Morgunblaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Frá kr.
73.565
Flugsæti á 2fyrir1 tilboði
m/gistingu
COSTA DEL SOL
1. september í 11 nætur
Netverð á mann frá kr. 73.565 m.v. 2 fullorðna og
1 barn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 91.995 m.v.
2 fullorðna í stúdíó.
Aguamarina
Aparthotel
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
irá
sk
ilja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
FY
RI
R2 1
Einnig unnt að bókam/allt innifalið!
FLUGSÆTI
2fyrir1
kr. 34.950
Verð áður
kr. 69.900
Stefnt er að því að í öllum sund-
laugum Reykjavíkur verði svokall-
aðir kynlausir klefar, þar sem ein-
staklingar geti haft klæðaskipti í
sérstöku einkarými. Þetta segir
Þórgnýr Thoroddsen, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs borg-
arinnar, en á síðasta fundi ráðsins
var tekið fyrir bréf frá mannrétt-
indaskrifstofu borgarinnar þessa
efnis.
Hann segir þrjár sundlaugar,
Laugardalslaug, Árbæjarlaug og
Grafarvogslaug, þegar bjóða upp á
einkaklefa, sem aðgengilegir séu
þeim sem á þurfi að halda, hverjar
svo sem ástæður þess kunni að
vera.
„Í raun eru þessir klefar al-
mennt notaðir af þeim sem eru í
hjólastólum eða öðrum sem þurfa
einhvers konar aðstoð, auk trans-
fólks, og í þeim eru skápar, sturta,
salerni og allt tilheyrandi. Þessi
stefna snýr að því að gera klefana
almenna, merkja þá og auglýsa,
og að lokum tryggja að þeir séu í
boði í öllum sundlaugum.“
Hver sem er geti þá fengið að-
gang að klefunum. „Þegar komið
er í laugina er einfaldlega beðið
um aðgang í afgreiðslunni,“ segir
Þórgnýr og bætir við að þegar
tækifæri gefist, svo sem þegar
framkvæmdir eigi sér stað, eigi
hönnun að taka mið af því að
svona klefar verði einnig til
staðar.
Því til dæmis bendir hann á
framkvæmdir við stækkun
Sundhallarinnar, þar sem kynlaus-
ir klefar verði til frambúðar að
þeim loknum.
Aðspurður segir hann að lokum
að kostnaður sem þessu fylgi sé
minniháttar og að samstaða hafi
verið um þessa stefnu í ráðinu.
sh@mbl.is
Kynlausir klefar verði í
öllum laugum borgarinnar
Morgunblaðið/Eva Björk
Laugardalslaug Samstaða var um
málið í íþrótta- og tómstundaráði.
Þegar til staðar
í þremur laugum
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Lokaskýrsla verkefnisstjórnar 3.
áfanga verndar- og orkunýtingar-
áætlunar miðar miklu lengra í átt til
verndar en á fyrri stigum verndar-
og orkunýtingaráætlunarinnar að
mati Guðna A. Jóhannessonar orku-
málastjóra.
Telur hann að ósamræmi sé milli
einkunnagjafar í 2. og 3. áfanga
rammaáætlunarinnar.
Skýrslan var afhent umhverfis-
ráðherra í lok síðustu viku en engar
breytingar voru gerðar í samræmi
við athugasemdir hagsmunaaðila.
„Pakkað í vörn“
„Það kom auðvitað inn töluvert af
athugasemdum við þetta og það hef-
ur ekki haft í för með sér neinar
breytingar af hálfu
verkefnisstjórnarinnar, þannig að
þeir hafa pakkað í vörn, ef svo má
segja, fyrir sína afurð. Það er svo
sem lítið um það að segja. Hins veg-
ar eru þeirra röksemdir komnar
fram og röksemdir þeirra sem hafa
gert athugasemdir. Þeir sem vinna
með þetta í framhaldinu hafa þá úr
einhverju að moða,“ segir Guðni og
vísar til Alþingis og ríkisstjórnar.
Að hans sögn hafi meginstefið í at-
hugasemdum Orkustofnunar snúið
að einkunnagjöfinni.
„Það má segja að á fjórum árum
hafi viðhorf manna til náttúru-
verndarlaga gjörbreyst og sérstak-
lega í ljósi þess að stór hluti ramma-
áætlunar hefur ekki verið
endurskoðaður. Þessir kostir sem
skoðaðir hafa verið núna eru í raun-
inni undir allt annarri mælistiku en
þeir kostir sem voru afgreiddir í síð-
ustu rammaáætlun. Það var tekið
sérstaklega fram í erindisbréfi verk-
efnastjórnarinnar að hún ætti að
taka mið af því sem áður hefur verið
gert, í fyrri áföngum,“ segir Guðni.
