið til
þessara sjónarmiða við gerð fjárlaga
í haust. »ViðskiptaMogginn
Flug Leifsstöð stækkar og stækkar.
Of mikil
áhætta
fyrir ríkið
Vilja fjárfesta að
Keflavíkurflugvelli