Morgunblaðið - 19.08.2016, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
HAUST
NÁM
SKEIÐ
2016
SKRÁ
NING
HAFIN
Nánar á www.mir.is og
í síma 551 1990 milli
kl. 13:00 og 17:00.
K
onur mæta ekkert síður
en karlar til mín á nám-
skeiðin og ég heyri oft frá
þeim sem eru um eða yfir
miðjan aldur að nú ætli
þær loksins að bæta sér það upp að
hafa ekki notið smíðakennslu í skóla
í æsku,“ segir húsgagnasmiðurinn
Guðmundur Jón Stefánsson, betur
þekktur sem Muggi, sem býður upp
á námskeið í húsgagnasmíði í Hand-
verkshúsinu í Kópavogi í haust.
„Það skemmtilegasta við nám-
skeiðið Húsgagnasmíði er að engar
vélar eru notaðar, heldur eingöngu
unnið með handverkfærum.
Við gerum þetta með gamla lag-
inu, ef svo má segja. Námskeiðið er
fyrir þá sem vilja læra að nota
handverkfæri við fínsmíði á ýmsum
hlutum, svo sem húsgögnum og
nytjahlutum. Þátttakendur læra frá
grunni að smíða skemil; kúnstin er
að læra að mæla, saga og hefla með
ýmsum verkfærum sem henta
hverju sinni og setja saman hús-
gagnið. Samsetning skemilsins
byggist svo á geirneglingu því
hvorki er notast við lím, skrúfur né
nagla.“
Fura, linditré og ösp
Muggi útskýrir að um sé að ræða
fjögurra kvölda námskeið í grunn-
tækni við húsgagnasmíði, og engrar
þekkingar sé krafist af þátttak-
endum. „Fjölda nemenda er stillt í
hóf, allt efni er innifalið og verkfæri
útveguð þar sem hver og einn hefur
sína vinnuaðstöðu, sinn hefilbekk út
af fyrir fyrir sig, allan tímann. Nem-
endur kynnast mörgum hliðum
smíðanna með fjölbreyttum, vönd-
uðum handverkfærum og ég byrja á
því að kenna þátttakendum hvernig
á að nota verkfærin, hvernig best er
að beita þeim.
Lykilatriði er að öll verkfæri bíti
vel og ég legg mikla áherslu á það
við þátttakendur. Á námskeiðinu
vinnum við með mjúkan við, að-
allega furu en líka linditré og jafn-
vel ösp. Svo fer ég yfir þetta skref
fyrir skref, hvernig við byrjum, tök-
um spýtu og þurfum að passa að
hefla hana rétt. Spýtan þarf að vera
alveg slétt, hvorki bogin né snúin,
en nemendur læra að rétta hana af
ef stefnir í óefni, og loks þarf að
gæta þess að hefla spýtuna í rétta
þykkt.“
Unnið með hönnuðum
Muggi er menntaður húsgagna-
smiður frá Iðnskólanum í Reykja-
vík, tók sveinsprófið 1998 og lauk
meistaraprófi 2003. „Ég hef unnið
ýmiss konar smíðavinnu; starfað í
húsgagnaverksmiðju, unnið við hús-
gagnaviðgerðir, timburhúsasmíði,
viðgerð gamalla húsa, sérsmíði og
starfað með nokkrum íslenskum
húsgagnahönnuðum og hugmynda-
smiðum.“
Frá árinu 2008 hefur Muggi starf-
að í verslun Handverkshússins og
er því í nánum tengslum við við-
skiptavini. „Hér býð ég reglulega
upp á brýnslunámskeið og hef
nokkrum sinnum haldið námskeið í
yfirborðsmeðhöndlun á tré, eða
notkun á lakki, olíu og bæsi. Ég hélt
mitt fyrsta námskeið í húsgagna-
smíði 2013 og það fékk strax góðar
viðtökur. Það er greinilegt að marg-
ir eru áhugasamir um að læra að
smíða sín eigin húsgögn og húsmuni
og fólki finnst það sérstaklega
heillandi að notast eingöngu við
handverkfæri.
Á húsgagnasmíðanámskeiðunum
fæ ég yfirleitt til mín fólk sem hefur
Morgunblaðið/Ófeigur
Upprunalegt „Það er greinilegt að margir eru áhugasamir um að læra að smíða sín eigin húsgögn og hús-
muni og fólki finnst það sérstaklega heillandi að notast eingöngu við handverkfæri,“ segir Guðmundur Jón
Stefánsson húsgagnasmiður.
Geirneglt með
gamla laginu
Húsgagnasmiðurinn Guð-
mundur Jón Stefánsson,
oftast nefndur Muggi,
heldur vinsæl námskeið í
Handverkshúsinu í Kópa-
vogi þar sem þátttakendur
læra að smíða húsgögn
með handverkfærum og án
þess að notast við lím,
skrúfur eða nagla.
Morgunblaðið/Ófeigur
Handverk „Það skemmtilegasta við námskeiðið Húsgagnasmíði er að
engar vélar eru notaðar, heldur eingöngu unnið með handverkfærum.
’Fæstir hafa notaðhandhefil áður.prófað ýmislegt í höndunum, hefuráhuga á hvers kyns handverki oglangar að bæta við sig kunnáttu í
húsgagnasmíðum. Fæstir hafa not-
að handhefil áður. Þátttakendur eru
á ýmsum aldri, karlar og konur, allt
frá þrítugu og upp í ellilífeyrisþega.
Það þarf ekki líkamlegan styrk til
þess að smíða húsgögn, þetta er að-
eins spurning um tækni og því eru
húsgagnasmíðar á allra færi.“
Hefillinn í bílskúrnum
Spurður út í framhaldið, að nám-
skeiðinu loknu, segir Muggi þátt-
takendur ekki þurfa að fjárfesta í
miklum græjum til að geta nýtt sér
kunnáttuna og smíðað heima. „Það
sem þarf til að smíða húsgagn er
handhefill, sporjárn, tvö til sex
stykki, góð sög, vinkill, sniðmát,
rissmát, blýantur, hamar og mæli-
tæki, tommustokkur eða málband.
Svo þarf að brýna verkfærin og því
er nauðsynlegt að eiga þrjú brýni.
Vinnuaðstaða þarf náttúrlega að
vera fyrir hendi; upphitað herbergi,
geymsla eða bílskúr, eftir því sem
aðstæður leyfa. Auðvitað er ekki
verra að eiga hefilbekk í bíl-
skúrnum, það má líka breyta gömlu
borði eða smíða sér aðstöðu, en
bekkurinn þarf að vera stöðugur
sem klettur. En eins og áður sagði,
hefilbekkurinn er ekki nauðsyn,
handhefill dugir fyllilega.“
www.handverkshusid.is
beggo@mbl.is