Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Dæmi: SAECO PHEDRA Frábær kaffivél fyrir meðalstór fyrirtæki 5.400,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! stórum farþegarútum og einni minni rútu. Einnig hafa verið teknir í notkun tveir lyftubílar til að ferja fólk í hjólastólum út í flugvélar og frá þeim. Rúturnar eru skreyttar myndum úr íslenskri náttúru, t.d. af mosa, norðurljósum, Jökulsárlóni o.fl. Vegna gífurlegrar fjölgunar flug- véla sem koma til Keflavík- urflugvallar kemst ekki nema hluti þeirra upp að flugstöðinni sjálfri. Þessum vanda hefur verið mætt með því að fjölga fjarstæðum fyrir flugvélar á flugvallarsvæðinu. Í fyrra voru stæði fyrir 26 flug- vélar og eftir viðbætur fyrr á þessu ári eru nú stæði fyrir 28 flugvélar. Síðan er áformað að fjölga þeim smám saman og árið 2019 er áætlað að fjarstæði verði komin fyrir 36 flugvélar. Flugtök og lendingar 28 þús- und það sem af er árinu 2016 Samkvæmt upplýsingum Guðna Sigurðssonar voru svokallaðar flug- hreyfingar í júlí 6.199 og er þá átt við flugtök og lendingar. Fyrstu sjö mánuði ársins voru flugtök og lend- ingar samtals 28.013. Tl samanburðar voru flughreyf- ingar í júlí 2015 alls 4.885 og fyrstu sjö mánuði þess árs samtals 22.133. Rúturnar hafa skipt sköpum  Met slegið á Keflavíkurflugvelli í hverjum mánuði  Óhemju vinna hjá starfsfólki að skipuleggja afgreiðslu flugvéla  Ný flugvélastæði og rútur bjarga miklu  Milljón farþegar fluttir með rútum Ljósmynd/Isavia Litríkar Rúta við nýja stækkun suðurbyggingar til vesturs. Viðbyggingin sem er 5.000 fermetrar var tekin í fulla notkun í byrjun sumars og í henni eru sex rútuhlið. Ákveðnir áfangar höfðu verið í notkun um nokkurt skeið. Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll Heimild: www.kefairport.is 2016 Brottfarir Komur Skiptifarþegar Fjöldi alls Mán.breyt.milli ára Janúar 109.646 100.710 80.141 290.497 25,8% Febrúar 132.067 136.002 56.311 324.380 40,8% Mars 159.154 162.666 80.962 402.782 42,5% Apríl 137.564 135.325 109.861 382.750 28,3% Maí 170.868 184.854 181.295 537.017 34,4% Júní 245.619 258.295 259.565 763.479 34,2% Júlí 285.159 300.290 314.907 900.356 35,9% Alls 1.240.077 1.278.142 1.083.042 3.604.261 34,7% Þjónusta Tveir lyftubílar sjá um að ferja farþega í hjólastólum. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hvert metið á fætur öðru hefur ver- ið slegið á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Alls fóru rúmlega 900 þúsund farþegar um völlinn í ný- liðnum júlímánuði. Er þetta met- mánuður á flugvellinum. Fyrra metið var júnímánuður á þessu ári en þá fóru rúmlega 763 þúsund farþegar um völlinn. Aukn- ingin frá júlí í fyrra er um 36%, en þá fóru tæplega 663 þúsund farþeg- ar um Keflavíkurflugvöll. 3,6 milljónir farþega alls Fyrstu sjö mánuði ársins fóru 3,6 milljónir farþega um Keflavík- urflugvöll. Aukningin er 34,7%, sem er langt umfram bjartsýnustu spár. Þessi mikli fjöldi ferðamanna hef- ur valdið gríðarlegu álagi á starfs- menn flugvallarins og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. „Það hefur kostað óhemju vinnu að skipuleggja afgreiðslu flugvéla í sumar, fjölgunin hefur verið svo mikil,“ segir Guðni Sigurðsson upp- lýsingafulltrúi Isavia. Sem fyrr eru aðal-annatímarnir snemma á morgnana og aftur síð- degis. Yfir hásumarið hefur svo miðnæturflugið bæst við sem ann- atími. „Það sem hefur bjargað okkur í sumar er fjölgun flughlaða og far- þegarúta,“ segir Guðni. 