Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 30
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Við erum búin að æfa mjög vel og erum með alveg dásamlega tónlist. Uppistaðan er verk eftir Bach og Händel, þar á meðal einhver feg- ursta aría að mínu mati sem Händ- el skrifaði,“ segir orgelleikarinn Hörður Áskelsson en hann spilar á Klais-orgel Hallgrímskirkju í há- deginu í dag en Sigríður Ósk Krist- jánsdóttir sér um söng. Einkar ánægjulegt samstarf Tónleikarnir eru hluti af Al- þjóðlega orgelsumrinu en á dag- skrá er meðal annars umrædd aría eftir Händel, Salómon, þar sem Sigríður Ósk syngur hlutverk drottningarinnar af Saba. Á efnis- skránni eru einnig arían Buss und Reu úr Matteusarpassíu Bachs, sönglag eftir Jón Leifs og íslenskt þjóðlag ásamt tveimur sálm- forleikjum eftir Bach. „Sigríður Ósk söng drottning- arverkið með okkur á Kirkju- listahátíð fyrir ári síðan ásamt hljómsveit og kór en ég og orgelið förum í hlutverk hljómsveitarinnar að þessu sinni. Ég reyni að herma eftir flautum hljómsveitarinnar með orgelinu. Síðan verða þarna einnig tvö íslensk lög með textum Hall- gríms Péturssonar,“ segir Hörður. Tvímenningarnir hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina og segir Hörður samstarfið einkar ánægju- legt. Hörður gegnir þar að auki starfi listræns stjórnanda listalífs- ins í Hallgrímskirkju í sumar og segir hann það hafa gengið mjög vel. „Við erum búin að vera með þessa hádegistónleikaröð í nokkuð mörg ár núna. Ferðaþjónustan er meðal annars farin að benda fólki á að kíkja á tónleikana hjá okkur og það hefur orðið mikil fjölgun á gestum okkar samhliða fjölgun ferðamanna hér á landi,“ segir hann og bætir því kíminn við að margir þeirra þrammi inn í kirkj- una í gönguskóm og með bakpok- ana á bakinu og verði síðan dol- fallnir yfir fegurð kirkjunnar og hljómleikanna. Hörður segir það jafnframt gamla kirkjuhefð að láta orgelið leika eftir heilli hljómsveit. „Orgelið í Hallgrímskirkju hef- ur mjög fjölbreytta möguleika en það verður að fara varlega því hversu góð, sterk og falleg sem röddin er þá er mjög auðvelt að kæfa hana með orgelinu því það er svo öflugt. Það er kannski mesta áskorunin,“ segir hann en þess má geta að hádegistón- leikaröðin lýkur göngu sinni um menningarnæturhelgina. „Þó að þetta sé kannski að- allega hugsað fyrir útlendingana er svo sannarlega full ástæða fyrir heimafólk að koma og hlusta á Sigríði Ósk og þá tónlist sem við erum að bjóða upp á,“ segir Hörð- ur að lokum. Samtal raddar og orgels Morgunblaðið/Ófeigur Tvímenningar Hörður og Sigríður Ósk við orgelið í kirkjunni en uppistaðan í dag er verk eftir Bach og Händel.  Sigríður Ósk syngur með Herði á Alþjóðlegu orgelsumri  Meðal annars verður boðið upp á drottningararíu Händels 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár Söngkonan og lagahöfundurinn Keren Ann heldur órafmagnaða tónleika í Bjórgarðinum á Foss- hótel Reykjavík 23 ágúst nk. Eru þetta fyrstu einkatónleikar hennar á Íslandi, en síðast kom hún fram hérlendis með Barða Jóhannssyni undir heitinu Lady & Bird ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í Há- skólabíói. Tónleikarnir nú verða eingöngu fyrir boðsgesti en aðeins verður hægt að nálgast boðsmiða með því að hlusta á Poppland á Rás 2 og taka þátt í leik á Facebook síðu Bjórgarðsins. „Þar sem Bjórgarð- urinn rúmar innan við hundrað manns er ljóst er að færri munu komast að en vilja,“ segir m.a. í tilkynningu frá tónleikahaldara. Keren Ann gaf út sína sjöundu sólóplötu fyrr á árinu hjá útgáf- unni EMI/ Capitol við góðar viðtökur. Nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum heims hafa leikið lög Keren Ann s.s. Iggy Pop, David Burns, Jane Birkin og Francoise Hardy. Fyrstu einkatónleikar Ann á Íslandi Keren Ann „Við fengum Pál