Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Hvernig væri að bjóða fjölskyldunni út að borða?
Um helgina fá börn 12 ára og yngri* frítt að borða með fjölskyldunni á veitingastaðnum
HVER á Hótel Örk. Við nostrum við matinn og bjóðum fjölbreyttan barnamatseðil.
Njótum Blómstrandi daga saman! Borðapantanir í síma 483 4700.
*Miðast við eitt barn fyrir hvern fullorðinn.
Frítt fyrir börn á
Blómstrandi dögum
12.–14. ágúst
H V E R A G E R Ð I
Að minnsta kosti þrír menn hafa
látið lífið í skógareldum á portú-
gölsku eyjunni Madeira og einn á
meginlandi Portúgals. Tveir til við-
bótar eru á sjúkrahúsi á Madeira
með alvarleg brunasár, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Um 1.000 ferðamenn og íbúar á
eyjunni hafa þurft að flýja dvalar-
staði sína. Um 30 heimili og eitt hót-
el hafa eyðilagst í eldunum.
Þeir sem létu lífið á eyjunni
bjuggu í tveimur húsum sem urðu
eldi að bráð nálægt elsta hluta
höfuðstaðarins Funchal. Um 300
manns hafa fengið aðhlynningu
vegna reykeitrunar og minni háttar
brunasára, að sögn björgunar-
manna á staðnum.
Á meðal þeirra sem hafa þurft að
flýja í Funchal eru um 140 gestir
hótels nálægt skógareldi sem
kviknaði á mánudag og færðist í
aukana í fyrradag. Fólkið dvelur nú
á íþróttaleikvangi í bænum, að því
er fram kemur í frétt AFP.
Skæðir
eldar á
Madeira
Þrír látnir og
1.000 hafa flúið
AFP
Skógareldar Slökkviliðsmaður að
störfum á Madeira-eyju.
Efri deild þingsins í Brasilíu sam-
þykkti í gær með miklum meirihluta
atkvæða að hefja réttarhöld vegna
ákæru til embættismissis á hendur
Dilmu Rousseff sem varð fyrst
kvenna til að gegna embætti forseta
landsins árið 2011.
59 þingmenn efri deildarinnar
greiddu atkvæði með réttarhöldun-
um en 21 á móti. Þau eiga að hefjast
25. ágúst, fjórum dögum eftir að Ól-
ympíuleikunum í Río de Janeiro lýk-
ur. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin
standi í fimm daga og þeim á að ljúka
með atkvæðagreiðslu um hvort
svipta eigi Rousseff embættinu.
Efri deildin samþykkti 12. maí að
leysa Rousseff frá störfum tíma-
bundið vegna ásakana um að hún
hefði hagrætt ríkisreikningum til að
fela mikinn fjárlagahalla. Talið er að
flestir þingmannanna sem studdu
málshöfðunina hafi lagst gegn
Rousseff vegna mikillar óánægju al-
mennings með efnahagsóstjórn
hennar og spillingu sem hefur gegn-
sýrt stjórnkerfið. Rousseff er sökuð
um að hafa reynt að hindra rannsókn
á spillingunni, m.a. mútugreiðslum
til stjórnmálamanna Verkamanna-
flokksins og fleiri flokka. Forveri
hennar í forsetaembættinu, Luiz
Inacio Lula da Silva, hefur verið
ákærður fyrir að hafa hindrað rann-
sókn á spillingunni.
Michel Temer varaforseti tók við
forsetaembættinu til bráðabirgða og
myndaði nýja ríkistjórn í maí en nýt-
ur mjög lítil stuðnings.
Réttarhöld samþykkt
AFP
Ólga Andstæðingar Dilmu Rousseff mótmæla við þinghúsið í Brasilíuborg.
Málshöfðun til embættismissis á hendur Rousseff
Innanríkis-
ráðherra Þýska-
lands, Thomas de
Maizière, vill að
sett verði bann
við búrkum,
hefðbundnum
klæðnaði músl-
ímakvenna, sem
hylja allan líkam-
ann nema augun.
Þá vill hann
senda afbrotamenn hraðar úr landi
en nú er gert og slaka á reglum um
trúnað lækna ef þeir gruna sjúkling
um að undirbúa hryðjuverk.
Fáar reglur gilda um klæðaburð í
Þýskalandi, en nefnd sem ræddi
búrkubann komst að þeirri niður-
stöðu árið 2012 að slíkt bann sam-
ræmdist ekki stjórnarskránni.
Tiltölulega fáar konur klæðast
búrkum í Þýskalandi. Búrkur hafa
verið bannaðar í öðrum Evrópu-
löndum, t.a.m. í Frakklandi, Belgíu
og nokkrum bæjum á Ítalíu, að
sögn fréttavefjar BBC.
Innanríkisráðherra
vill bann við búrkum
Thomas de
Maizière
ÞÝSKALAND