Morgunblaðið - 11.08.2016, Side 19

Morgunblaðið - 11.08.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Rammi Bakgrunnurinn getur skipt máli og sjálfsmynd með Reynisdranga í baksýn er ekki slæm hugmynd. Ómar Mörgum rennur kalt vatn milli skinns og hör- unds vegna ástandsins í Tyrklandi og er ekki að undra. Tyrkland er eitt af 28 aðildarþjóðum Atl- antshafsbandalagsins og eftir að misheppnuð valdaránstilraun var gerð þar á dögunum herðir Erdogan forseti landsins tök sín til muna. Ný neyðarlög sem hafa verið sett gefa honum gríð- arleg völd sem gera hann nánast ein- ráðan. Í landinu fara fram miklar hreinsanir í stjórnkerfinu og í skóla- kerfinu þar sem meintir andstæð- ingar forsetans eru reknir og aðrir honum hiðhollir settir í staðinn. Enginn veit hvaða áhrif ástandið í Tyrklandi mun hafa á varnar- og ör- yggismál í Evrópu og samvinnuna innan NATO. Hvaða mann hefur Erdogan að geyma? Hver eru helstu persónueinkenni hins 62 ára Tayyip Erdogan? Sumir sérfræðingar lýsa honum sem árás- argjörnum manni sem þrífst á stöð- ugum pólitískum árekstrum sem sýni keppinautum sínum enga mis- kunn. Aðrir sjá hann sem leiðtoga með mikla persónutöfra og raunhæf markmið; leiðtoga sem getur blásið stuðningsmönnum sínum bar- áttuanda í brjóst. Loks eru þeir sem segja að Erdogan sé úlfur í sauða- gæru sem bíði eftir næsta tækifæri til að hrinda í fram- kvæmd áætlunum sín- um um að koma á ein- ræði. Hvað sem má um persónuleika Erdog- ans segja þá veit það ekki á gott þegar stjórnmálamaður í æðstu stöðu er eins hégómlegur og við- kvæmur fyrir eigin persónu og raun ber vitni með Erdogan. Samkvæmt tyrkneskum lögum frá 1926 er nefnilega ólöglegt að móðga forseta landsins, en mjög sjaldgæft var að á lagabókstafinn væri látið reyna fyrr en Erdogan tók við völd- um. Ólöglegt að móðga forsetann Tyrkland er afar mikilvægt ríki innan NATO og því gríðarlegir hagsmunir fyrir Ísland sem og önn- ur ríki sem eiga aðild að Atlantshafs- bandalaginu að þar sé stjórnarfar að hætti lýðræðisríkja, en margt horfir því miður í aðra átt. Eftir Elínu Hirst »Enginn veit hvaða áhrif ástandið í Tyrklandi muni hafa á varnar- og öryggismál í Evrópu og samvinnuna innan NATO. Elín Hirst Höfundur er alþingismaður og á sæti í utanríkismálanefnd Alþingis. Ógnvænleg þróun í Tyrklandi Tilraun færeyskra stjórnvalda með uppboð á takmörkuðum hluta aflaheimilda Færeyinga hefur vakið nokkra um- ræðu hér á landi. Eðli- lega er nú tekist á um það í Færeyjum hvort uppboð almennt og aðferðafræðin sé skyn- samleg leið við gjaldtöku af færeyskum sjávar- útvegi og þá hvort það þjóni þjóð- arhagsmunum Færeyinga. Þegar gerð er tilraun til að yfirfæra reynslu af þessum uppboðum Færeyinga yfir á íslenskan veruleika er eðlilegt að horfa til samhengis hlutanna. Efnahagur og ástand fiskistofna Færeyingar hafa um langt skeið átt í nokkrum efnahagsvanda sem er helst til kominn vegna þess hversu einhæfir útflutningsatvinnuvegir þeirra eru, en sjávarútvegur er meg- instoð efnahagskerfis þeirra (fisk- veiðar og fiskvinnsla, fóðurfram- leiðsla og fiskeldi). Hefðbundnar botnfiskveiðar á heimamiðum Fær- eyinga hafa því miður litlu skilað undanfarin mörg ár (sjá mynd 1). Færeyingum hefur ekki auðnast að ná utan um stjórn botnfiskveiða á heimamiðum og efla fiskistofna sína (sjá mynd 2), enda ekki heppilegir hvatar til þess í fiskidagakerfi því sem Færeyingar nota við stjórn veið- anna. Þá standa eftir veiðar á upp- sjávarfiski – makríl, norsk-íslenskri síld, kolmunna og loðnu – en í þeim veiðum hefur gengið vel nokkur undanfarin ár, auk botnfiskveiða í Barentshafi (mest þorskur). Þessar fiskveiðar eru tæknivæddar og fjár- magnsfrekar og í höndum mun færri aðila en hefðbundnar botnfiskveiðar á heimamiðum. Þetta er því á vissan hátt sitt hvor kúltúrinn, annars vegar hefðbundnar botnfiskveiðar Fær- eyinga á heimamiðum, sem stjórnað er með sóknarmarki í fiskidagakerf- inu, og hins vegar tæknivæddar upp- sjávarveiðar auk botnfiskveiða í Barentshafi. Rótin er uppsjávarfiskur Umræðan í Færeyjum núna og uppboð