Morgunblaðið - 19.08.2016, Side 15
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 15
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og
framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Kennslustaður:
Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9 og Laugardalshöll.
E
FL
IR
al
m
an
na
te
ng
sl
/
H
N
O
TS
K
Ó
G
U
R
gr
af
ís
k
hö
nn
un
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Vertu með í vetur!
Innritun fyrir haustönn stendur yfir á www.jsb.is
Kennsla hefst 5. september
Rafræn skráning er á jsb.is, nánari upplýsingar í síma 581 3730
FRAMHALDSNEMENDUR OG NÝNEMAR
Jazzballett
Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur og stráka
frá 6 ára aldri.
Í boði eru byrjenda- og framhaldshópar á aldrinum
6-7 ára, 8-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára og 16 ára og eldri
Uppbyggileg dansþjálfun sem veitir nemendum útrás
fyrir dans- og sköpunargleði.
Unnið er með fjölbreytta tónlist í tímum en dansþjálfunin
eflir tónskynjun, samhæfingu, líkamsstyrk og liðleika.
Frábært dansnám sem eflir og styrkir nemendur, bæði
líkamlega og andlega.
Forskóli fyrir 3-5 ára
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn
á aldrinum 3-5 ára. Dansgleði og hreyfifærni
nemenda virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 1x í viku.
vikulega. Ragna vill ekki gefa of
mikið upp um hvað fer fram í tím-
unum því þjálfunin felst meðal ann-
ars í því að stíga út fyrir þæginda-
hringinn, sem kann að fæla suma
frá. „En krakkarnir njóta leiðsagnar
vandaðra þjálfra sem kunna að
hvetja þau áfram og fylgja þeim með
réttum hætti í gegnum ferlið. Þátt-
takendurnir eru oft stressaðir í
fyrsta tímanum en reynslan sýnir
okkur að þau eru strax orðin miklu
oppnari í næsta tíma, og hægt að sjá
mikinn mun í þriðja eða fjórða tíma.“
Feiminn og fúll
táningur í Noregi
Eflaust eru margir sem óska þess
að þeir hefðu fengið svona þjálfun á
unglingsárunum, enda tímabil sem
vill einkennast af tilefnislausri
óframfærni, bjagaðri sjálfsmynd og
alls kyns kjánaskap sem smám sam-
an víkur með auknu viti og þroska.
Ragna nefnir dæmi úr eigin lífi, um
það þegar hún flutti 13 ára gömul
með fjölskyldu sinni til Noregs.
„Hún mamma var búin að segja mér
að þetta yrði þvílíkt ævintýri, ég
myndi eignast fullt af nýjum vinum
og dvölin í Noregi yrði ótrúlega
skemmtileg. Ég trúði öllu sem hún
sagði og fór mjög bjartsýn út í maí
með allt sumarið framundan. Nema
hvað, það gerðist ekki neitt. Ég
þorði ekki að fara út, þorði ekki að
nálgast neinn, sat bar heima með
fjölskyldunni, saknaði vinanna á Ís-
landi og lét mér leiðast,“ segir
Ragna. „Mér verður stundum hugs-
að til baka um hvað þetta sumar
hefði getað verið öðruvísi ef ég hefði
verið búin að taka Dale Carnegie-
námskeið. Eflaust hefði ég þá drifið
mig út og ekki látið feimnina standa
í vegi fyrir því að kynnast nýju fólki.
Í staðinn fóru fyrstu þrír mánuðirnir
í Noregi í eintóma vorkunn og væl.“
Áskoranir unglingsáranna
Ef eitthvað er þá er núna brýnna
en nokkru sinni að unga fólkið fái
leiðsögn og þjálfun af þessum toga.
Heimurinn er krefjandi fyrir ung-
linga, einkennist af pressu og freist-
ingum. Hætturnar eru á hverju strái
og margt sem getur beint efnilegum
einstaklingum á ranga braut. „Það
er t.d. áskorun fyrir krakkana að
viðhalda jákvæðri sjálfsmynd í allri
þeirri útlitsdýrkun sem þau upplifa
allt í kringum sig, og auðvelt fyrir
þau að upplifa umheiminn þannig að
alltaf sé einhver að dæma þau.“ Eft-
ir því sem ungmennin þroskast
breytast vandamálin. „Í námskeið-
inu sem stílar á fólk á háskólaaldri
eru margir að glíma við það að vera
óákveðnir um hvaða stefnu skal taka
í námi og störfum. Þau eru líka kom-
in á þann stað að vönduð og fagleg
framkoma skiptir enn meira máli,
hvort heldur flytja þarf fyrirlestur í
háskólanum eða koma vel fyrir í at-
vinnuviðtali. Sumt af þessu unga
fólki kvíðir því alveg svakalega að
fara í atvinnuviðtal, þurfa að sitja á
móti manneskju sem það þekkir
ekki neitt og eiga gott samtal um
eigin getu og reynslu.“
Gera upp eigin hug
Foreldrar sem eru að lesa þessa
grein hugsa eflaust, þegar hér er
komið sögu, að svona námskeið væri
tilvalið fyrir þeirra barn. Hvernig á
þá að vekja áhugann hjá ungmenn-
inu? Ragna segir gott fyrsta skref að
koma á kynningarfund. „Við höldum
reglulega kynningarfundi þar sem
foreldrar og ungmennin þeirra geta
fræðst nánar um námskeiðin. Þessir
fundir eru ókeypis og engin skuld-
binding sem fylgir þátttökunni.
Krakkarnir eru oft reiðubúnari að
taka þátt ef þau hafa fengið tækifæri
til að heyra sjálf og meta hvað þeim
stendur til boða, og líklegra til ár-
angurs en ef þau eru neydd til að
taka þátt eða mútað til þess.“
ai@mbl.is
’Krakkarnir eru oftreiðubúnari að takaþátt ef þau hafa fengiðtækifæri til að heyra sjálfog meta hvað þeim
stendur til boða
Þroski Feimni og óframfærni heldur mörgum frá draumum sínum.Styrkur Unglingsárin geta verið ólgusjór og erfið viðfangs.