Morgunblaðið - 11.08.2016, Qupperneq 35
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin
má finna á heimasíðu okkar heilsustofnun.is
og í síma 483 0300
Læknisfræðileg endurhæfing og þjónusta í 60 ár
Við höfum sinnt læknisfræðilegri endurhæfingu og einstaklingsmiðuðum meðferðum
í rúm 60 ár þar sem traust og fagleg þjónusta stuðlar að árangri dvalargesta við endurhæfingu,
forvarnir og aðlögun að daglegu lífi eftir áföll, veikindi eða sjúkdóma.
Kynntu þér fjölbreytt námskeið sem í boði eru og njóttu nálægðar við náttúruna
í heilsusamlegu umhverfi í Hveragerði.
Nánari upplýsingar um endurhæfingu á http://heilsustofnun.is/endurhaefing.
Fjölbreytt
námskeið framundan
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Úr fjötrum kvíðans
6.-12. nóvember 2016
Kvíði er eðlileg mannleg tilfinning
sem knýr okkur til að vera á varðbergi,
tilbúin að bregðast við yfirvofandi hættu.
Hjá mörgum verður þó kvíðaviðbragðið of
virkt, þ.e. hættuástandið er ofmetið og manneskjan
finnur oftar fyrir kvíða en tilefni eða aðstæður eru
til. Markmið námskeiðsins er að draga ur einkennum, auka
skilning á kvíða, læra að beita eigin hugsunum til að líða betur
og róa hugann.
Verð 154.000 kr. á mann – 146.300 kr. á mann í tvíbýli
Hefst 14. september 2016
Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og
streitu. Námskeiðið tengir saman núvitund og hugræna
atferlismeðferð og er kerfisbundin þjálfun í að vera í
núinu. Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga.
Kennt er í átta skipti, einu sinni í viku í tvo tíma í senn.
Daglegar hugleiðsluæfingar.
Verð 59.000 kr. á mann
Ritmennska - skapandi aðferð gegn þunglyndi
Helgarnámskeið, 21.-23. október 2016 og 27.-29. janúar 2017
Getur það hjálpað einstaklingum sem eru að ná sér upp
úr þunglyndi að skrifa sig frá erfiðum tilfinningum?
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðir þátttakendur
í að nálgast skapandi skriflega lýsingu á líðan
í þunglyndi og svo að sjá þessa líðan utan frá.
Hópeflið og aðferðin er nýtt til að finna nýjar
leiðir að bættri líðan
Verð 59.000 kr. á mann
Líf án streitu
Lærðu að njóta lífsins
11.-18. september 2016
Þátttakendur læra að þekkja einkenni streitu,
skoða hvað veldur, læra að hægja á og vera til
staðar í augnablikinu. Kenndar eru aðferðir til að
þekkja streituvalda og einkenni og fá innsýn í leiðir til
að auka streituþol. Þátttakendum gefst tækifæri til að skoða
eigin líðan og aðstæður og kynnast ólíkum leiðum til að takast á við
streitu með það að markmiði að öðlast jafnvægi og ró í daglegu lífi.
Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli
Sorgin og lífið
Ástvinamissir og áföll
2.-9. október 2016 og 5.-12. febrúar 2017
Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að draga úr vanlíðan sem
fylgir sorginni og finna leiðir til að efla jákvæð bjargráð í erfiðum aðstæðum.
Lögð er áhersla á fræðslu og leiðir til að vinna með sorgina, heildræna
nálgun, slökun og hugleiðslu.
Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli
Komdu með
Hressandi sjö daga námskeið
8.-15. janúar 2017
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna
einstaklingum að bera ábyrgð á eigin heilsu,
huga að mataræði, reglulegri hreyfingu, streitu
og andlegri heilsu.
Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli
60 ára
Grænumörk 10 - 810 Hveragerði
Sími 483 0300 - heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun NLFÍ
Núvitund – mindfulness
Átta vikna námskeið, kennt einu sinni í viku, tvo tíma í senn