12 stórar farþegarútur keyptar Fjöldi farþega sem fluttir hafa verið milli flugstöðvar og flugvéla með rútum er kominn yfir milljón að sögn Guðna. Er Isavia með stærri fyrirtækjum í strætórekstri hér á landi. Til samanburðar flutti Strætó bs. rúmlega 10 milljón far- þega í fyrra. Isavia hefur fest kaup á 12 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Áætlað er að reglugerð verði sett um ómönnuð loftför, eða svonefnd flyg- ildi, síðar á þessu ári. Að sögn Gunnars Arnar Indriða- sonar, lögfræðings hjá innanríkis- ráðuneytinu, verða drög að reglu- gerðinni kynnt til umsagnar í haust. „Það voru kynnt drög til umsagnar síðasta vor og við skoðuðum þetta ásamt Samgöngustofu. Við vorum að bíða eftir því að Flugöryggisstofnun Evrópu kæmi með tillögur að reglum. Þær lágu fyrir nú í byrjun ágúst og í kjölfarið metum við hvaða breytingar þarf að gera á drögunum sem voru kynnt. Það er stefnt að því að það verði sett reglugerð um ómönnuð loftför á þessu ári,“ segir hann. „Við reynum á þessu sviði, sem fell- ur undir EES-samninginn, að taka mið af þeim reglum sem verið er að undirbúa þar,“ bætir hann við. Gunnar Örn segir að einhver aðild- arríkjanna hafi þegar sett sér reglur, t.d. Finnland og Svíþjóð. Heppilegra að bíða tilmæla Nú er í gildi tilkynning frá Sam- göngustofu um ómönnuð loftför þar sem miðað er við að þau loftför sem séu þyngri en tvö kíló þurfi að til- kynna um sérstaklega. „Mörg aðildarríki á EES-svæðinu hafa sett sér sérstakar landsreglur og það eru tilmæli frá Flugöryggis- stofnuninni að ríkin setji sér sínar eigin reglur á meðan það er unnið að sameiginlegum reglum,“ segir hann. Gunnar segir heppilegra að reglu- gerðin sem nú er unnið að verði í sam- ræmi við sameiginlegar evrópskar reglur síðar meir og því hafi tilmæla Flugöryggisstofnunarinnar verið beðið. Gunnar Örn segir að reglur aðild- arríkjanna séu nú mjög mismunandi. „Það er mjög ólíkt hvernig þetta hefur verið gert. Svíar hafa til dæmis sett mjög ítarlegar reglur og Finnar sett einfaldar reglur. Það er ekki mjög einsleit framkvæmd á þessu,“ segir hann. Reglugerð um flygildi væntanleg á árinu  Í samræmi við sameiginlegar reglur á Evrópuvettvangi AFP Vélfygli Flygildi eru til margs nytsamleg, meðal annars við kvikmyndatöku og við leit að fólki. Von er á reglugerð um þessi nýstárlegu tæki á árinu. Skóla- og frístundaráð Reykjavík- urborgar samþykkti í gær tillögu frá ungmennaráði Breiðholts þess efnis að nemendur verði hluti af stuðningsneti fyrir börn og ung- linga af erlendum uppruna. Þannig verði þeir hluti af móttökuteymi skólanna. Tillagan var upphaflega lögð fram í borgarstjórn af fulltrúum ungmennaráðs á vordögum. Bent var á að margir erlendir nemendur væru einangraðir alla skólagöngu sína og að mikilvægt væri að tengja nýja nemendur inn í frístund- astarf í hverju hverfi. Stefnt er að því að unnin verði handbók með verklagi við móttöku nýrra nemenda af er- lendum uppruna sem innleitt verði í skólum og frístunamiðstöðvum. johannes@mbl.is Skólakrakkar. Erlendir nemendur oft einangraðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.