Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Framundan er 100. listmunauppboð Gallerís Foldar sem verður með hátíðarbrag.
Viltu selja listaverk?
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Við leitum að úrvalsverkum á þetta tveggja daga uppboð.
Nánari upplýsingar í síma 551-0400 og hjá fold@myndlist.is
Við óskum meðal annars eftir verkum eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónsdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson,Svavar Guðnason,
Nínu Tryggvadóttur, Georg Guðna, Kristján Davíðsson, Gunnlaug Blöndal og
Gunnlaug Scheving.
Ennfremur er eftirspurn eftir verkum eftir
Eggert Pétursson, Karólínu Lárusdóttur og Erró.
Kvartett Önnu Grétu Sigurðardóttur
heldur tónleika kl. 20 í kvöld, fimmtu-
dag 11. ágúst, í Bryggjusal í Edinborg-
arhúsinu á Ísafirði. Auk Önnu, sem
spilar á píanó, samanstendur kvart-
ettinn af Håkan Broström er leikur á
saxófón, Sebastian Ågren á trommur
og Eirik Lund á kontrabassa.
Kvartettinn flytur frumsamda tón-
list eftir þau Önnu Grétu og Håkan
Broström, en þau kynntust fyrir ári
og hafa spilað saman í mörgum mis-
munandi verkefnum, m.a. með stór-
sveitunum Norrbotten big band og
New Places Orchestra. Kvartettinn
spilar einnig á Jazzhátíð Reykjavíkur,
kl. 22.20 laugardaginn 13. ágúst, í
Norðurljósasal Hörpu.
Edinborg menningarmiðstöð
Kvartett með
frumsamda
tónlist
Djass Anna Gréta var valin bjartasta
vonin í djass- og blúsflokki á Íslensku
tónlistarverðlaununum 2015.
Listasafn Reykja-
víkur sýnir kl. 20 í
kvöld, fimmtudag
11. ágúst, tvær
kvikmyndir sem
báðar fjalla um
heimskautasvæð-
in. Annars vegar End of Summer eftir
Jóhann Jóhannsson og hins vegar
Sögur og sækýr eftir Etienne de
France. Sú fyrrnefnda sýnir berang-
urslegt landslag eyjunnar Suður-
Georgíu og Suðurskautslandsins í lok
sumars. Í þeirri síðarnefndu renna
raunveruleiki og skáldskapur saman í
kvikmynd í heimildamyndastíl um
rannsóknarteymi á norðurslóðum.
Aðgöngumiði á safnið gildir og
frítt fyrir handhafa Menningarkorts
Reykjavíkur.
Listasafn Reykjavíkur
Heimskautin
í brennidepli
Með aðferðum náttúrunnar nefnist
skapandi myndlistarnámskeið fyrir
10-13 ára sem efnt verður til í Gerð-
arsafni kl. 13-16 dagana 15.-19. ágúst.
Á námskeiðinu verða gerðar spenn-
andi tilraunir með náttúrutengda
myndlist. Farið verður í rannsókn-
arleiðangra um Gerðarsafn, Nátt-
úrufræðistofu og Bókasafn Kópavogs
og þátttakendur leita sér innblásturs
í náttúrunni þar um kring.
Þátttakendur búa til saltkristalla
með salti og litum og gera tilraunir
með geómetrísk form úr sápukúlum.
Þeir rannsaka einnig náttúruna með
smásjá, skoða hvernig sólúr virka og
steypa steingervinga. Tilraunirnar
verða form af landlist, þar sem nátt-
úrufyrirbrigði og listsköpun renna
saman í eitt.
Kennarar á námskeiðinu eru mynd-
listarmennirnir Guðrún Benónýs-
dóttir og Guðný Rúnarsdóttir.
Þátttakendur þurfa að hafa með
sér nesti og vera klæddir eftir veðri
og þannig búnir að þeir geti legið í
grasi og unnið í mold og með máln-
ingu og gifs.
Skapandi sumarnámskeið fyrir 10-14 ára í Gerðarsafni
Saltkristallar og tilraunir með
geómetrísk form úr sápukúlum
Gerðarsafn Á myndlistarnámskeiðinu Með aðferðum náttúrunnar gera
þátttakendur spennandi tilraunir með náttúrutengda myndlist.
Skráning:
gerdarsafn@kopavogur.is
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
V
ið vorum búin að vera
reglulega með pálínuboð
þar sem fólk mætti í sal
innandyra með veitingar
á sameiginlegt hlaðborð.