Óskar til að spila á hátíðinni í fyrra og hann end- urtekur leikinn í ár. Jón Jónsson kemur síðan til með að slútta fyrsta kvöldinu. Síðan verða þarna bönd eins og Nykur, Rythmatic og Lily of the Valley. Hátíðin er þekkt fyrir að gefa ungu og upprennandi tón- listarfólki séns í bland við þekktari nöfn,“ segir Adam Smári Her- mannsson en hann er fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar Gær- unnar ásamt Ásdísi Þórhallsdóttur. Hátíðin, sem fer fram á Sauð- árkróki, hefst í kvöld og stendur til sunnudags. Sextíu sóttu um „Hátíðin í ár verður nokkurn veginn með sama sniði og í fyrra. Við fækkuðum aðeins böndunum og gefum þeim sem koma fram þannig aðeins meiri spilatíma í staðinn. Þarna verða tuttugu og tvö atriði sem dreifast jafnt og þétt yfir þessa þrjá daga, fimmtudag, föstu- dag og laugardag. Í kvöld verðum við með svokallað sólóistakvöld sem haldið verður á skemmtistaðnum Mælifelli en næstu tvö kvöldin verðum við á stóra sviðinu í geymsluhúsnæði fyrirtækisins Loð- skinn,“ segir Adam Smári en auk þess verður boðið upp á barna- skemmtun á laugardeginum. „Við stóðum fyrir samskonar barnaskemmtun á Mælifelli með Páli Óskari í fyrra og það gekk ein- staklega vel. Ég vann sjálfur í nokkur ár sem dyravörður á Mæli- felli og ég hef aldrei nokkurn tíma séð fólk koma jafn sveitt út af balli og á þessari ákveðnu skemmtun. Staðurinn var stappaður og þvílík hamingja í gangi. Við ætlum því að endurtaka viðburðinn í ár og það er alveg æðislegt að hafa mann eins og Pál Óskar með okkur í því,“ seg- ir hann. „Það eru margir sem halda að hátíðin sé bara fyrir ungmenni en það er mikill misskilningur. Á aðal- tónleikum Páls Óskars í fyrra var náttúrlega átján ára aldurstakmark en börn mega koma í fylgd með fullorðnum. Ég held að yngsti gest- urinn hafi verið sex ára og sá elsti um áttrætt. Fólk á öllum aldurs- hópi var þarna komið til að skemmta sér. Þó svo að fólk þekki ekki endilega öll nöfnin sem koma fram þá er þetta allt sérvalið lið. Það sóttu sextíu atriði um að fá að koma fram á hátíðinni í ár og það komust aðeins tuttugu og tvö að. Þetta var gríðarlega erfitt val en við erum mjög sátt við það,“ segir Adam Smári. Áfram þrátt fyrir gjaldþrot Babb kom í bátinn hjá skipu- leggjendum tónlistarhátíðarinnar þegar fyrirtækið Loðskinn á Sauð- árkróki fór í gjaldþrot fyrr í sumar en hátíðin hefur verið haldin í geymsluhúsnæði fyrirtækisins und- anfarin ár. Það var því tvísýnt á tímabili hvort hátíðin yrði haldin í ár enda skyndilega orðin húsnæð- islaus. Það náðist samt sem áður að semja við kröfuhafa Loðskinns og Gæran fær því að halda sínu striki á sama stað og hún hefur verið undanfarin ár. „Við erum ævinlega þakklát Gunnsteini Björnssyni og Sigríði Káradóttur sem eru með Loðskinn. Þau lögðust í það sjálf að hátíðin fengi að vera þarna inni þrátt fyrir allt sem á undan hafði gengið. Há- tíðin var í mikilli óvissu í mánuð en það reddaðist allt og ég hef fulla trú á því að hátíðin fái að vera þarna á næstu árum. Kröfuhafar og eigendur eru bara í endurfjármögn- unarferli núna. Menn hafa trú á því að Loðskinn hafi ekki lagt end- anlega upp laupana,“ segir Adam Smári en hann bætir við að hátíðin hafi ætíð farið friðsamlega fram. „Ég tók við hátíðinni sem eigandi og framkvæmdastjóri í fyrra. Ég hef þó unnið við hátíðina frá upp- hafi í gæslu og öðru og það hafa aldrei komið upp árekstrar á milli fólks. Það hafa heldur aldrei komið upp nein fíkniefnamál eða þess háttar, þetta hefur alltaf farið mjög friðsamlega fram,“ segir hann að lokum. Hátíð Páll Óskar verður aðalnúmerið á Gærunni í ár en meðal annarra sem koma fram eru Jón Jónsson, Nykur, Rythmatic og Lily of the Valley. Valið á milli sextíu atriða  Gæran á Sauðárkróki nú um helgina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.