Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 16

Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Loftkæling Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 og varmadælur Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Donald Trump, forsetaefni repúblik- ana, sætti í gær gagnrýni vegna mjög óskýrra ummæla sem hann viðhafði um Hillary Clinton, forseta- efni demókrata. Auðkýfingurinn var sakaður um að hafa hvatt byssueig- endur til ofbeldis en hann neitaði því. Í ummælunum sem deilt er um skírskotar Trump til annars viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna, sem tryggir íbúunum rétt til að eiga og bera byssu, og hann bendir á að lík- legt sé að næsti forseti Bandaríkj- anna velji tvo til þrjá dómara í hæstarétt landsins. Túlka má orð hans á fleiri en einn veg. „Hillary vill afnema – í meginat- riðum afnema annan viðaukann,“ sagði Trump á kosningafundi í borg- inni Wilmington í Norður-Karólínu í fyrradag. „Meðal annarra orða, ef hún fær að velja dómarana getið þið ekkert gert, fólk. Þó að fólkið sem styður annan viðaukann geti það ef til vill, ég veit það ekki.“ Robert Mook, kosningastjóri Hillary Clinton, sagði í stuttri yfir- lýsingu að ummælin væru hættuleg. „Maður sem sækist eftir því að verða forseti Bandaríkjanna ætti ekki að leggja til ofbeldi á nokkurn hátt.“ Öldungadeildarþingmaðurinn Chris Murphy, sem vill breytingar á lögum um byssueign, sagði að í orð- um Trumps fælist „hótun um bana- tilræði“. „Trump er annað hvort að hvetja til vopnaðrar uppreisnar eða morðs á andstæðingi sínum,“ sagði demókratinn David Cicilline, sem á sæti í fulltrúadeild þingsins. Michael Hayden, fyrrverandi for- stjóri leyniþjónustunnar CIA, gagn- rýndi einnig ummælin. „Í þessu felst annað hvort mjög ósmekkleg skír- skotun til pólitísks morðs og tilraun til að vera fyndinn, eða ótrúlegt kaldlyndi,“ sagði Hayden í viðtali við CNN-sjónvarpið. Hann er á meðal 50 fyrrverandi embættismanna úr röðum repúblikana sem gagnrýndu Trump í opnu bréfi á mánudag, sögðu að hann gæti ógnað öryggi landsins og yrði „glæfralegasti for- setinn í sögu Bandaríkjanna“ færi hann með sigur af hólmi í kosning- unum 8. nóvember. Leyniþjónusta heimavarnaráðu- neytis Bandaríkjanna, sem hefur það hlutverk að vernda forsetaefnin, kvaðst „vita af ummælunum“ en sagði ekkert um hvort ástæða væri til að rannsaka hvort Trump hefði hvatt til ofbeldis. Sakar fjölmiðla um „samsæri“ Trump sagði að ekkert væri hæft í þessum ásökunum og hann hefði að- eins skorað á stuðningsmenn sína að neyta atkvæðisréttar síns til að koma í veg fyrir að Hillary Clinton yrði forseti. „Þetta er öflug pólitísk hreyfing,“ sagði hann um stuðn- ingsmenn óskerts réttar til byssueignar. Rudy Giuliani, fyrrver- andi borgarstjóri New York, varði ummælin þeg- ar hann tók þátt í kosn- ingafundi með Trump í Norður-- Karólínu. Hann sak- aði bandaríska fjöl- miðla um að hafa rangtúlkað orð forsetaefnisins og tekið þátt í „sam- særi um að kjósa Hillary Clinton“. Hvatt til aftöku Á kosningafundum sínum hefur Trump kallað Clinton „glæpamann“ og stuðningsmenn hans hafa hrópað vígorð um að hneppa ætti hana í fangelsi. Einn ráðgjafa Trumps, Al Baldasaro, sagði í útvarpsviðtali að draga ætti Hillary Clinton fyrir af- tökusveit og „skjóta hana fyrir land- ráð“ vegna þess að hún bæri ábyrgð á dauða fjögurra Bandaríkjamanna í Benghazi í Líbíu árið 2012 þegar hún var utanríkisráðherra. Ekkert bendir til þess að Clinton vilji afnema annan viðauka stjórnar- skrárinnar eða ákvæðið um réttinn til byssueignar, enda væri slík breyt- ing háð samþykki tveggja þriðju hluta þingsins í Washington eða sérstaks stjórnarskrárþings og síðan þriggja af hverjum fjórum þingum sambandsríkjanna. Hillary Clinton er á hinn bóginn hlynnt breyting- um á byssulöggjöfinni og hertu eftirliti með sölu á byssum til að fækka manndráp- um í Banda- ríkjunum. Neitar því að hann hafi hvatt til morðs  Donald Trump sakaður um að hafa hvatt til ofbeldis Félagar í mannréttindasamtökum komu saman í kirkju í Manila í gær til að mótmæla aftökum án dóms og laga á Filippseyjum. Fjölmiðlar í landinu segja að 852 meintir fíkniefnasalar hafi verið teknir af lífi án dóms og laga frá því að Rodrigo Duterte varð forseti Filippseyja í lok júní. Aftökum án dóms og laga mótmælt á Filippseyjum Hundruð manna líflátin AFP Listamaðurinn Scott LoBaido hefur sett upp nýtt verk til stuðnings Donald Trump í garði vinar síns í New York í stað annars sem brennuvargar kveiktu í á dögunum. Verkið er stórt T, skreytt með stjörnum og hvítum og rauðum röndum eins og bandaríski fáninn. Fyrra verkið var um 3,6 metra hátt en það nýja er enn hærra, eða um 4,8 metrar. Listamaðurinn neitar því ekki að hann styðji Trump og T-ið sé honum til heiðurs, en segir að það geti einnig merkt „tolerance“ (umburðarlyndi). AFP Listaverk til stuðnings Trump Donald Trump Nýjustu fylgiskannanir í Bandaríkj- unum benda til þess að Hillary Clinton hafi verulegt forskot á Donald Trump, meðal annars í Ohio og Pennsylvaníu, sem eru á meðal þeirra ríkja sem talin eru geta ráðið úrslitum í forsetakosn- ingunum 8. nóvember. Þau standa hins vegar jöfn að vígi í Flórída sem gæti einnig haft mikið vægi í kosningunum. Ný könnun The New York Times bendir til þess að stuðningurinn við Trump meðal kvenna, sem styðja repúblikana, hafi minnkað um þrettán prósentustig í 72% frá landsþingum flokkanna í síðasta mánuði. Trump er með mun minna fylgi í þessum kjósendahópi en síðustu þrjú forsetaefni repúblikana. Um 93% kvenna úr röð- um stuðnings- manna repú- blikana studdu Mitt Romney árið 2012, 89% studdu John McCain fjórum árum áður og 93% George W. Bush árið 2004. Trump er með mjög lítið fylgi meðal kvenna, eða aðeins 27%, en um 58% þeirra segjast ætla að kjósa Hillary Clinton. Trump missir fylgi meðal kvenna sem styðja repúblikana AÐEINS 27% KVENNA STYÐJA FORSETAEFNI REPÚBLIKANA Hillary Clinton

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.