Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 20

Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 SMYRJA SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ IB ehf • Fossnes 14 • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Nánari uppl á Facebook síðu IB ehf Ford F-350 Lariat Super Cab Chevrolet Suburban LTZ 4WD GMC Sierra með All Terrain pakka Allt frá því að Mýrdalshreppur varð til árið 1984 með sameiningu Hvamms- og Dyr- hólahrepps, hefur framsýnt fólk unnið að því að fá láglend- isveg um Mýrdalinn með göngum í gegn um Reynisfjall. Þetta sjálfsagða nauð- synjamál hefur samt verið torsóttara en okkur grunaði af ýmsum ástæðum sem ekki verða raktar hér. Á þeim tíma var aðallega verið að hugsa um hagræðinguna af samgöngum inn- an héraðs. Mönnum var þá í fersku minni snjóaveturnir á átt- unda áratugnum, þegar „Víkin“, en svo nefnist fjallaskarðið inn af þorpinu í Vík, nú alltaf ranglega kallað Reynisfjall, lokaðist oft svo dögum skipti. Svona snjóavetur geta hæglega komið aftur. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjáv- ar. Allir þunga- og vöruflutningar hafa flust á vegina og sprenging orðið í umferð, mest vegna er- lendra ferðamanna. Grunn- og leikskólakennsla fer nú öll fram í Vík og skólabílar þurfa að fara með nemendur um þennan veg tvisvar á dag. Þörfin fyrir þessar samgöngubætur vex því ár frá ári. Yrði þessi nýi vegur að veru- leika þyrftu vegfarendur ekki lengur að fara um Gatnabrún, eina ill- ræmdustu brekkuna á hringveginum og er þá skemmst að minn- ast banaslyss sem varð þar í vor. Einnig er Víkin, fjallaskarðið þar sem fleiri og færri bílar fjúka út af veginum á hverjum einasta vetri, afleitur kafli að ekki sé talað um að hafa þjóðveg- inn í gegnum íbúða- hverfi í þorpinu sjálfu, með tilheyrandi slysa- hættu og ónæði. Þá myndu veg- farendur líka losna við Skarphól, sem er brött brekka, auk hinna stórhættulegu vegamóta við Dyr- hólaeyjarveg, sem eru líklega ein hin verstu á Suðurlandsvegi. Með þessari framkvæmd yrði útrýmt síðustu brekkum og fjallvegum frá Kömbum austur á Reyð- arfjörð. Aftur á móti eru engin haldbær rök sem mæla gegn þessari framkvæmd önnur en spurningin um hvernig á að for- gangsraða fjármunum sem lögð eru til vegamála. Sveitarstjórn og íbúar hér hafa fyrir löngu unnið sína heimavinnu og komið þessari nýju veglínu inn á aðalskipulag Mýrdalshrepps. Nú er því komið að þingmönnum okkar Sunnlend- inga og yfirvöldum vegamála að hrinda þessu þjóðþrifamáli af stað. Samkvæmt umferðartaln- ingu Vegagerðarinnar fóru um veginn að meðaltali 3.300 bílar á sólarhring í nýliðnum júlímánuði. Stytting miðað við nýja veglínu eru 3 km. Þar sem einnig sparast að klifra upp í 120 m hæð miða ég við 3,5 km styttingu og tel það varlega áætlað, ef litið er til elds- neytiseyðslu og útblásturs. Út frá þessu er svo hægt að leika sér með tölur um það, hvað vegfar- endur og þjóðfélagið í heild myndu spara í krónum við þessa framkvæmd. Dæmið lítur svona út: 3.300 bílar x 3,5 km x 31 dagur = 358.050 km. Umreiknað í krónur á almennu kílómetragjaldi ríkisstarfsmanna sem er í ár kr. 110 pr. km. Þarna er þó ekki tekið tillit til umferðar stærri bíla þannig að enn er gætt mikillar hófsemi. 358.050 km x 110 = kr. 39.385.500 á aðeins einum mán- uði! Sennilega er ekki hægt að benda á margar fyrirhugaðar vegaframkvæmdir á landinu sem tækju þessari fram í arðsemi og minnkaðri slysahættu. Vegamál í Mýrdal Eftir Þóri N. Kjartansson »Með þessari fram-kvæmd yrði útrýmt síðustu brekkum og fjallvegum frá Kömbum austur á Reyðarfjörð. Þórir N. Kjartansson Höfundur er fv. framkvæmdastjóri Víkurprjóns í Vík. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.