Morgunblaðið - 11.08.2016, Page 27
þegar hann var og hét. Eftir að ég
flutti á Seltjarnarnesið 2006 er ég
einnig orðin mikill stuðningsmaður
Gróttu enda fer vel saman að halda
með báðum félögum. Reynum við
fjölskyldan að sækja sem flesta
leiki hjá Gróttu, bæði í handbolta
og fótbolta. Maðurinn minn er
reyndar Víkingur en það passaði
vel inn í fjölskylduna mína þar sem
afi minn, Einar Baldvin, lék með
fyrsta Íslandsmeistaraliði Víkings í
knattspyrnu árið 1920 og pabbi
minn var leikmaður og þjálfari Vík-
ings í handbolta um margra ára
skeið og lék m.a. með liðinu sem
síðar var valið handboltalið ald-
arinnar.
Ég hef æft kraftlyftingar frá
2010 og tók þátt í stofnun
kraftlyftingadeildar Gróttu árið
2011. Ég var varaformaður deildar-
innar 2011-2012 og formaður frá
2012-2016. Það hefur verið ótrúlega
gaman að fá að taka þátt í þeim
mikla uppgangi sem verið hefur í
kraftlyftingum á síðustu árum, sér-
staklega hjá konum, en við vorum
ekki margar sem vorum að keppa
þegar ég byrjaði. Ég hef nú dregið
úr keppni en þjálfarinn minn segir
að ég eigi að fagna þessum tíma-
mótum þar sem ég sé nú orðin lög-
giltur öldungur í greininni og eigi
framtíðina fyrir mér.“
Fjölskylda
Eiginmaður Erlu er Birgir
Tjörvi Pétursson, f. 11.5. 1972, hér-
aðsdómslögmaður og meðeigandi
hjá Lögmönnum Lækjargötu. For-
eldrar: Pétur R. Guðmundsson, f .
22.2. 1948, bókari í Reykjavík, og
k.h. Sólveig Ólöf Jónsdóttir, f. 19.2.
1949, verslunarkona í Reykjavík
Börn Erlu Kristínar og Birgis
Tjörva eru Kristín Klara Birg-
isdóttir, f. 21.2. 2000, og Árni Pétur
Birgisson, f. 11.3. 2006.
Systkini Erlu Kristínar eru
Hjalti Árnason (hálfbróðir sam-
feðra), f. 1.8. 1970, forstöðumaður
lögfræðisviðs Byggðastofnunar;
Einar Baldvin Árnason, f. 6.12.
1974, héraðsdómslögmaður og með-
eigandi hjá BBA legal, og Hildur
Árnadóttir, f. 21.3.1981, kennari í
MR.
Foreldrar Erlu Kristínar eru
Árni Indriðason, f. 3.5. 1950, kenn-
ari í MR, og Kristín Klara Einars-
dóttir, f. 4.7. 1952, deildarstjóri í
viðskiptafræði- og hagfræðideild
HÍ.
Úr frændgarði Erlu Kristínar Árnadóttur
Erla Kristín
Árnadóttir
Jóhanna Jósafatsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, frá
Holtastöðum í Langadal,
A-Hún.
Ingvar Pálsson
kaupmaður í Reykjavík
Kristín Ingvarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Baldvin Guðmundsson
hrl. í Reykjavík
Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri í HÍ
Jóhanna Stefánsdóttir
húsfreyja, f. á Reynistað í Staðarhr., Skag.
Guðmundur Einarsson
verslunarmaður í Skagafirði
Anna Sigríður Indriðadóttir
hjúkrunarfr., bús. á Seltjarnarnesi
Sigríður Hafstað
húsfreyja á Tjörn í
Svarfaðardal
Halldór Hafstað
bóndi í Útvík, Staðarh.
Kári Indriðason
sérfræðingur í Landsbankanum
Sigurður Indriðason
starfsmaður hjá Nasdaq
verðbréfamiðstöð, fyrrv.
knattspyrnum.
Indriði Sigurðsson
knattspyrnumaður,
bús. í Rvík
Jóhanna J.
Einarsdóttir Thors
húsfr. í Rvík
Axel Einarsson
hrl. í Rvík
Hilmar Thors
framkvæmdastjóri,
bús. á Seltjarnarnesi
Óskar Þór Axelsson
kvikmyndagerðarm.,
bús. í Rvík
Kristín Ingveldur
Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfreyja, f. í Valadal á
Skörðum, Skag.
