Morgunblaðið - 19.08.2016, Page 12

Morgunblaðið - 19.08.2016, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 Nemum í alþjóðlegum fagháskólum gefst einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Nám erlendis opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina International Education & Know How KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur MacBook Air 13" Þunn og létt með rafhlöðu sem dugar daginn MacBook Pro Retina 13" Alvöru hraði í nettri og léttri hönnun Ótrúleg skjáskerpa Frá 242.990 kr. Mac skólabækurnar fást í iStore Kringlunni Við gerum betur í þjónustu með skjótum og sveigjanlegum vinnubrögðum. Ef MacBook keypt hjá okkur bilar lánum við MacBook tölvu á meðan viðgerð stendur. N ámskeiðaúrvalið hjá Opna háskólanum í HR verður fjölbreyttara með hverju árinu. Dag- skrá vetrarins er farin að taka á sig nokkuð góða mynd og að þessu sinni verða í boði meira en 20 námskeið sem spanna tvær ann- ir. Þá er ótalinn fjöldi stuttra nám- skeiða. „Við erum alltaf með putt- ann á púlsinum og hugmynd að nýju námskeiði sem verður til að morgni getur verið orðin að veru- leika í sömu viku,“ segir Guðmunda Smáradóttir, forstöðumaður Opna háskólans. Á svissneska vísu Námið er sniðið að óskum og þörfum atvinnulífsins og margt í námskránni sem vert er að vekja sérstaka athygli á. „Við erum til að mynda að bjóða aftur upp á nám í hótelstjórnun. Þetta nám hóf göngu sína síðasta vetur og hefur gengið gríðarlega vel. Námið er skipulagt í samstarfi við virtan svissneskan hótelskóla, César Ritz Colleges, kennt á ensku og lýkur fyrsta vetr- inum með diplómagráðu. Í fram- haldi eiga nemendur þess kost að ljúka námi sínu í Sviss og hljóta BIB-gráðu (e. Bachelor of Int- ernational Business). Mikil þörf er á menntun í hótelstjórnun og veit- ingahúsarekstri í ljósi aukins straums erlendra gesta til landsins og hafa viðtökur verið mjög góðar,“ segir Guðmunda. Þá bætist við nýtt nám fyrir stjórnendur í verslun og þjónustu. „Um er að ræða námskeið sem spannar eina önn og tæpir á fjölda atriða sem reynir á í starfi stjórn- andans. Nemendur læra t.d. þjón- ustustjórnun og sölutækni, mann- auðsstjórnun og vinnurétt, leiðtogahæfni, rekstur, fjármál og uppstillingu og framsetningu á vöru,“ útskýrir Guðmunda en nám- ið var þróað í samstarfi við Samtök verslunar og þjónustu og fyrirtæki í verslun og þjónustu. „Eins og með annað nám Opna háskólans miðar kennslan að því að færa nemendum í hendur hagnýta þekkingu sem þeir geta byrjað að nota strax í störfum sínum.“ Liprari mannauðsstjórar Guðmunda nefnir einnig nýtt námskeið í mannauðsstjórnun og leiðtogafærni. „Úti í atvinnulífinu eru margir sem sinna mannauðs- stjórnun án þess endilega að hafa menntað sig sérstaklega til starfs- ins. Svo eru líka margir sem standa mögulega á krossgötum og langar að fást við ný verkefni og áskor- anir. Námskeiðið ætti að höfða til þessa hóps og hafa skráningar farið mjög vel af stað.“ Annað langt námskeið sem verð- ur í boði í vetur fjallar um vinnslu og greiningu gagna. „Öll fyrirtæki eru í dag stútfull af gögnum sem hægt er að vinna og greina til að búa til dýrmætar upplýsingar. Námið fer í greiningarferlið frá a til ö, og læra nemendur á alls kyns verkfæri og verkferla til að aðstoða þá við úrvinnsluna. Spannar námið tvær annir, samtals 130 klukku- tíma, og skiptist í tíu námskeiðs- hluta.“ Aragrúi styttri námskeiða er á dagskrá í vetur. Segir Guðmunda t.d. góða aðsókn í verkefnastjórnun og áætlanagerð, stafræna markaðs- setningu og þá eru Excel- námskeiðin sívinsæl „Sama hvað framboðið á Excel-námi eykst þá eykst eftirspurnin samhliða. Enda er Excel svo fjölhæft og öflugt tæki hvort heldur til að afkasta meiru í starfi eða einfaldlega halda utan um mataruppskriftirnar.“ Með á nótunum Fólk á vinnumarkaði virðist í dag gera sér mjög góða grein fyrir mik- ilvægi símenntunar. Guðmunda bendir á að framfarirnar séu svo miklar á öllum sviðum að þekking fólks og menntun úreldist hratt ef símenntuninni er ekki sinnt. „En gildi símenntunar felst líka í því að fá að umgangast kollegana og styrkja tengslanetið. Vinnuveit- endur eru líka meðvitaðir um að það að fjárfesting í sí- og endur- menntun starfsmanna býr ekki að- eins til öflugri vinnustað heldur eykur jafnframt starfsánægju.“ ai@mbl.is Sniðið að þörfum atvinnulífsins Hótelstjórnunarnámið hef- ur farið vel af stað hjá Opna háskólanum. Í vetur verður meðal annars í boði nýtt nám í mannauðs- stjórnun. Morgunblaðið/Ófeigur Fjárfesting „Vinnuveitendur eru líka meðvitaðir um að það að fjárfesting í sí- og endurmenntun starfsmanna býr ekki aðeins til öflugri vinnustað heldur eykur jafnframt starfsánægju,“ segir Guðmunda Smáradóttir. ’Sama hvað fram-boðið á Excel-námieykst þá eykst eft-irspurnin samhliða. Eitt námskeið vetrarins er hugsað sérstaklega fyrir reynslumikla erlenda stjórnendur. Er um að ræða leið- togaþjálfun sem gerð er eftir erlendri forskrift og fær Opni háskólinn til liðs við sig tvo franska kennara sem hafa sérhæft sig í nýstárlegri kennsluaðferð. „Nám- skeiðið spannar eina helgi og heitir True North VUCA Leadership Training, en VUCA stendur fyrir „Volatility, Uncertainty, Complexity and Ambiguity“,“ segir Guð- munda. „Það sem þátttakendur eiga að fá út úr nám- skeiðinu er að læra að vinna undir miklu álagi í óáreið- anlegu umhverfi, læra nýjar leiðir til að fást við vandamál og vinna saman þvert á menningarheima.“ Námskeiðið minnir helst á Survivor-þátt. „Farið er með fólkið út á land þar sem það þarf að spreyta sig í al- veg nýju umhverfi. Þetta getur verið staður eins og Fimmvörðuháls eða Sólheimasandur og verða þátttak- endur að redda sér. Má vænta þess að þurfa að eyða nóttinni í tjaldi, borða þurrmat og fara út fyrir þæg- indarammann,“ segir Guðmunda og bætir við að vonir standi til að íslensk náttúra laði að þátttakendur. „Sam- bærileg námskeið hafa verið haldin í Frakklandi með góðum árangri en vitaskuld við allt aðrar aðstæður.“ Stjórnendur reyna á getuna í íslenskri náttúru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.