Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR:
Optical Studio Smáralind
Optical Studio Keflavík
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
ERTU Á LE IÐ T I L ÚTLANDA?
KAUPAUKI
Með öllum margskiptum glerjum** fylgir
með í sama styrkleika.
Tilvalið sem sólgleraugu eða varagleraugu.
** Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler.
Módel: Hrönn Johannsen
Gleraugu: Lindberg
Sigurgeir B. Krist-
geirsson, fram-
kvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar
hf. í Vestmannaeyjum
(VSV), telur að ég hafi
farið með ranga
„sagnfræði“ í grein
minni, Er ekki mál að
linni?, sem birtist í
Morgunblaðinu laug-
ardaginn 30. júlí sl. Í
svargrein, sem birtist
laugardaginn 6. ágúst, leiðréttir
hann dagsetningu mína á flutningi
kvóta Meitilsins frá Þorlákshöfn
til Vestmannaeyja í kjölfar þess
að VSV keypti Meitilinn. Þakka ég
honum fyrir þá leiðréttingu. Hún
breytir þó engu um þá staðreynd
að kvóti Meitilsins hvarf til Vest-
mannaeyja þrátt fyrir fyrirheit
um annað, þegar kaupin áttu sér
stað.
Sigurgeir rifjar síðan upp nokk-
ur helstu atriði í rekstri VSV síð-
ustu tuttugu árin og er sú upp-
rifjun öll hin fróðlegasta.
Samkvæmt lýsingu Sigurgeirs
mætti kalla sögu VSV frá 1999
nokkurs konar ferðasögu frá ör-
birgð til allsnægta (e. rags to rich-
es), enda segir hún frá fyrirtæki,
sem stefndi í gjaldþrot en tókst
m.a. með flutningi kvóta frá Þor-
lákshöfn til Eyja að snúa við
blaðinu og er nú orðið eitt stönd-
ugasta fyrirtæki landsins, að sögn
Sigurgeirs, sem vitnar í Creditinfo
máli sínu til stuðnings.
Þetta er hin hliðin á peningnum.
Fiskveiðistjórnunarkerfið vinnur
einmitt með stærri
útgerðarfyrirtækjum,
sem ráða yfir ríku-
legum aflaheimildum
í bolfiski og þó sér-
staklega uppsjáv-
arveiðum. Með að-
stoð bankanna nýta
þessi fyrirtæki arð-
inn af uppsjáv-
arveiðum til að kaupa
upp kvótann af
smærri fyrirtækjum,
sem bankarnir neyða
til að láta kvótann af
hendi í skuldaskilum.
Grein mín snerist ekki um
„sagnfræði“, enda er ég ekki
sagnfræðingur. Þó vikið sé að því
að sú samþjöppun kvóta, sem nú á
sér stað í íslenskum sjávarútvegi,
hafi verið í gangi um árabil þýðir
það ekki að um „sagnfræðirit-
gerð“ sé að ræða. Það getur verið
erfitt að breyta því sem orðið er
en við getum brugðist við þeim
vanda sem við blasir í dag. Það
skiptir máli að horfa fram á veg-
inn og forðast að endurtaka mis-
tök sem gerð hafa verið eða festa
rangar ákvarðanir í sessi.
Þjóðhagslega óhagkvæmt
Þó að viss hagræðing geti falist
í stærð er engin þjóðhagsleg hag-
kvæmni í því fólgin að koma öllum
aflaheimildum á Íslandsmiðum í
hendur örfárra risafyrirtækja. Ef-
laust er það gott fyrir eigendur
þessara fyrirtækja en ekki fyrir
önnur fyrirtæki í geiranum og
byggðarlög, sem ekki eru heima-
stöðvar stórútgerðarinnar.
Nú getur verið að einhverjum
sé alveg sama um þá byggð-
aröskun sem núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfi og framferði
bankanna í skuldaskilum smærri
fyrirtækja og lánveitinga til sam-
þjöppunar kvóta leiðir af sér. Það
er sennilega bara mannlegt að
styðja kerfi, sem býr til mikla vel-
sæld í manns eigin ranni þó að
slíkt sé á kostnað annarra. Út frá
þjóðarhagsmunum er hins vegar
óskynsamlegt að byggja upp kerfi
sem úthlutar takmarkaðri auðlind
í hendur fárra án þess að búa svo
um hnútana að tryggt sé á gegn-
sæjan hátt að markaðurinn ákveði
endurgjald til eigandans fyrir af-
not af auðlindinni.