Árni Hafstað
bóndi í Vík í Skagafirði
Erla Árnadóttir Hafstað
húsfreyja á Seltjarnarnesi
Indriði Sigurðsson
sjómaður á Seltjarnarnesi
Árni Indriðason
kennari í MR
Anna S. Einarsdóttir
húsfreyja, f. í Tumabrekku,
Hofssókn, Skag.
Sigurður Stefánsson
verkamaður á Sauðárkróki
Þorsteinn Ólafsson
tannlæknir í RvíkÓlafur Þorsteinsson
viðskiptafræðingur, bús. í Rvík
Kristín Þorsteinsdóttir
ritstjóri, bús. í Rvík
Í bekkpressumóti Erla Kristín
nýbúin að taka góða lyftu.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016
Hallfríður Eyjólfsdóttir, eðaHalla á Laugabóli, fæddist11. ágúst 1866 í Múla við
Gilsfjörð, A-Barð. Foreldrar hennar
voru Eyjólfur Bjarnason, bóndi þar, f.
7.6. 1837, d. 22.5. 1916, og k.h. Jóhanna
Halldórsdóttir húsfreyja, f. 15.6. 1843,
d. 29.12. 1883.
Halla ólst hún upp í Múla í stórum
systkinahópi. Afar hennar voru báðir
prestar í grenndinni, föðurafinn
Bjarni í Tröllatungu, sonur Eggerts
prests í Stafholti, Bjarnasonar land-
læknis Pálssonar, og móðurafinn Hall-
dór Jónsson í Garpsdal, en Halldór
var 4. maður frá Lárusi lögmanni
Gottrup.
Vorið 1886 kvaddi Halla æskustöðv-
arnar við Gilsfjörðinn tæplega tvítug
og hélt norður yfir heiði þar sem hún
réðst sem vinnukona að Laugabóli við
Ísafjörð innst í Ísafjarðardjúpi. Fáum
árum síðar giftist hún Þórði Jónssyni,
f. 5.4. 1858, d. 18.10. 1914, syni
hjónanna þar Jóns Halldórssonar og
Guðrúnar Þórðardóttur. Halla og
Þórður eignuðust fjórtán börn en þrjú
þeirra misstu þau úr barnaveiki sum-
arið 1904.
Þórður og Halla reistu sér fyrst bú
á Kirkjubóli í Laugardal 1892 en fimm
árum seinna tóku þau við búi foreldra
hans.
Eftir lát Þórðar sá Halla um búið en
árið 1921 giftist hún Gunnari Steini
Gunnarssyni frá Hvítanesi í Ögursveit
við Djúp. Þau héldu áfram búskap á
Laugabóli til 1935 þegar Sigurður,
sonur hennar, tók við.
Eftir Höllu liggja tvær ljóðabækur,
Ljóðmæli sem komu út árið 1919, og
Kvæði sem komu út árið 1940, þremur
árum eftir andlát hennar. Bækurnar
eru miklar að vöxtum og ljóðin marg-
vísleg að allri gerð. Úrval kvæða henn-
ar sem Guðfinna Hreiðarsdóttir gaf út
ásamt æviágripi kom út árið 2008 og
nefnist bókin Svanurinn minn syngur.
Sigvaldi Kaldalóns var nágranni
Höllu og tóku þau upp samstarf sem
fólst oftast nær í því að Halla færði
honum kvæðin og hann samdi lög við
þau. Má þar nefna Ég lít í anda liðna
tíð og Svanur minn syngur.
Halla lést í Reykjavík 6.2. 1937.
Merkir Íslendingar
Halla Eyjólfsdóttir
Ljósmynd/Ljósmyndasafnið Ísafirði
95 ára
María Valsteinsdóttir
90 ára
Þóranna Brynjólfsdóttir
85 ára
Ágústína Eggertsdóttir
80 ára
Alda Þorgrímsdóttir
Einar Magnússon
Erling Markús Andersen
Grímur Vilhjálmsson
Guðlaug Jóna Ingólfsdóttir
Guðmundur Magnússon
Sigurjón Ólafsson
75 ára
Hjördís Bára Þorvaldsdóttir
Ingólfur Hansen
70 ára
Haukur J. Kjerúlf
Höskuldur Marinósson
Ólína Björnsdóttir
Sigríður Eiríksdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
Þorsteinn Valtýr Friðriksson
60 ára
Auður Matthea Matthíasd.
