Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 13
„Hveragerðisbær er blómum skrýddur og listamenn hafa gjarnan haft hér aðsetur. Þá sérstöðu undir- strikum við á bæjarhátíðinni okkar. Hún er ein sú elsta á landinu, er því orðin býsna föst í sessi og ómiss- andi hluti af menningu íbúa hér,“ segir Jóhanna Margrét Hjart- ardóttir, menningar- og frístunda- fulltrúi í Hveragerði. Hver dagskrárliðurinn rekur annan á Blómstrandi dögum í Hveragerði sem hefjast í dag, fimmtudag. Almenningshlaup er á dagskrá síðdegis í dag og í kvöld verður í Skyrgerðinni – áður Hótel Hveragerði – kvöldskemmtunin Af fingrum fram með tónlistarmönn- unum Jóni Ólafssyni og Gunnari Þórðarsyni. Þar munu þeir félagar rifja upp nokkur lög Gunnars sem hver maður kann. Er skemmtun þessi í sama stíl og vinsælir sjón- varpsþættir og seinna kvöld- skemmtanir sem Jón hefur verið með í Salnum í Kópavogi. Tónlist og hreyfing Með hlaupi og skemmtun í Skyr- gerðinni má segja að tónninn sé að nokkru leyti sleginn, tónlist og hreyfing. Má í því sambandi nefna að ágæt íþróttaaðstaða er í Hvera- gerði, göngu- og hjólreiðastígar liggja víða um bæinn og nágrenni hans og er Sundlaugin í Lauga- skarði þar miðpunktur. „Með því að útbúa hér margvíslega aðstöðu til hreyfingar og útiveru hafa bæjaryf- irvöld sýnt í verki vilja sinn til þess að fólk hér geti tileinkað sér heilsu- samlegan lífsstíl, eins og svo margir hafa gert,“ segir Jóhanna. Annað kvöld kl. 20.30 verða í Skyrgerðinni tónleikar þar sem Bryndís Ásmundóttir og hljóðfæra- leikarar flytja lög söngkonunnar Amy Winehouse. Tónlistarviðburð- irnir í þessum dúr eru reyndar fleiri og ýmsar stefnur í gangi. Má þar tiltaka að kl. 17 á sunnudaginn verður Artic-strengjakvartettinn með útgáfutónleika í Listasafni Ár- nesinga þar sem flutt verða íslensk þjóðlög og sönglög af nýútkomnum geisladiski. Hápunktur í bæjargarði Hápunktur Blómstrandi daga er sennilega skemmtun í bæjargarð- inum við Varmá klukkan 21 á laug- ardagskvöldið. Þar verður meðal annars tekinn brekkusöngur við brennu sem Ingó Veðurguð stjórn- ar. Á eftir verður flugeldasýning sem Hjálparsveit skáta sér um. Við þetta tilefni mun Hljómlistarfélag Hveragerðis svo færa bænum mjög falleg lag í tilefni af 70 ára afmæl- inu og eru flytjendur fjöldi tónlist- armanna sem búa í bænum. Þá verða verslanir og veitinga- staðir í Hveragerði með ýmis tilboð um helgina, haldnir verða markaðir og svo mætti áfram telja. Allt helst þetta í hendur við að löng hefð er fyrir því að fólk í Hveragerði geri sér dagamun þegar líða tekur á ágúst. Á Blómaballið svonefnda sér langa sögu, en það markaði í raun ákveðin uppskerulok á sumrinu. Sjötíu ára bær „Við Hvergerðingar kennum okk- ur við blóm í mörgu tilliti,“ segir Jóhanna og nefnir bæjarhátíðina Blómstrandi daga en einnig blóma- og garðyrkjusýninguna Blóm í bæ sem hefur verið haldin árlega í lok júní í Hveragerði. Þrátt fyrir þess- ar nafngiftir hefur þó sitthvað í bænum breyst frá því sem var, því gróðrarstöðvunum í bænum hefur fækkað og starfsemi þeirra breyst. „Hveragerðisbær, sem er 70 ára um þessar mundir, er nú og í ríkari mæli en áður orðinn ferða- mannabær, hér eru iðnfyrirtæki, heilsutengd starfsemi, blómarækt og mikið menningarlíf. Margir lista- menn hafa sest hér að en saman skapa þessir þættir skemmtilegan bæjarbrag eins og skýrt mun koma fram á Blómstrandi dögum sem nú eru að hefjast,“ segir Jóhanna Mar- grét Hjartardóttir að síðustu. Sjá nánar: hveragerdi.is og á fecebook Blómstrandi dagar í Hveragerði. sbs@mbl.is Blómin skapa bæjarbraginn  Blómstrandi dagar hefjast í dag  Hreyfing og listamenn  Tónninn er sleginn  Hveragerðislagið verður frumflutt í bæjargarðinum á laugardagskvöld  70 ára byggðarlag og bæjarhátíðin er ein sú elsta á landinu Litríkt Í Hveragerði vex allt og dafnar og bókstaflega blómstrar. Hvergerðingur Við kennum okkur við blóm, segir Jóhanna Margrét. Söngur Í bæjargarði tekur fólk lagið undir bláhimni. Tónlistarmenn færa bænum fallegt lag í tilefni af 70 ára afmæli sveitarfélagsins sem nú er. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hopp Haukur Davíðsson flýgur af stökkbretti í Laugaskarði. Sundlaugin er á fallegum stað og nýtur vinsælda. Gaman Líf og leikur við Hótel Örk á hátíðinni í Hveragerði á síðasta ári. BÆJARHÁTÍÐIR HVERAGERÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.