Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 25

Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 Atvinnuauglýsingar Starfskraftur óskast Starfskraftur óskast til innflutningsfyrirtækis, þarf að hafa góða tölvukunnáttu og geta séð um heimasíðu, ennfremur að geta gengið í öll störf, svo sem sölumennsku, taka á móti vörum og afgreiða vörur á lager. Vinnutími frá 9.00-13.00. Umsóknir sendar á box@mbl.is merktar S-26105. Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Sólhlíð 3, Vestmannaeyjar, 50% ehl. gþ., fnr. 218-4681 , þingl. eig. Þorbjörg Rósa Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Vestmannaeyjabær og Tryggingamiðstöðin hf. og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 10 ágúst 2016. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Félagsheimili Gullsmára Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, handa- vinna kl. 13. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, Allir velkomnir. Garðabær Handavinnuhorn kl. 13, Jónshús er opið frá kl. 9.30-16, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14. Gjábakki Handavinna kl. 9. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, molasopi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, spilað Botsía kl. 10. Matur kl. 11.30, félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Félagsmiðstöðin er opin öllum, óháð aldri og búsetu og allir vel- komnir. Sími 535 2720. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl.8.50, púttvöllurinn er opin, síðdegiskaffi kl. 14.30. Ferð á Reykjanesið 31. ágúst, allir velkomnir með óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411 2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi í borðsal kl .9.45, bókabíllinn kl. 10-10.30, upp- lestur kl. 11, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og snjalltækja- kennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 411 2760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568 2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Bókhald NP Þjónusta Tek að mér bókhald, endurútreikning og vsk. Hafið samband í síma: 861-6164. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. TIL SÖLU Mótabitar / dokabitar: 1400m lítið notaðir 20x4,90 dokabitar Guðmundur sími 893-0003 Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is Við afi vorum góðir vinir. Einhvern veginn þurftum við ekkert endilega að tala mikið saman. Hann bara skildi mig. Afi var góður við alla í kringum sig og mér fannst alltaf jafngaman að koma til afa og ömmu í Kefla- vík. Þá gátum við afi hlegið og skemmt okkur tímunum saman. Okkur barnabörnunum fannst einstaklega gaman þegar hann leyfði okkur fyrir nokkrum ár- um í sveitinni að fara á hestbak og prufa fjórhjólið. Afi minn var elskaður af mörgum, bæði vinum og fjölskyldu. Afi minn var minn helsti stuðningsmaður í lífinu, hann studdi mig í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Ragnar Gerald Ragnarsson ✝ Ragnar GeraldRagnarsson fæddist 6. apríl 1948. Hann lést 20. júlí 2016. Útför Ragnars Geralds fór fram 3. ágúst 2016. Vegna misgán- ings fyrirfórst í fyrra æviágripi að geta langafastelp- unnar Arisar Evu Ingunnardóttur. Hún er dóttir Ragnars Geralds Albertssonar. Elsku afi minn, takk fyrir allt, ég veit að þú ert hvíldinni feginn, ég mun passa upp á fólkið okkar. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þín Árný Eik. Mikill meistari, Ragnar Gerald Ragnarsson frændi minn, er fallinn frá. Raggi var mér svo miklu meira en bara hefðbund- inn frændi – hann var einn minn allra nánasti vinur und- anfarin ár og betri vin en Ragga var ekki hægt að eiga. Augun voru ósvikin og hjartað hreint. Ég gat rætt alla hluti við Ragga. Vinátta okkar var ung að árum og það tekur mig sárt að þurfa að kveðja hann svo snemma. Við áttum eftir að ræða svo ótal margt til viðbótar og hlæja saman að lífinu og tilverunni – stundir okkar voru einstakar og ég sakna þeirra strax. Raggi var afar farsæll skip- stjóri og útgerðarmaður. Hann var hugrakkur og kom til dyr- anna eins og hann var klæddur en var jafnframt einstaklega blíður og einlægur maður. Raggi var því stórbrotinn kar- akter sem skilur eftir sig stórt skarð sem erfitt verður að upp- fylla. Raggi barðist við illvígan sjúkdóm síðustu árin og gerði það af einstakri auðmýkt. Hann tókst á við það risavaxna verk- efni með kærleikann og gleðina að leiðarljósi – allt til síðasta dags – og mun hann því ávallt lifa í minningu minni sem hinn mikli sigurvegari úr þeirri glímu. Það verkefni er ekki hægt að leysa betur en þú gerðir Raggi minn – það vitum við öll. Besti vitnisburðurinn um farsæla ævi Ragga er fjölskyld- an hans sem eru Guðrún konan hans, krakkarnir og barnabörn- in sem er einstaklega heil- steypt og samhent fjölskylda og þannig mun minning Ragga lifa um ókomin ár. Ég bið algóðan guð að styrkja ykkur og afa í sorginni. Afi og Raggi voru svo góðir vinir og afi var alltaf gríðarlega stoltur af Ragga, stráknum sín- um. Elsku Raggi, ég kveð þig með miklum söknuði. Hvíldu í friði og takk fyrir allar frábæru stundirnar sem við áttum sam- an undanfarin ár, elsku besti vinur og frændi. