Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 MORGUNBLAÐIÐ 19
Síðumúli 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 11
-15
Fjölbreytt námskeið
í prjóni og hekli
Ný verslun á nýjum stað
Sjá nánar á www.storkurinn.is
S
kema hefur getið sér gott
orð fyrir að kenna börnum
og unglingum forritun. Nú
hefur fyrirtækið gengið
skrefinu lengra og býður
upp á námskeið fyrir fullorðna þar
sem viðfangsefnið er nálgast með
svipaðri aðferð og á barnanámskeið-
unum og forritunin gerð bæði
skemmtileg og aðgengileg.
Rakel Sölvadóttir er stofnandi og
framkvæmdastjóri Skema. „Fyr-
irtækið var stofnað með það fyrir
augum að mæta þörfum einstaklinga
sem passa ekki alveg inn í mennta-
kassann, og um leið að finna nýjar
leiðir til að nýta tæknina í þágu
menntunar. Bjóðum við upp á nám í
grunnforritun, vefsíðugerð, leikja-
forritun og iPad-forritun. Einnig er-
um við með námskeið sem hugsað er
sem undirbúningur fyrir tölv-
unarfræðinám við Háskólann í
Reykjavík,“ útskýrir Rakel.
Skema hefur áður tekið við full-
orðnum nemendum í kenn-
araþjálfun. „Þar er kennurum kennt
hvernig á að kenna börnum að for-
rita, og að nýta þau stuðningstæki
sem standa til boða við kennsluna,“
segir Rakel.
Lykill að framtíðinni
Lesendur gera sér eflaust flestir
grein fyrir hversu mikils virði það er
að kunna skil á forritun. „Forritun er
í raun eins og hvert annað tungumál,
nema hvað að þetta mál nær yfir
samskipti manns og tölvu. Tölvu-
tæknin mun varða leiðina inn í fram-
tíðina og mun þróunin öll byggja á
forritunarkunnáttu,“ segir Rakel.
„Við viljum undirbúa börnin fyrir
framtíðina svo þau hafi í það minnsta
grunnskilning á forritun og hafi
tækifærið til að vera skaparar frekar
en bara neytendur í þessu nýja um-
hverfi.“
Fyrir óinnvígða getur forritun
virst mjög flókin og torskilin og flest-
ir vita ekki hvað snýr upp og hvað
snýr niður þegar þeir lesa tölvukóða.
Rakel segir að með réttum kennslu-
aðferðum sé hægt að gera þetta
flókna viðfangsefni skiljanlegra og
skemmtilegra. „Gamla aðferðin til að
læra forritun var að krafsa sig í
gegnum þurra og leiðinlega doðr-
anta. Við förum allt aðra leið, not-
umst við myndræna framsetningu á
námsefninu og beitum jákvæðri sál-
fræði til að halda nemendunum við
efnið. Kennsluaðferðirnar hjálpa
krökkunum ekki aðeins að læra for-
ritun heldur öðlast þeir líka verð-
mæta hæfni á borð við athyglisstýr-
ingu og verkefnastjórnun.“
Góður staður til að byrja
Eftir því sem barna- og unglinga-
námskeiðin hafa orðið vinsælli hefur
orðið vart við aukna eftirspurn hjá
fullorðnum að læra forritun með
sama hætti. Rakel segir hægt að
beita sömu aðferðum við kennslu
fullorðinna, og úr varð að bjóða upp á
fullorðinsnámskeið. „Er þetta kjör-
inn valkostur fyrir þá sem hafa
áhuga en treysta sér ekki í að læra
forritun með hefðbundnu leiðinni.“
Meðal námskeiða sem verða í boði
er C++ forritun, leikjaforritun með
Unity 3D, vefsíðugerð og grafík. „Þá
er ótalin foreldrafræðslan, og eflaust
eigum við eftir að bæta við fleiri
námsmöguleikum eftir því sem líður
á veturinn,“ segir Rakel.
Enginn verður samt fullmennt-
aður forritari á einu námskeiði og
þeir bestu í faginu hafa bæði langt
nám og mikla reynslu að baki. Rakel
segir þó að stuttu námskeiðin eigi að
geta komið fólki vel af stað og nýst
vel við ýmis verkefni. „Sá sem vill t.d.
setja upp einfaldan tölvuleik eða vef-
síðu ætti ekki að eiga í nokkrum
vanda með það eftir að hafa setið við-
eigandi námskeið hjá okkur. Þá
gagnast þekkingin mjög vel í öllum
samskiptum við forritara og nytsam-
legt fyrir stjórnanda eða verkkaupa
að geta talað við forritarana á máli
sem þeir skilja.“
Allir geta lært að forrita
Fullorðinsnámskeið Skema eru á
kvöldin og um helgar og spanna allt
frá einni helgi upp í 20 til 30 kennslu-
stundir. Má oft leita til stéttarfélaga
eða vinnustaðar til að taka þátt í
námskostnaðinum og leggur Rakel á
það mikla áherslu að námið eigi að
vera aðgengilegt öllum og engar for-
kröfur gerðar um tölvukunnáttu
nemenda. „Það er t.d. lífseig mýta að
allir forritarar verði að vera miklir
stærðfræðisnillingar eða hafa fram-
úrskarandi rökhugsun. Vissulega
kemur stærðfræðiþekkingin í góðar
þarfir þegar er t.d. verið að gera
flókna forritun eins og bestun gagna-
grunna, en það á ekki við um grunn-
verkefni eins og við erum að fást við í
okkar námsefni. Svo vill það oft ger-
ast að eftir því sem fólk lærir meira í
forritun, þeim mun betra verður það
í stærðfræði og rökhugsun.“
Rakel minnist eins af uppáhalds-
nemendum sínum, sem margir hefðu
eflaust talið fyrir fram að ætti lítið
erindi í forritunarnám. „Hún var
orðin 67 ára þegar hún kom á nám-
skeið hjá okkur, starfaði sem kenn-
ari, og fann sig svona rosalega vel í
náminu að hún hafði á orði: „Það er
ekki séns að ég fari á eftirlaun núna.
Þetta er allt of skemmtilegt!“
ai@mbl.is
Nú getur fullorðna fólkið líka lært hjá Skema
Nota svipaðar aðferðir og
hafa gefist svo vel við að
kenna börnum og ungling-
um að forrita.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðgengilegt „Það er lífseig mýta að allir forritarar verði að vera miklir stærðfræðisnillingar eða hafa framúrskar-
andi rökhugsun,“ segir Rakel Sölvadóttir. Hún segir ekki gerðar neinar forkröfur í fullorðinsnáminu hjá Skema.