Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Að vanda mun Kjörís bjóða öllum til ísveislu á Blómstrandi dögum næstkomandi laugardag. „Þetta er í tíunda sinn sem Ísdagur Kjörís er haldinn og eins og undanfarin ár verður eitthvað fyrir alla og enda- laus ís í boði frá kl. 13-16. Rétt er að minna á að frystikistur verða út um allan bæ eins og undanfarin ár og hvetjum við gesti til að koma við á planinu hjá okkur en fá sér síðan göngutúr um bæinn okkar og gæða sér á ís á hinum ýmsu stöðum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss. Starfsmenn Kjöríss hafa verið að undirbúa sig síðustu mánuði og nú verða spennandi tegundir í boði. „Þar sem þetta er ár mikilla for- setakosninga höfum við ákveðið að vera með forsetaþema. Við munum bjóða upp á Guðna forseta og svo Hillaryís og Trumpís og þar vísum við til forsetakosninganna í Banda- ríkjunum. Auk þess verðum við með ís úr geitamjólk, reyktan ís og Flensuís, sem er svona fyrirbyggj- andi fullur af hollustu,“ segir Guð- rún. Nefnir einnig ís blandaðan kleinuhringjum sem vöruþróun- arfólk fyrirtæksins hefur unnið með að undanförnu og útkoman virðist ætla að verða alveg ljómandi góð. Tilhlökkunardagur Á sviði verður fjölbreytt dagskrá sem Felix Bergsson stýrir. Meðal listafólks sem þar kemur fram má nefna Ingó Veðurguð, Einar Mikael töframann, Lína Langsokk og hljómsveitina Sæluna. „Ísdagurinn er orðinn að miklum hátíðisdegi hjá okkur í Kjörís. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti gestum og fagna góðu sumri. Í Hveragerði verður mikil dagskrá alla helgina og tilvalið að skella sér austur fyrir fjall og njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða og þar er af nægu af taka,“ segir Guðrún. sbs@mbl.is Gómsætur Guðni forseti á ísdegi Ísdís Iris Eyþórsdóttir sinnir fram- leiðslu á mjúkís sem fer í öskju. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smakk Systkinin Valdimar og Guðrún Hafsteinsdóttir, eigendur og stjórn- endur Kjöríss, taka út gæði framleiðslunnar. Íspinnar eru afbragðsgóðir. Veisla Ísdagurinn nýtur vinsælda og oft er handagangur í öskjunni þegar þetta ljúfmetið í öllum sínum útgáfum er borið fram. Framleiðslan hjá Kjörís er fjölbreytt eins og gestir á hátíðinni um helgina fá væntanlega að kynnast.  Ísveisla á Blómstrandi dögum  Fyrir alla  Ýmsar spennandi tegundir Í tilefni af Blómstrandi dögum verður boðið upp á söguleiðangra um Hveragerðisbæ á laugardaginn. Ferðir verða kl. 12, 13, 14 og 15 á laugardag og verður lagt upp frá íþróttahúsinu. Fararskjótinn að þessu sinni verður Dodge Weapon, árgerð 1952, frá Guðmundi Tyrf- ingssyni ehf. Ekið verður um Hveragerði og þar mun Njörður Sigurðsson sagnfræðingur, sem er Hvergerðingur í húð og hár, segja frá því sem fyrir augu ber. Skáldaslóðir og tívolíið Í ferð Njarðar verður meðal ann- ars greint frá skáldunum sem bjuggu í Hveragerði um miðja 20. öldina og bjuggu við götuna Frum- skóga. Voru þetta höfundar á borð við Kristján frá Djúpalæk, Krist- mann Guðmundsson, Gunnar Bene- diktsson og Jóhannes úr Kötlum svo nokkrir séu nefndir. Einnig verður tæpt á sögu Mjólkurbús Ölf- usinga og sagt frá Kvennaskólanum á Hverabökkum, götunöfnum, fjór- um kynslóðum af þjóðvegum sem liggja í gegnum bæinn, Eden, mannlífinu við hverina og mörgu fleiru. Einnig tívolíinu sem starf- rækt var í Hveragerði fyrir um þrjátíu árum. Klufu sig úr Ölfusinu „Ég held að einn af hápunkt- unum í sögu Hveragerðis hljóti að vera þegar ákvörðun var tekin um að kljúfa byggðina úr Ölfushreppi árið 1946 og stofna sérstakt sveitar- félag, Hveragerðishrepp,“ segir Njörður Sigurðsson. „Það var félag sem nefndi sig Hreyfinguna sem hélt fund með íbúum sem kom mál- inu af stað. Í fundagerðarbók Ölf- ushrepps má sjá að hreppsnefnd- armönnum þar leist ekki vel á og töluðu um æsingafund nokkurra manna og barnalegt tiltæki. Þó varð úr að hreppurinn var stofnaður og nú er 70 ára afmæli sveitarfélagsins fagnað.“ sbs@mbl.is Fjórar kynslóðir þjóðvega  Fara á Dodge Weapon um sögu- slóðirnar í bænum Ljósmynd/Sigursteinn Ólafsson Hver Forðum var oft stoppað við Grýlu í Reykjadal við Hveragerði. Nú er allur dampur úr hvernum. Ljósmynd/Sigursteinn Ólafsson Útsýni Horft af gömlu Kambabrúninni niður að Hvera- gerði. Gamli þjóðvegurinn í hlykkjum, Mynd frá 1967. Sögumaður Njörður Sigurðsson mun fylgja fólki um áhugaverðar slóðir. Ýmsar sýningar og vinnustofur listamanna verða opnar á Blómstr- andi dögum, laugardag og sunnu- dag. Þar má nefna sýninguna Tímalög, í Listasafni Árnesinga en þar sýna Erla Þórarinsdóttur og Karl Kvaran. Á sýningunni er teflt saman verkum eftir listmálarann Karl Kvaran frá tímabilinu 1968- 1978, og málverkum og skúlptúr- um eftir Erlu sem hún hefur gert á síðasta áratug eða svo. „Hinn huglægi þáttur er eitt af því sem sameinar verk listamann- anna þar sem litur, form, lína, áferð og tækni skapa óhlutbundna myndheima. Í málverkum Erlu á sér stað ákveðið íhugunarferli þar sem andleg gildi leiða áhorfandann um innri hugarheima. Í list sinni leitaði Karl sífellt inn á við og leit- in að hinu klára og tæra var drif- krafturinn í list hans,“ segir í pistli á vef listasafnsins. Í bóka- safni Hveragerðis er ljós- myndasýning Sigurbjörns Bjarna- sonar, í garðyrkjustöð Ingibjargar sýnir Jakob Veigar myndlist í gróðurhúsi og svo mætti áfram telja. Einnig má sjá myndskreytingar á uppistandandi rústum gróðr- arskálans Eden, og eru þær eftir listamanninn Örvar Árdal. Listabær Gufustrókur yfir Hveragerði. Kirkjan er áberandi í bæjarmynd. Formin, línurnar, áferð og Eden  Listviðburðir um allan bæinn Karl Kvaran Erla Þórarinsdóttir BÆJARHÁTÍÐIR HVERAGERÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.