Það er einmitt þessi markaðs-
lausn við verðlagningu á aðgangi
að fiskinum í sjónum, sem vantar
algerlega í íslenska fiskveiði-
stjórnunarkerfið. Kvótanum er út-
hlutað til æ færri sjávarútvegsfyr-
irtækja og hann niðurgreiddur um
tugi milljarða á ári hverju með því
að kvótahafarnir greiða einungis
brotabrot af þeim verðmætum
sem þeir fá afhent.
Hagnaðurinn til bankanna
og stórútgerðarinnar
Af þessum sökum lendir hagn-
aðurinn af hinni takmörkuðu auð-
lind í vasa bankamanna og stór-
útgerðarmanna – ekki í höndum
þjóðarinnar. Talsmenn kerfisins
beita fyrir sig brauðmolahagfræði,
sem fyrir löngu hefur verið sýnt
fram á að ekki stenst, til að reyna
að réttlæta þessa gjafaúthlutun til
stórútgerðarinnar. Af því stór-
útgerðin greiðir skatta af hagnaði
sínum og ræður fólk í vinnu eigum
við hin bara að vera ánægð, þegja
og þakka fyrir að íslenska þjóðin
skuli vera svo heppin að eiga
svona góða útgerðarmenn.
En það er hins vegar ekkert
sérlega þjóðhagslega hagkvæmt
þegar stórútgerð, sem fær nið-
urgreiddan kvóta og getur látið
aflann ganga áfram til eigin
vinnslu á 40-50 prósent lægra
verði en kvótalausar vinnslur
þurfa að greiða fyrir hráefni sitt á
fiskmörkuðum, nýtir sér kostn-
aðarhagkvæmni sína í samkeppni
við önnur íslensk fyrirtæki á er-
lendum mörkuðum með því að
bjóða lægra verð til erlendra
kaupenda en kvótalausu vinnsl-
urnar geta boðið. Þetta beinlínis
lækkar útflutningstekjur þjóð-
arbúsins og skaðar því þjóð-
arhagsmuni.
Þetta er ekki „sagnfræði“ held-
ur veruleiki úr samtímanum. Ekki
er nóg með að íslenska fisk-
veiðistjórnunarkerfið sogi kvótann
úr hverju byggðarlaginu á fætur
öðru heldur skerðir það beinlínis
útflutningstekjur þjóðarinnar.
Þetta er alvöru vandamál. Já, er
ekki mál að linni?
Ekki „sagnfræði“ heldur veruleiki!
Eftir Ólaf
Arnarson » Íslenska fiskveiði-
stjórnunarkerfið
sogar kvótann úr hverju
byggðarlaginu á fætur
öðru og skerðir útflutn-
ingstekjur þjóðarinnar.
Er ekki mál að linni?
Ólafur
Arnarson
Höfundur er hagfræðingur og hefur
starfað að verkefnum fyrir Samtök
fiskframleiðenda og útflytjenda.
Eftir vel hepnaða Þjóðhátíð viljum
við starfsmenn hjá Viking Tours
Vestmannaeyjum þakka Þjóðhátíð-
argestum fyrir frábæra helgi. Allir
þeir gestir sem við fluttum til og frá
Vestmannaeyjum voru til einstakrar
fyrirmyndar. Gegnum árin hafa ung-
ir sem eldri Íslendingar flykkst á
Þjóðhátíð og framkoma þeirra hefur
sífellt farið batnandi. Kurteisi og til-
litsemi gæti hafa verið yfirskrift
þessarar hátíðar.
Enn og aftur, þökkum ykkur fyrir
komuna til Eyja og sjáumst að ári.
Starfsfólk Viking Tours,
Vestmannaeyjum
Þakklæti til
Þjóðhátíðargesta
Þjóðhátíð Margt var um manninn í
Vestmannaeyjum.
Velvakandi Svarað í síma
569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/GSH