Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 35

Morgunblaðið - 11.08.2016, Síða 35
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðu okkar heilsustofnun.is og í síma 483 0300 Læknisfræðileg endurhæfing og þjónusta í 60 ár Við höfum sinnt læknisfræðilegri endurhæfingu og einstaklingsmiðuðum meðferðum í rúm 60 ár þar sem traust og fagleg þjónusta stuðlar að árangri dvalargesta við endurhæfingu, forvarnir og aðlögun að daglegu lífi eftir áföll, veikindi eða sjúkdóma. Kynntu þér fjölbreytt námskeið sem í boði eru og njóttu nálægðar við náttúruna í heilsusamlegu umhverfi í Hveragerði. Nánari upplýsingar um endurhæfingu á http://heilsustofnun.is/endurhaefing. Fjölbreytt námskeið framundan Berum ábyrgð á eigin heilsu Úr fjötrum kvíðans 6.-12. nóvember 2016 Kvíði er eðlileg mannleg tilfinning sem knýr okkur til að vera á varðbergi, tilbúin að bregðast við yfirvofandi hættu. Hjá mörgum verður þó kvíðaviðbragðið of virkt, þ.e. hættuástandið er ofmetið og manneskjan finnur oftar fyrir kvíða en tilefni eða aðstæður eru til. Markmið námskeiðsins er að draga ur einkennum, auka skilning á kvíða, læra að beita eigin hugsunum til að líða betur og róa hugann. Verð 154.000 kr. á mann – 146.300 kr. á mann í tvíbýli Hefst 14. september 2016 Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og streitu. Námskeiðið tengir saman núvitund og hugræna atferlismeðferð og er kerfisbundin þjálfun í að vera í núinu. Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga. Kennt er í átta skipti, einu sinni í viku í tvo tíma í senn. Daglegar hugleiðsluæfingar. Verð 59.000 kr. á mann Ritmennska - skapandi aðferð gegn þunglyndi Helgarnámskeið, 21.-23. október 2016 og 27.-29. janúar 2017 Getur það hjálpað einstaklingum sem eru að ná sér upp úr þunglyndi að skrifa sig frá erfiðum tilfinningum? Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðir þátttakendur í að nálgast skapandi skriflega lýsingu á líðan í þunglyndi og svo að sjá þessa líðan utan frá. Hópeflið og aðferðin er nýtt til að finna nýjar leiðir að bættri líðan Verð 59.000 kr. á mann Líf án streitu Lærðu að njóta lífsins 11.-18. september 2016 Þátttakendur læra að þekkja einkenni streitu, skoða hvað veldur, læra að hægja á og vera til staðar í augnablikinu. Kenndar eru aðferðir til að þekkja streituvalda og einkenni og fá innsýn í leiðir til að auka streituþol. Þátttakendum gefst tækifæri til að skoða eigin líðan og aðstæður og kynnast ólíkum leiðum til að takast á við streitu með það að markmiði að öðlast jafnvægi og ró í daglegu lífi. Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli Sorgin og lífið Ástvinamissir og áföll 2.-9. október 2016 og 5.-12. febrúar 2017 Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að draga úr vanlíðan sem fylgir sorginni og finna leiðir til að efla jákvæð bjargráð í erfiðum aðstæðum. Lögð er áhersla á fræðslu og leiðir til að vinna með sorgina, heildræna nálgun, slökun og hugleiðslu. Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli Komdu með Hressandi sjö daga námskeið 8.-15. janúar 2017 Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna einstaklingum að bera ábyrgð á eigin heilsu, huga að mataræði, reglulegri hreyfingu, streitu og andlegri heilsu. Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli 60 ára Grænumörk 10 - 810 Hveragerði Sími 483 0300 - heilsa@heilsustofnun.is Heilsustofnun NLFÍ Núvitund – mindfulness Átta vikna námskeið, kennt einu sinni í viku, tvo tíma í senn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.