Svo var fólk farið að tala um að það
væri gaman að halda grillveislu þar
sem allir kæmu með eitthvað á grill-
ið,“ segir Sæunn Ingibjörg Mar-
inósdóttir, upplýsingafulltrúi Sam-
taka grænmetisæta á Íslandi. Við
undirbúning kom aftur á móti í ljós að
hentugara væri að bjóða upp á svip-
aðan mat fyrir alla. „Þannig þetta
breyttist í grill festival þar sem við
grilluðum vegan-pylsur og seldum
gegn vægu gjaldi. Festivalið fékk frá-
bærar viðtökur, það komu um 300
manns, sem var mun meira en við átt-
um von á þar sem við ákváðum þetta
með nokkurra daga fyrirvara og
kynntum þetta lítið.“
Árlegur viðburður
„Við ákváðum að gera þetta aftur
í ár, með svipuðu sniði, en við finnum
að áhuginn er margfaldur á við í fyrra
þannig við verðum á stærra svæði og
bjóðum upp á fleiri tegundir af mat,
bæði pylsur og oumph-skálar með kí-
nóa og alls konar gott gos,“ segir Sæ-
unn. Á hátíðinni gefst fólki því kjörið
tækifæri til að kynna sér ýmsan veg-
an-mat. Oumph þekkja til dæmis ekki
allir, en það er nýtt sojakjöt, framleitt
í Svíþjóð og kom á markað í fyrra.
Kynnir hátíðarinnar verður
bandaríska vegan-dragdrottningin og
grallarinn Honey LaBronx. Aðrir
skemmtikraftar eru meðal annars
tónlistarkonan Sóley og rapparinn
Bróðir Big. „Honey er vegan-aktívisti
sem notar drag-ið til að koma sínum
boðskap á framfæri. Hún er alveg of-
boðslega skemmtileg og á eftir að
vera með jákvæða fræðslu og fróð-
leiksmola fyrir þá sem vilja kynna sér
vegan-lífsstílinn. Festivalið hefur því
bæði skemmtana- og fræðslugildi,“
segir Sæunn.
Sunnudaginn 14. ágúst mun
Honey fylgja viðburðinum eftir með
fyrirlestri um veganisma og rétt-
indabaráttu minnihlutahópa í húsa-
kynnum Gló í Fákafeni. „Hún hefur
verið að skoða tengingu á milli rétt-
indabaráttu fyrir dýr og réttindabar-
áttu fyrir fólk. Hún færir rök fyrir því
að við getum ekki ætlast til þess að
aðrir sýni okkar mannréttindum virð-
ingu ef við sýnum dýrunum ekki sömu
virðingu. Hún tengir það saman
hvernig þetta er í raun allt ein og
sama hugmyndin,“ segir Sæunn, sem
hvetur áhugasama til að mæta á fyr-
irlesturinn á sunnudag. Aðgangur er
ókeypis og hefst hann klukkan 14.
Aukið umburðarlyndi
Sæunn segir Samtök grænmetis-
æta á Íslandi hafa verið að finna fyrir
auknum áhuga fólks og fyrirtækja
síðastliðið ár sem hún tekur fagnandi.
„Þetta er þróun sem er að eiga sér
stað út um allan heim. Fólk er mikið
að horfast í augu við uppruna vara
sem það neytir, hvort sem það er mat-
ur eða aðrar vörur. Fólk er orðið
tilbúið til að axla meiri ábyrgð og
velja vörur út frá framleiðsluferlinu
til að styðja ekki við óréttlæti og þján-
ingu.“
Þá segir Sæunn að vitundin sé
að springa út hjá mismunandi hópum
grænmetisæta á sama tíma. „Það er
mikil fjölgun hjá mismunandi hópum
grænmetisæta og við finnum einnig
fyrir meira umburðarlyndi og skiln-
ingi. Fólk er farið að vita hvað þetta
þýðir. Fyrir tveimur til þremur árum
skildi enginn hvað við vorum að tala
um þegar við sögðum vegan, en nú er
þetta orðið þekkt. Það er einhver stór
bylting handan við hornið og gaman
hvað allir eru jákvæðir, við finnum
eiginlega ekki fyrir neinu mótlæti.“
Vegan festivalið hefst klukkan
14 á laugardag og stendur skipulögð
dagskrá yfir í um tvo klukkutíma. Að-
gangur er ókeypis og opinn öllum
áhugasömum en veitingar verða seld-
ar á hóflegu verði, 500 krónur fyrir
vegan-pylsu með öllu eða grillað
oumph og gos. Hægt er að fylgjast
með undirbúningi hátíðarinnar á
snapchat-aðgangi samtakanna þar
sem hitað er upp fyrir festivalið þessa
vikuna. Notandanafnið er veganuar.
Fagna aukinni vitund og
góðum árangri á vegan-hátíð
Samtök grænmetisæta á
Íslandi standa fyrir Vegan
festivali á laugardag.
Markmiðið er að gleðjast
saman og fagna aukinni
vitund og miklum árangri
vegan-hreyfingarinnar.
Morgunblaðið/Ófeigur
Undirbúningur Samtök grænmetisæta á Íslandi standa fyrir Vegan festivali á laugardag.
Morgunblaðið/Þórður
Kynnir Honey LaBronx, vegan aktí-
visti og dragdrottning.