Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Höskuldur Gunnarsson er bústjóri á tilraunabúinu Stóra-Ármóti í Árnessýslu ásamt konu sinni, Hildu Pálmadótturbúfræðikandidat. Sjálfur er Höskuldur menntaður vélvirkja-
meistari, rennismiður og búfræðingur. Börn Höskulds og Hildu eru
Helga Margrét 18 ára, tvíburarnir Hannes og Hólmar 16 ára, Hall-
gerður 11 ára og Hanna Dóra 9 ára.
Stóra-Ármót er ofarlega í Flóanum við ármót Hvítár og Sogs en
Búnaðarsamband Suðurlands á og rekur búið. Tilraunir eru í faglegu
samstarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. „Á veturna eru
gerðar fóðrunartilraunir á mjólkurkúm og tilfallandi tilraunir í sam-
bandi við sauðfé þótt það sé minna umleikis, en á búinu eru 45-50
mjólkurkýr og 140 kindur. Heyskap er að megni til lokið þetta
sumarið og kornþresking og sláturtíð eru framundan.“
Áhugamál Höskulds fyrir utan búskapinn hafa í gegnum tíðina ver-
ið bridds og hestamennska. „Við erum með hross til skemmtunar og
yndisauka en köllum okkur ekki hrossaræktendur. Ég mæti á bridds-
kvöld hjá briddsfélaginu á Selfossi og reyni svo að fara á mót, mæti
t.d. alltaf á Briddshátíð Flugleiða. Ég varð Vesturlandsmeistari í tví-
menningi árið 2000, en þá bjó ég á Vesturlandi,“ segir Höskuldur,
spurður um helstu sigra við spilaborðið.
Höskuldur ætlar að halda afmælisveislu með vinum og fjölskyldu á
morgun.
Fjölskyldan Við útskrift Helgu Margrétar, elstu dótturinnar, frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ síðastliðið vor.
Hestamennska og
bridds áhugamálin
Höskuldur Gunnarsson er fimmtugur í dag
E
rla Kristín Árnadóttir
æddist 11. ágúst 1976
og ólst upp í Vestur-
bæ Reykjavíkur.
Hún stundaði nám í
Melaskóla, Hagaskóla, Mennta-
skólanum í Reykjavík og varð stúd-
ent frá fornmáladeild árið 1996 og
lagadeild Háskóla Íslands og varð
cand. jur 2002.
Erla Kristín var lögfræðingur
hjá Sýslumanninum í Reykjavík
2002-2003 og hefur verið lögfræð-
ingur hjá Fangelsismálastofnun
ríkisins frá 2003, hefur verið sviðs-
stjóri fullnustusviðs þar frá 2014 og
staðgengill forstjóra. Erla Kristín
starfaði einnig sem fimleikaþjálfari
með námi hjá KR og Gróttu.
Æfir kraftlyftingar
Helstu áhugamál Erlu Kristínar
eru íþróttir og samvera með fjöl-
skyldunni. „Ég er mikill KR-ingur
og ólst nánast upp í fimleikasal KR
Erla Kristín Árnadóttir, sviðsstj. hjá Fangelsismálast. – 40 ára
Vinkonurnar Æskuvinkonur Erlu Kristínar úr Melaskóla samankomnar síðasta haust, frá vinstri: Sandra, Barbara,
Erla Hrund, Nína Björk Erla Kristín og Berglind. „Við reynum alltaf að hittast þegar við erum saman á landinu.“
Vesturbæingur á Nesinu
Stórfjölskyldan Erla Kristín ásamt manni sínum, foreldrum, systkinum,
fyrir utan Hjalta, og börnum um síðustu jól.
Hafnarfjörður Móey Dalrós
fæddist 5. ágúst kl. 04.30. Hún
vó 16 merkur og var 51 cm að
lengd. Foreldrar hennar eru
Elvar Örn Aronsson og Silja
Hanna Guðmundsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.