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Heiðar Lár Halldórsson. Nú hafa hjónin úr Hamri, þau Auð- ur og Birgir, kvatt okkur með stuttu millibili. Voru þau foreldrar æskuvinkonu minnar, Önnu Möggu. Minningabrot fylla hjarta mitt og huga. Dvaldi ég í Hamri löngum stundum á heimili þeirra með vinkonu minni, var ávallt vel- komin hvenær á sólarhringnum sem var. Mætti einu sinni þar eldsnemma á hvítasunnumorgni um kl. 6 ásamt systur minni, Önnu Björk. Okkur lá svo á að sýna þeim í Hamri nýju kjólana sem við fengum kvöldið áður. Þrátt fyrir loforð við mömmu að við færum ekkert í önnur hús, því klukkan væri bara sex og allir sofandi enn, þá fórum við samt. Enda Hamar mitt annað heimili því ekki var um „önnur hús að ræða“ í huga okkar. Undarlegt fannst okkur að úti- dyrnar í Hamri væru læstar, þær voru það aldrei. Við systur þurftum að banka talsvert lengi og fast áður en Birgir kom til dyra. Svolítið úfinn og ekki al- Auður Stefánsdóttir ✝ Auður Stef-ánsdóttir fædd- ist 27. október 1925. Hún andaðist 7. júlí 2016. Útför Auðar fór fram 30. júlí 2016. veg eins og venju- lega. Heilsaði okk- ur með virktum, dáðist að nýju fínu kjólunum, bauð okkur svo í bæinn og sagðist ætla að vekja hana Önnu Möggu. Hún væri nú meiri svefn- purkan. Eftir smá stund voru þær báðar komnar fram í eldhús, Anna Magga og Auður. Voru okkar bornar veitingar og áttum við að venju yndislega stund hjá þeim. Fórum svo heim og lögðum okkur aftur, í fínu kjólunum. Er ekki viss um að allir myndu taka svona vel á móti stelpuskottum kl. 6 að morgni. Sýnir góðmennsku þeirra hjóna. Oft fékk maður að njóta þess hvað Auður var myndarleg hús- móðir. Alltaf til heimabakað brauð. Standa þar hæst í mínum huga brúna randalínan og loft- kökurnar. Fékk uppskrift hjá Auði eftir að ég fór að búa. Al- veg sama hvað ég reyndi, mínar kökur urðu aldrei eins og hjá henni. Ótal ferðir fór ég með þeim inn í Fagradal þar sem ég dvaldi oft marga daga í senn. Einnig fór ég í lengri ferðir með þeim. Eitt sinn er ég átti að fara á sundnámskeið upp í Eiða þá lagðist ég í hlaupabólu og komst ekki með hópnum. Var ég mjög sorgmædd yfir þessu. Birgir keyrði mig þangað um leið og ég mátti fara í sund út af bólunum. Sat ég eins og drottning í fram- sætinu, fékk að opna öll hliðin inn Breiðdalinn. Mjög ábyrgð- armikið. Fyrir utan allar góðar stundir með þeim í daglegu lífi, þá kenndi Birgir mér, hann deildi fjárhúsum með pabba á tímabili. Samverustundirnar voru því margar og dýrmætar þegar ég lít til baka. Rifjuðum upp þenn- an gamla tíma þegar ég skaust yfir til þeirra er ég var á ferð- inni fyrir austan. Þá heyrðist oft „þetta voru góðir tímar, Hansa mín“. Yndislegar minningar sem ylja manni um hjartaræturnar. Dýrmætt var að fara austur um daginn þegar Birgir var jarðsunginn. Met það enn meira núna þegar hún Auður kvaddi svo skömmu síðar. Að fá að hitta hana og kannski að kveðja hana þá, án þess þó að gera sér grein fyrir því á þeim tíma. Er mjög þakklát að ég skyldi hlusta á mína innri rödd sem sagði mér að austur ætti ég að fara. Bestu þakkir sendi ég yfir til þeirra hjóna fyrir alla góð- mennsku við mig og mína. Elsku Anna Magga, Búi, Ninna og fjölskylda, ég sendi ykkur öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ykkar Hanna Bára (Hansa). Mig langar að kveðja þig, kæri vinur. Þá er að rifja upp gamla tímann. Það var alltaf gott og gaman að koma heim í Fagurhól og heimsækja ykkur Önnu og síð- ar á Illugagötu þegar þið höfð- Pétur Pétursson ✝ Pétur Pét-ursson fæddist 13. september 1924. Hann lést 9. júlí 2016. Útför hans fór fram 15. júlí 2016. uð byggt og flutt þangað. Oft var setið lengi yfir kaffi og alls kyns góðgæti og mikið spjallað. Eitt kvöldið sló öll met, það var farið að tefla. Við Anna sátum í eldhúsinu og þið Hilmir í stofunni. Þegar ég talaði um að fara heim var komin mikil spenna og þið sögðuð að skákin færi alveg að klárast. En tíminn leið og ekki veit ég hvor ykkar vann en klukkan var orðin fjögur að nóttu þegar skákinni lauk. Við áttum margar svona góð- ar stundir saman. Á sjómannadaginn létum við okkur ekki muna um að fara á böllin bæði kvöldin og þá var mikið dansað. Þið Anna voruð okkar bestu vinir. Seinna þegar þú varst orðinn einn þá komst þú oft til okkar til Vestmanna- eyja og hringdir líka til að spjalla. Mikið þótti okkur vænt um það. Nú veit ég að þú ert kominn til Önnu þinnar. Takk fyrir allt og Guð geymi ykkur. Ykkar vinkona, Alda Björnsdóttir, Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.