Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
U
m þessar mundir er skól-
inn að hefja sitt sjöunda
starfsár og þorsti nem-
enda – fyrst og fremst í
fróðleik, nema hvað –
virðist hvergi í rénun. Téðir kenn-
arar við skólann, þeir Stefán Pálsson
og Sveinn Waage, láta alltént vel af
aðsókninni. Auk þeirra Stefáns og
Sveins kenna þeir Höskuldur Sæ-
mundsson og Atli Þór Albertsson við
Bjórskólann.
„Fyrir nokkru var þetta tekið sam-
an og þá kom í ljós að rösklega sex-
tán þúsund manns hafa gengið í
gegnum og útskrifast úr grunnnámi
Bjórskólans,“ útskýrir Sveinn til að
byrja með. „Svo erum við náttúrlega
með endurmenntun og símenntun ef
út í það er farið,“ bætir hann við og
þeir kumpánar kíma við. „Fram-
haldsnámið, sem við köllum Nám-
skeið 203, fór af stað síðasta haust og
hefur gengið mjög vel.“
Grunnnám fyrst, framhald svo
Spurður hvort almennt sé gerð sú
forkrafa í framhaldsnámið að nem-
endur hafi lokið grunnnáminu áður
en þeir takast framhaldsnámið á
hendur segir Sveinn svo vera. Blaða-
maður var hálft í hvoru að grínast en
hér er ekkert spaug í spili.
„Við reynum það, í alvöru, að beina
fólki í þann farveg að taka grunn-
námskeiðið fyrst, af sömu ástæðu og
að þér mun væntanlega ganga
hörmulega í stærðfræði 303 hafirðu
ekki lagt grunninn með neinu námi
þar á undan.“
Þetta segir sig jú sjálft!
„Grunnnámið tekur fyrir þessi
grundvallaratriði, sagnfræði bjórsins
sem er stórskemmtileg, og svo þessi
grunnþekking á bjór; hvað er hann,
hvernig fúnkerar hann og úr hverju
er hann, hverjar eru helstu týpur
hans og hvernig njótum við hans með
tilliti til glasa, hitastigs og fleira í
þessum dúr. Þetta er kjarninn í
grunnnáminu og þegar við erum að
fara í gegnum framhaldið með nem-
endum er óneitanlega betra að þær
upplýsingar séu til staðar.“
Bylting á þekkingu landsmanna
Þegar þeir félagar voru að hefja
kennsluna fyrir sjö árum var tíð-
arandinn talsvert annar hvað þekk-
ingu landans á bjór áhrærði. „Þegar
við vorum að byrja á þessu vissi eng-
inn neitt. Ég óttaðist að fá grjótharða
bjórnörda á námskeið sem myndu
reka mig á gat að gamni sínu. Ég ró-
aðist fljótt með það því að meðal al-
Í Bjórskólanum er skemmtilegt að vera
Enn eitt starfsár Bjórskólans er nú að hefjast og sem fyrr
er námsskráin byggð upp í kringum bjór. Það kann að
hljóma einfalt í eyrum sumra en sé að gáð eru meiri vís-
indi og dýpri sagnfræði að baki bjórnum en búast mætti
við, eins og tveir af fjórum stundakennurum – eða öllu
heldur bjórprófessorum – við Bjórskólann útskýra.
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Bjórmenntun „Ég efast um að neinn hafi upplifað breytingarnar sem orðið hafa á bjórmenningunni hér á landi eins náið og við kennararnir. Við erum að hitta fólkið frá viku til viku og sjáum þróunina glögglega
eiga sér stað. Aðgangur að upplýsingum er svo gríðarlegur í dag að við erum að sama skapi stöðugt að læra eitthvað nýtt af nemendum okkar. Margt af því er mjög gagnlegt og sumt notum við í kennslunni.“
Námsefni Í Ölgerðinni og fótturfyrirtækinu Bo