„Í ljós kemur að gengið hefur ver-
ið miklu lengra í átt til verndar en
áður. Það hefði verið heppilegra að
taka mið af þeim aðferðum og við-
miðum sem voru notuð í síðustu
rammaáætlun, í samræmi við erind-
isbréfið,“ segir Guðni.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar
vildu ekki tjá sig um innihald skýrsl-
unnar fyrr en að lokinni yfirferð.
Morgunblaðið/RAX
Hólmsá Tveir fulltrúar verkefnastjórnarinnar lögðu til að Hólmsárvirkjun yrði færð í nýtingarflokk.
3. áfangi rammaáætl-
unar í átt til verndar
Orkumálastjóri segir ósamræmi í einkunnagjöfinni
Einn þeirra þátta sem tekin er
afstaða til í skýrslunni eru
vindorkustöðvar, en sú virkj-
unarhugmynd sem talin er
hafa mest áhrif á umhverfið er
Búrfellslundur. Segir í skýrsl-
unni að sjónræn áhrif vind-
myllna séu mikil og hafi um-
talsverð áhrif á ásýnd
umhverfisins.
Í rökstuðningi fyrir því að
áhrifin nái til stærra svæðis en
þar sem sjáist til myllnanna,
eru m.a. gönguleiðirnar Hellis-
mannaleið og Sprengisandsleið
nefndar. Segir í skýrslunni að
þótt ekki sjáist í myllurnar
nema hluta af leiðunum spilli
þær heildstæðri upplifun
ferðafólks á svæðinu.
Stærsta
áhrifasvæðið
MIKIL ÁHRIF VINDMYLLNA
Lilja Dögg Al-
freðsdóttir leiðir
lista Framsókn-
arflokksins í
Reykjavíkur-
kjördæmi suður,
eftir kosningu á
tvöföldu kjör-
dæmaþingi í
Reykjavík á laug-
ardag. Lilja Dögg
tók við embætti
utanríkisráðherra í apríl síðast-
liðnum. Á sama þingi var Karl Garð-
arsson alþingismaður kosinn til að
leiða lista flokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi norður. Hlaut Karl 57%
atkvæða gegn 43% atkvæða Þor-
steins Sæmundssonar alþingis-
manns.
Í samtali við mbl.is sagðist Þor-
steinn ekki víst hvað tæki nú við.
„Ég hef tæplega sextíu ára reynslu
af því að vera ekki á þingi, svo líf
mitt hefur ekki alveg snúist um það.
Þetta er eins og með allt annað í líf-
inu, maður hættir í einhverju og
byrjar á einhverju öðru.“ sh@mbl.is
Lilja og Karl leiða
Framsókn í borginni
Þorsteinn Sæmundsson ekki á lista
Karl
Garðarsson
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Þorsteinn
Sæmundsson
Héraðsdómslögmennirnir Lárus
Sigurður Lárusson og Sævar Þór
Jónsson sitja hlið við hlið á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður fyrir komandi
þingkosningar. Sævar og Lárus
eru giftir og eiga saman einn
son, en báðir gefa þeir kost á sér
til setu á Alþingi í fyrsta sinn.
„Við erum að stíga okkar
fyrstu skref í þessu,“ segir Sævar
í samtali við mbl.is. „Ég hef
kannski meira látið kveða að mér
opinberlega í greinaskrifum,“
segir Sævar, sem kveðst lítið hafa
verið virkur í pólitík hingað til.
Lárus hefur aftur á móti verið
virkur í Framsóknarflokknum í
um 20 ár.
Sammála að meginstefnu
„Það var nú ekkert þannig séð
rígur á milli okkar, ég sóttist eft-
ir þriðja sætinu og hann sóttist
eftir öðru sæti,“ segir Sævar, en
báðir hrepptu þeir þau sæti sem
þeir sóttust eftir. Lárus gaf einn
kost á sér í annað sæti á lista og
var sæti hans því nokkuð öruggt
en Sævar átti í baráttu um þriðja
sætið.
Sævar segir þá Lárus vera að
meginstefnu sammála í pólitíkinni
þótt vissulega hafi þeir ólíkar
áherslur í ýmsum málum.
„Það má ekki búast við því að
við verðum samstíga í öllum mál-
um þó að við séum giftir,“ segir
Sævar léttur í bragði.
„Það er nú líklegra að Lárus
komist á þing en ég,“ segir Sæv-
ar, spurður hvernig þeim hugnist
að verða samstarfsmenn á þingi,
fari svo að báðir nái þeir kjöri.
„En ef til þess kæmi væri það nú
bara mjög spennandi. Við eigum
strák saman og erum saman á
lögmannsstofu þannig að ég held
að það muni nú ekki breytast
neitt mikið.“ elinm@mbl.is
Makar sessunaut-
ar á framboðslista
Giftir lögmenn hlutu 2. og 3. sæti
Morgunblaðið/Eva Björk
Samstíga Lárus Sigurður og Sævar
Þór ásamt syni þeirra, Andra.