aflaheimilda snýst ekki um hefðbundnar botnfiskveiðar á heimamiðum, enda ekkert til að bjóða upp þar vegna bágborinnar stöðu helstu fiskistofna, heldur snýst hún um hlut ríkissjóðs í því sem gef- ur meira af sér hjá þeim, þ.e.a.s. veiðum á uppsjávarfiski og botnfisk- veiðum í Barentshafi. Uppboðin ná aðeins til lítils hluta þessara afla- heimilda eða sem nemur um 8-9% af heildaraflaheimildum Færeyja í kol- munna, síld og makríl. Þá eru um 11% af botnfiskheimildum Fær- eyinga í Barentshafi einnig boðin upp. Uppruni aflaheimildanna sem boðnar eru upp er að stofni til úr sameiginlegum fiskistofnum strand- ríkja í Norðaustur-Atlantshafi. Hlutur Færeyinga Fyrir liggur að Færeyingar hafa sagt sig frá milliríkjasamningum um stjórn veiða úr sameiginlegum stofn- um kolmunna og síldar. Í kjölfarið hafa þeir sett sér einhliða kvóta í þessum tegundum langt umfram þann hlut sem þeir áttu skv. samn- ingum og höfðu áður samið um. Þannig hafa þeir sett sér einhliða kvóta í norsk-íslenskri síld í ár sem nemur rúmlega 56 þúsund tonnum eða um 17,7% af veiðiráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES), en hlutdeild þeirra samkvæmt síldar- samningi var 5,16% og er því um rúmlega þreföldun að ræða miðað við fyrri hlut. Í kolmunna hafa Fær- eyingar sett sér tæplega 276 þúsund tonna heildarafla í ár, eða sem nemur um 35,5% af ráðgjöf ICES en hlutur þeirra skv. kolmunnasamningi var tæplega 25%. Auk þess færðu þeir liðlega 71 þúsund tonn á milli ára af óveiddum heimildum en á síðasta ári gáfu þeir út rúmlega 100 þúsund tonna viðbótarkvóta í kolmunna sem engin leið var að þeir næðu að veiða. Á sama tíma hefur Ísland ákvarðað heildarafla sinn í þessum tegundum síðustu ár á grundvelli fyrri samn- inga í síld og kolmunna. Í skiptum fyrir uppsjávarfisk Botnfiskinn í Barentshafi, bæði í norskri og rússneskri lögsögu, fá Færeyingar á grundvelli tvíhliða samninga þar sem þeir greiða fyrir veiðiréttinn fyrst og fremst með framsali á veiðiheimildum í uppsjáv- arfiski (kolmunna, síld og makríl) og í skiptum fyrir aðgang erlendra skipa til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu Færeyja. Þannig fá Færeyingar til að mynda í ár um 20.000 tonn af botnfiski frá Rússum og láta í staðinn 81.000 tonn af kolmunna, 14.500 tonn af makríl og 10.000 tonn af norsk- íslenskri síld. Þessar umræddu aflaheimildir úr sameiginlegum stofnum uppsjáv- arfiska nota þeir nú að hluta til beinnar sölu á uppboði og að hluta sem skiptimynt fyrir veiðiheimildir í Barentshafi sem líka eru að hluta seldar á uppboði. Aflaheimildirnar sem þeir bjóða upp eiga því rót sína a.m.k. að hluta til í því sem þeir taka sér einhliða úr sameiginlegum fiski- stofnum þar sem ekki hafa náðst samningar um heildstæða veiði- stjórnun. Þá eru Færeyingar aðilar að þríhliða samningi um stjórn mak- rílveiða og voru þannig þátttakendur í því að skilja Ísland eftir utan samn- ings um makrílveiðar. Eftir Kristján Þór- arinsson og Steinar Inga Matthíasson » Þegar gerð er tilraun til að yfirfæra reynslu af þessum upp- boðum Færeyinga yfir á íslenskan veruleika er eðlilegt að horfa til samhengis hlutanna. Kristján er stofnvistfræðingur SFS. Steinar Ingi er sérfræðingur í alþjóða- málum hjá SFS. Samhengi hlutanna – af uppboðstilraunum Færeyinga Kristján Þórarinsson Steinar Ingi Matthíasson Hrygningarstofn þorsks við Færeyjar 140.000 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 Tonn Hrygningarstofn Varúðarmörk 19 57 19 60 19 63 19 69 19 66 19 72 19 75 19 78 19 8 1 19 84 19 87 19 90 19 93 19 9 6 19 99 20 02 20 05 20 0 8 20 11 20 14 Heimild: Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES)Mynd 2 Ársafli þorsks og ýsu við Færeyjar 70 Þúsundir tonna 60 50 Þorskur Ýsa 40 30 20 10 19 87 19 88 19 89 19 9 1 19 90 19 92 19 93 19 94 19 9 5 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 0 1 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 20 15 20 16 0 Heimild: Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES)Mynd 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.