Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 ✝ HalldórSigurðsson fæddist að Val- þjófsstöðum í Núpasveit, 11. febr- úar 1925. Hann lést 2. ágúst 2016. Hann var sonur hjónanna Sigurðar Halldórssonar, f. 11.1. 1886, d. 15.10. 1972, og Ingunnar Árnadóttur, f. 8.11. 1899, d. 22.3 .1983, bænda á Valþjófsstöðum. Systkini Hall- dórs eru Guðrún Hólmfríður, f. 20.5. 1921, Árni, f. 10.4. 1927, d. 15.10. 2010, og Gunnlaugur, f. 2.1. 1932. Halldór kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristveigu Björnsdóttur, 20. september 1950. Kristveig fæddist á Kópa- skeri 2. janúar 1927, dóttir hjónanna Rannveigar Gunn- arsdóttur, húsfreyju, og Björns Kristjánssonar, kaupfélags- stjóra. Börn Halldórs og Krist- veigar eru: 1) Sigurður, f. 1951, læknir. Eiginkona hans er Ingunn Stefanía Svav- arsdóttir. Þeirra börn eru: Kristbjörg, f. 1974, Kristveig, f. Tryggvason. Börn þeirra eru: Ingunn Sif, f. 1986, Tryggvi, f. 1988, og Berglind, f. 1995. Þau eiga tvö barnabörn. 6) Rann- veig, f. 1964, hársnyrtir. Eigin- maður hennar er Guðmundur Magnússon. Börn þeirra eru: Ágúst Örn, f. 1988, Kristveig Halla, f. 1991, og Fanney Svava, f. 1996. Þau eiga eitt barnabarn. Halldór ólst upp á Valþjófs- stöðum og lauk sínu grunn- námi í heimabyggð, nam einn vetur að Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði og að því loknu einn vetur á Héraðsskól- anum á Laugarvatni. Hann hóf búskap á Valþjófsstöðum 1949 og hefur rekið þar sauðfjárbú ásamt fjölskyldu sinni allar götur síðan, í eigin nafni fram á síðasta ár. Síðustu 37 árin hefur búskapurinn verið í sam- býli við Björn son hans og fjöl- skyldu. Halldór sinnti auk bú- skapar margvíslegum störfum í þágu sveitar og samfélagsins. Síðast en ekki síst var hann mikill áhugamaður og unnandi skógræktar og uppgræðslu lands, sem hann vann ötullega að allt til æviloka. Útför Halldórs fer fram frá Snartarstaðakirkju í Núpasveit í dag, 11. ágúst 2016, klukkan 17. 1976, og Halldór Svavar, f. 1982. Þau eiga fimm barnabörn. 2) Björn, f. 1954, bóndi. Eiginkona hans er Elisabeth Erichsen Hauge. Þeirra synir eru: Eiríkur, f. 1979, Kristján, f. 1981, Haraldur, f. 1987, og Árni, f. 1990. Þau eiga fjögur barnabörn. 3) Halldór Gunnar, f. 1958, tann- læknir. Eiginkona hans er Anna Soffía Svavarsdóttir. Börn: Hildur, f. 1983, hennar móðir er Birna Halldóra Ein- arsdóttir. Börn Halldórs og Önnu Soffíu: Svavar Árni, f. 1985, Gunnar Þór, f. 1990, Bjarki Viðar, f. 1992, og Unnur Lára, f. 1994. Þau eiga þrjú barnabörn. 4) Kristján Þórhall- ur, f. 1961, verkfræðingur. Eig- inkona hans er Sigríður Kjart- ansdóttir. Þeirra börn eru: Kjartan Bjarni, f. 1990, Guð- rún, f. 1993, Auður, f. 1993, og Ingunn Jóhanna, f. 1999. 5) Guðrún, f. 1962, ljósmóðir. Hennar maður er Höskuldur Pabbi – æðruleysi, traust, um- burðarlyndi, virðing, viska, vinnu- gleði, bjartsýni og umfram allt takmarkalaus ást og hlýja. Stund er runnin upp, full af trega og sárum söknuði en jafn- framt sátt við það óumflýjanlega, ásamt endalausu þakklæti fyrir að hafa átt einstakan föður og afa í öll þessi ár. Minning um löngu liðna daga lifir í huga mér. Þótt heimurinn væri helmingi stærri, skyldi hugur minn fylgja þér. Ég finn þegar okkar fundum lýkur verða fátækleg orðin mín. Fólgin í nokkrum fallandi tárum verður fegursta kveðjan til þín. (Þorbjörn Kristinsson) Guðrún og fjölskylda. Pabbi, eða Halli eins og hann var alltaf kallaður, var einstakur maður. Brosmildur, hlýr, rólegur, hjálpsamur og öllum leið vel í ná- vist hans. Hann hafði líka einstakt lag á að gera öll sveitastörfin áhuga- verð og skemmtileg, við systkinin tókum þátt í búskapnum af lífi og sál frá því að við vorum börn og fram á fullorðinsár. Sama gilti um barnabörnin, þau vissu ekkert betra en að fara í sveitina og hjálpa til, þar öðluðust þau ómet- anlega reynslu og nutu leiðsagnar afa Halla. Pabbi var líka „kletturinn“ okkar og fyrirmynd og hans verð- ur sárt saknað. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún.) Hafðu hjartans þökk fyrir allt, þinn Halldór Gunnar. Þegar ég hugsa til Halla tengdapabba færist ósjálfrátt bros yfir andlitið. Þessi yndislegi, brosmildi maður, sem hafði svo jákvætt viðhorf til lífsins, kenndi okkur svo margt: Að elska hvert annað skilyrðislaust, að leysa verkefni lífsins af alúð og auð- mýkt, að lifa hvern dag til fulls, að vera hamingjusöm. Það var sann- arlega mín gæfa, að fá að vera samferða þessum heiðursmanni og tilheyra hópnum hans. Fyrir það þakka ég af öllu hjarta. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Far þú í friði, elsku Halli. Þín tengdadóttir, Anna Soffía. Elsku afi. Mikið erum við lán- söm að hafa átt þig að allt okkar líf. Það eru ómetanleg forréttindi að hafa fengið að vera hjá ykkur ömmu í sveitinni sem börn, valsa í kringum þig í fjárhúsunum og taka þátt í útistörfunum með þér. Þú kenndir okkur svo margt og gerðir það alltaf í rólegheitum og af alúð. Þú ert besta fyrirmynd sem nokkur gæti hugsað sér; allt- af jákvæður, brosmildur, hjálp- samur og hlýr. Við myndum öll vilja vera eins og þú. Það var óhemju sárt en við er- um þakklát fyrir að hafa öll náð að kveðja þig í hinsta sinn í sumar. Yndislegt þótti okkur líka að litlu gleðigjafarnir okkar, Einar og Svavar, yngstu barnabarnabörn- in þín sem búa erlendis, skyldu fá að hitta þig. Hvíldu í friði. Þín Kristbjörg, Kristveig og Halldór Svavar Sigurðarbörn. Elsku ljúfi og hlýi Halli afi. Hann var flottur og reffilegur karl – alveg einstök fyrirmynd. Hann afi kenndi okkur svo ótal margt; hann var dugnaðarforkur og með einstakt viðhorf til lífsins. Hann afi kaus að vera ham- ingjusamur. Hann var einstak- lega jákvæður, æðrulaus og um- hyggjusamur. Hann hugsaði vel um dýrin, landið og fólkið sitt. Við eigum eftir að sakna hans sárt en yljum okkur við minning- arnar. Ég minnist sunnudagsmorgna við eldhúsborðið í sveitinni. Afi situr í horninu sínu með bros á vör og við gæðum okkur á hafra- graut með kornflexi og sykri og hlustum á Rás eitt. Elsku afi, takk fyrir alla gleðina. Þegar ég hugsa til afa þá minn- ist ég þess hversu spenntur ég var að koma í sveitina þegar ég var yngri. Alltaf gat maður geng- ið að því vísu að afi væri úti í fjár- húsi eitthvað að brasa og alltaf fékk maður að vera með. Hann afi var einstaklega rólegur og ljúfur og allt það sem hann hefur kennt mér mun ég búa að um alla fram- tíð. Afi gerði ekki úlfalda úr mý- flugu, ekki einu sinni úlfalda úr úlfalda. Frekar gekk hann í verk- ið og leysti það sem leysa þurfti. Í eitt af fyrstu skiptunum sem var rúllað á Valþjófsstöðum og búið að safna rúllunum saman í falleg- an perlustakk, þá tókst mér og Lappa karlinum að gera smá rifur á þær allar, eða svo gott sem. En það sem við hundurinn sáum var þessi einstaki leikvöllur þar sem hægt væri að stökkva á milli þess- ara hvítu perla í gáskafullum elt- ingarleik. Afi gekk rólega yfir túnið, með límband í annarri og hóaði í okkur. Hann spillti ekki gleði okkar hundsins heldur út- skýrði rólega að það væri ekki gott að hafa göt á heyrúllum. Síð- an löguðum við skaðann og eng- inn fór leiður heim. Svona var afi. Afi hafði svo góða nærveru. Heill dagur í dráttarvélinni leið hjá eins og í mesta lagi ein klukkustund. Nærvera afa, malið í vélinni og nesti frá ömmu var nóg fyrir litla hnokka. Meira að segja dýrin skynjuðu þessa góðu nærveru afa. Ég minnist þess hversu merkilegt mér þótti þegar afi kallaði á ærnar, hrútana og hestana, að ávallt lögðu dýrin af stað í átt til afa, þrátt fyrir girni- leg græn tún. Afi skammaði okkur sjaldnast en ég man þó eftir einu skipti þar sem við strákarnir lékum í hlöð- unni. Afi hafði bannað okkur að klifra upp á baggastaflann en við hlýddum ekki. Það endaði með því að ég hrundi niður og fékk stórt gat á hausinn og hann þurfti að bera mig heim í hús. Hann, elsku afi minn, hafði alltaf rétt fyrir sér. Afi Halli var alltaf svo frábær við allt og alla, hann kenndi mér margt og var alltaf til staðar fyrir okkur. Ég mun ávallt hugsa til hans og sjá hann fyrir mér sitj- andi með bros á vör og spenntar greipar eins og hann var alltaf, að hlusta á allt og alla. Elsku afi, við þökkum þér allar góðu stundirnar saman. Við þökk- um vináttu, hlýja hönd og hand- leiðslu í gegnum lífið. Við munum alltaf sakna þín og faðmlagsins góða, en bjartar minningar um yndislegan afa lifa með okkur æv- ina á enda. Þú ert fyrirmynd okk- ar allra og við elskum þig. Þín barnabörn, Hildur, Svavar Árni, Gunnar Þór, Bjarki Viðar og Unnur Lára Halldórsbörn. Halldór Sigurðsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar systur okkar og frænku, PÁLÍNU R. KJARTANSDÓTTUR hússtjórnarkennara, Kleppsvegi 4. . Guðríður Ólöf Kjartansdóttir, Margrét Kjartansdóttir og fjölskyldur. Yndislegi bróðir okkar, mágur og frændi, VALTÝR ÞÓRÐARSON, Dilli, lést þriðjudaginn 2. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 15. ágúst klukkan 11. Sérstakar þakkir viljum við senda Sigurði Guðmundssyni lækni og starfsfólki sem sinnt hefur Valtý í gegnum tíðina. . Bára Þórðardóttir, Hrafnkell Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Toby Sigrún Herman, Guðbjörg Þórðardóttir, Benedikt Guðmundsson, Særún Ólafsdóttir, Guðbirna Kristín Þórðardóttir, Þórdís Guðrún Þórðardóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ SIGURBJÖRG RUNÓLFSDÓTTIR húsfreyja, Torfastöðum í Vopnafirði, lést að hjúkrunarheimilinu Sundabúð 3. ágúst. . Alfreð Pétursson, Bára Aðalsteinsdóttir, Sigurður Pétur Alfreðsson, Kristbjörg Erla Alfreðsdóttir og fjölskyldur þeirra. • Skattaleg ráðgjöf • Skattauppgjör dánarbús og erfingja • Erfðafjárskýrslugerð • Önnur þjónusta Spekt ehf. • S. 587 7600 • Borgartúni 3 jon@spekt.is • petur@spekt.is Þjónusta við dánarbússkipti Hjartkær eiginmaður minn, EIÐUR REYKJALÍN STEFÁNSSON frá Gauksstöðum á Skaga, Lögbergsgötu 1, Akureyri, andaðist 8. ágúst að Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri. . Helga Jónsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN I. STEFÁNSSON, Fróðengi 1, áður til heimilis að Langagerði 46, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 4. ágúst sl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 17. ágúst klukkan 13. . Lilja Gróa Kristjánsdóttir, Kristján Þorsteinsson, Kristín Jónsdóttir Njarðvík, Guðrún Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Kjartan Blöndahl, Stefán Þorsteinsson, Sigríður St. Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, mágur og frændi, EIÐUR RAGNARSSON, bóndi, Fossvöllum, Jökulsárhlíð, lést sunnudaginn 31. júlí. Útför hans verður gerð frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 13. ágúst klukkan 13. Jarðsett verður í Sleðbrjótskirkjugarði. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Björgunarsveitina Hérað. . Hermann Ragnarsson, Sjöfn Bergmann, Guðný Ragnarsdóttir, Arnar Bjarnason, Kristbjörg Ragnarsdóttir, Valgeir Magnússon, Ragnheiður Ragnarsdóttir og systkinabörn. Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir, HÓLMFRÍÐUR ODDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 5. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst klukkan 15. . Lovísa Guðmundsdóttir, Oddur Guðmundsson, Óskar Guðmundsson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Guðmundur Hólmar Guðmundsson, Brynjar Guðmundsson, Sigríður Björnsdóttir, Brynhildur Guðmundsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.