Ásdís Gunnarsdóttir
Birna Kristjánsdóttir
Björg Helga Atladóttir
Gísli Jón Árnason
Hrefna Egilsdóttir
Ingunn S. Sigurpálsdóttir
Ísak Hörður Harðarson
Jón Haukur Hauksson
Karen Janine Sturlaugsson
Kristjana Halldórsdóttir
Ragnhildur Rós Indriðad.
Sigurjón Leifsson
Símon Reynir Unndórsson
Tómas Gíslason
50 ára
Berglind Garðarsdóttir
Björk Filipsdóttir
Bryndís Fjóla Sigmundsd.
Brynja Guðmundsdóttir
Fjóla Jónsdóttir
Hanna Símonardóttir
Haukur Hauksson
Hermann A. Kristjánsson
Logi Jóhannesson
Margrét Sólveig Hrafnsd.
Ragnar Scheving
Ragnhildur Eiríksdóttir
Rósa Linda Thorarensen
Sigrún Birna Norðfjörð
Svava Brynja Bjarnadóttir
Sveinfríður O. Veturliðad.
Þórður Ámundason
Þórunn Arnardóttir
40 ára
Astrid María Dahl Reynisd.
Bjarki Friðriksson
Edward Örn Hoblyn
Elín Bergmundsdóttir
Haraldur Freyr Helgason
Jökull Bergmann Þórarinss.
Kristrún Bragadóttir
Ragnar Páll Rafnarsson
Rut Ingólfsdóttir
Sigurður Björgv. Magnúss.
Þóra Hlynsdóttir
30 ára
Adam Steinn Guðmundss.
Anna Guðrún Jónsdóttir
Anna Ýr Gísladóttir
Brynjar Þór Magnússon
Droplaug Benediktsdóttir
Halldór Örn Halldórsson
Hulda Ósk Guðbjörnsdóttir
Kristinn Darri Arinbjargars.
Sindri Hlífar Guðmundsson
Sæmundur Ómar Dúason
Þorgils Óttarr Erlingsson
Þór Reynir Jóhannsson
Ægir Freyr Birgisson
Til hamingju með daginn
40 ára Berglind er Reyk-
víkingur og ferðamála-
fræðingur.
Maki: Haraldur Már
Gunnarsson, f. 1976,
tölvunarfræðingur hjá
Metrica.
Börn: Andri Már, f. 2006,
og Ísabella Anna, f. 2012.
Foreldrar: Beinteinn Ás-
geirsson, f. 1932, vegg-
fóðrarameistari, og Svava
Jóna Markúsdóttir, f.
1933, d. 2007, húsmóðir í
Reykjavík.
Berglind G.
Beinteinsdóttir
30 ára Silja býr í Hafnar-
firði og er yfirgjaldkeri hjá
Íslandspósti.
Maki: Elvar Örn Arons-
son, f. 1983, smiður hjá
JE Skjanni ehf.
Börn: Ronja Bergrós, f.
2014, og Móey Dalrós, f.
2015.
Foreldrar: Guðmundur
Einarsson, f. 1954, leir-
kerasmiður og varðstjóri,
bús. í Rvík, og Signý Jör-
undsdóttir, f. 1956, lista-
kona, bús. í Hafnarfirði.
Silja Hanna
Guðmundsdóttir
30 ára Sindri er Reykvík-
ingur og vinnur við stand-
setningu hjá bílaumboð-
inu Bernhard.
Systkini: Ingibjörg Vala
Arnarsdóttir, f. 2001, og
Viktoría Ýr Arnarsdóttir, f.
2004.
Foreldrar: Ragnar Hjálm-
ar Ragnarsson, f. 1959, d.
1994, og Sigurbjörg Helga
Birgisdóttir, f. 1964,
heimavinnandi. Fóstur-
faðir: Arnar Tryggvason, f.
1969, sölumaður hjá N1.
Sindri Rafn
Ragnarsson
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI