Morgunblaðið - 19.08.2016, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Múlalundur Vinnustofa SÍBS
Reykjalundur 270 Mosfellsbær Sími 562 8500
mulalundur@mulalundur.is www.mulalundur.is
Láttu gott af þér leiða þegar þú verslar skólavörur
Vörur frá Múlalundi skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku
Takk fyrir að versla við Múlalund
Vinnustofa SÍBS
Skólavörur
Fjölbreytt úrval í fallegri verslun í Mosfellsbæ
og vefverslun Múlalundar
Þ
að mætti kalla Íslendinga
Dale Carnegie-þjóð en frá
upphafi hafa rúmlega
25.000 Íslendingar útskrif-
ast af Dale Carnegie-
námskeiðum. „Og þá teljum við ekki
með þá sem hafa komið til okkar á
styttri vinnustofur og kynning-
arfundi, eða þá sem hafa komið á
námskeið en ekki útskrifast,“ segir
Ragna Klara Magnúsdóttir, verk-
efnastjóri og Dale Carnegie-þjálfari.
Lesendur ættu að þekkja Dale
Carnegie-ræðunámskeiðin en starf-
ið gengur þó út á margt fleira en
bara að læra að fanga áheyrendur
þegar komið er upp í ræðustól. „Það
sem byrjaði sem ræðunámskeið hef-
ur þróast meira út í sjálfsuppbygg-
ingu og leiðtogahæfni, þar sem fólk
lærir að vera leiðtoginn í eigin lífi,
taka sínar eigin ákvarðanir og setja
sér markmið og ná þeim.“
Sjálfstraust og jákvætt viðhorf
Meðal þess sem Dale Carnegie
mun leggja sérstaka áherslu á í vet-
ur eru námskeið fyrir ungt fólk. Þar
fá ungmennin gott veganesti til að
takast á við lífið og þær áskoranir
sem fylgja því að fullorðnast. Eru
þessi námskeið aldursskipt, þar sem
byrjað er á miðstigi grunnskólans, 5.
til 7. bekk, svo unglingastigi eða 8. til
10. bekk, því næst framhalds-
skólastigi og loks að ungt fólk á há-
skólaaldri, 21 til 25 ára myndar sér
hóp. „Námsefnið er þó allt það sama
þótt þátttakendum sé skipt eftir
aldri og þjálfunin löguð að þeim aldri
sem um ræðir hverju sinni,“ bætir
Ragna við. „Miðar námskeiðið að því
að auka sjálfstraust, bæta sam-
skiptahæfileikana, tileinka sér já-
kvætt viðhorf og með þessu öllu ná
meiri árangri í lífinu.“
Námskeiðið sem um ræðir spann-
ar átta vikur og hittist hópurinn
Gott veganesti fyrir næstu kynslóð
Dale Carnegie heldur námskeið fyrir ungt fólk frá 5. bekk
upp í háskóla. Þátttakendur eru byggðir upp og læra að
vera leiðtoginn í eigin lífi og ná markmiðum sínum.
Morgunblaðið/Golli
Marghliða „Miðar námskeiðið
að því að auka sjálfstraust, bæta
samskiptahæfileikana, tileinka
sér jákvætt viðhorf og með
þessu öllu ná meiri árangri í líf-
inu,“ segir Ragna.
Hvatning Vanir þjálfarar leiða hópinn í gegnum efnið á jákvæðan hátt.