Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2016 • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is BLI A3 MFP Line of the Year: 2011, 2012, 2013, 2014 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki BLI Pro Award: 2013, 2014 á fallegum, notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. ERFIDRYKKJA Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Það er alltaf áhugavert fyrir mig að sjá hvernig fólk bregst við og upp- lifir verkin en þau eru í mismunandi tengslum við samfélagið og listasög- una og því munu ýmsar hugsanir myndast. Áhorfandinn er svo al- gjörlega frjáls í því hvernig hann vill túlka það,“ segir Karin Sander myndlistarkona sem opnar sýningu í i8 gallerí við Tryggvagötu í dag en sýningin stendur til 24. september næstkomandi. Verk hennar á sýningunni virðast gjörólík við fyrstu sýn en þar koma saman verk sem segja má órafjarri hvert öðru eins og grænmeti sem neglt hefur verið upp á vegg eða ljósmynd tekin á farsíma. Hins veg- ar þegar betur er að gáð sést að þau snúast öll um það hvernig smávægi- leg ástandsbreyting opnar fyrir möguleikann að búa til eitthvað ann- að og nýtt. Þetta segir í tilkynn- inguna um sýningu Karin en þetta er þriðja einkasýning hennar í i8 galleríi. Ísland hefur áhrif Aðspurð hvort vera hennar á Ís- landi hafi áhrif á verkin sem hún setur upp á sýningunni segir hún svo vera. „Það er hvernig maður hugsar um ákveðnar ástæður, hvað passar og hvað mig langar að sýna hér á Íslandi – það tengist því til dæmis hvað vex hér,“ segir hún en grænmetið sem hún hengir upp á vegg er til að mynda fengið hér á landi og var Karin á leið í það verk- efni þegar blaðamaður náði af henni tali. Karin hefur gefið grænmetisverk- unum heitið Eldhúsverk og eru þau 31 talsins. Þau mætti túlka sem popplistaverk sem spíra út úr veggnum en hún lætur hversdags- lega hluti virðast gervilega svo hug- arflug áhorfandans fari af stað. Myndir teknar á farsímann Þá hefur Karin einnig gert ljós- myndir sem teknar voru á farsíma hennar í hvert skipti sem einhver hringdi í hana. „Þetta eru skyndileg skot og myndefnið veltur á því hvernig þú heldur á símanum akk- úrat á þeirri stundu og getur verið nærmynd af borðfæti, gólfteppi eða landslagi,“ segir hún en með því búi hún til eitthvað sem ekki sé hægt að eiga við eftir á. „Það er alltaf ein- hver annar sem er með þér í verkinu – einhver sem hringir,“ bætir hún við en þannig komið utanaðkomandi aðili inn í persónulega stund og sé vísun í það hvernig fólk notið tækið og sú hugmynd tekin lengra. Karin hefur með þessu búið til verklag eða leikreglur, sem segja til um hvernig verkin verða til og færa afraksturinn úr hennar höndum. Ljósmyndirnar sýna því ýmis smá- atriði sem geta bæði sagt mikið og lítið um örskotsstund, tiltekinn stað og landfræðileg hnit hans, segir í til- kynningunni. Glerlyfta upp úr þakinu Karin býr og starfar í Berlín og Zürich en hún hefur verið prófessor í myndlist og arkitektúr við ETH í Zürich frá 2007. Verk eftir hana er að finna víða um heim en nú vinnur hún að innsetningarverki í listahá- skóla í Austurríki þar sem glerlyfta ferðast í gegnum húsið og upp fyrir þak hússins þannig að farþegi lyft- unnar geti virt fyrir sér fallegt út- sýni og umhverfi. Verkin gjörólík við fyrstu sýn  Karin Sander myndlistarkona opnar sýningu í i8 galleríi við Tryggvagötu Morgunblaðið/Golli Ísland Karin Sander myndlistarkona opnar sýningu í i8 galleríi í dag en það verður hennar þriðja einkasýning í galleríinu. Hún segir Ísland hafa áhrif á verk sýningarinnar en hún notar m.a. íslenskt grænmeti í Eldhúsverk. Annað og nýtt Karin sýnir verk sem eru ólík við fyrstu sýn en snúast öll um að smávægileg ástandsbreyting opnar fyrir það að búa til eitthvað nýtt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.