Morgunblaðið - 29.08.2016, Page 13

Morgunblaðið - 29.08.2016, Page 13
Morgunblaðið/Eggert Heilsa Geir Gunnar Markússon næringafræðingur ásamt hundinum Böffý. Að mati Geirs Gunnars er sykur ekki eit- ur, en hann vill reyna að höfða til almennings með því að að beita ýmsum leiðum við að minnka sykurneysluna. „gourmet“, setjumst í uppáhalds- stólinn okkar með uppáhalds rjómalagaða, sykurhúðaða súkku- laðið okkar og njótum þess. Ekki borða fulla skál og éta á okkur gat. Sykurneysla á ekki að vera í brjál- æði heldur eigum við að vera með- vituð um hvað við erum að gera.“ Fyrsta skrefið í átt að minni sykurneyslu er einmitt aukin með- vitund meðal neytenda, að mati Geirs Gunnars. „Það er einnig þörf á aukinni fræðslu og svo skiptir máli að lesa á umbúðir. Mjólkur- vörur er til dæmis í grunninn mjög hollar, prótein- og kalkríkar vörur, en svo eru til mjólkurvörur sem búið er að bæta allt of miklum sykri í, eins og skyr og jógúrt. Einfalda reglan með mjólkurvörur er að reyna að velja þær alltaf hreinar og hvítar. Svo er hægt að sæta sjálfur heima með berjum til dæmis.“ Geir Gunnar þekkir þó dæmi þar sem fólk með matarfíkn hefur þurft að tileinka sér sykurlausan lífsstíl. „Sykur ýtir undir fíknar- ástand. Ég held að hinn almenni borgari ætti að lifa sykurminna lífi 365 daga á ári í stað þess að taka einhverja kúra. Það er kannski ekki svarið sem fólk leitast eftir, við virðumst alltaf vera að leita að einhverjum sexý kúrum. En þeir eru oftast ekki lausnin.“ Sætuefnin engu skárri Umræða um sykurlausa drykki, fæðu og sætuefni verður sí- fellt meira áberandi en Geir Gunn- ar telur að sú neysla sé ekkert skárri kostur. „Náttúrulækninga- félag Íslands hélt fyrirlestur í vor um sætuefni og þar komu meðal annars saman þrír sérfræðingar í pallborðsumræðu og þeir voru allir sammála um að við ættum frekar að temja okkur hóf í sykrinum í stað þess að nota sætuefni. Þetta eru gerviefni en ekki efni sem lík- aminn er alveg sáttur við. Við ætt- um því frekar að fá okkur hnall- þóruna hennar ömmu einu sinni, tvisvar í mánuði frekar en að reyna endalaust að búa til hollari uppskriftir með fullt af sætuefn- um.“ Geir Gunnar nefnir dæmi um steviu sem dæmi um nýjasta tísku- fyrirbærið í heilsugeiranum. „Heilsa er mikið markaðssett og það er alltaf verið að finna eitthvað nýtt og skemmtilegt. Þetta er stór markaður en ég held að heilbrigt og gott mataræði, það er fæðu- hringurinn, verði aldrei sexý eða nógu spennandi, en það er það sem virkar, að borða fjölbreytt og reglulega.“ Í kjólnum allt árið Geir Gunnar mun fara yfir ýmislegt tengt minnkandi sykur- neyslu á fyrirlestri sínum á fimmtudag. Hann segir þetta enga töfralausn, heldur tilraun til að breyta viðhorfi fólks. „Ég vona að þetta verði upphafið af einhverju frábæru, ég vil fá fólk með mér í hreyfingu og gott mataræði, ekki bara fram að jólum, heldur ætlum við að halda okkur í kjólnum fram að páskum og svo aftur til næstu jóla. Þetta verður upphaf að góðum lífsstíl, þótt lífsstíll sé ofnotað orð. Þetta snýst um nýtt líf þó svo að við ætlum ekki að sigra heiminn á einum degi.“ Fyrirlesturinn fer fram í Heilsu og Spa, Ármúla 9, fimmtu- daginn 1. september klukkan 17:30 og er um klukkutími að lengd. Verð er 2.000 krónur en frítt er fyrir iðkendur Heilsu og Spa. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Við trúum því að fegurðin sé lifandi, sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi. Alveg eins og náttúran sjálf. Til að viðhalda æskuljóma húðar þinnar höfum við tínt saman immortelle, blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar. Divine Cream fegrar svipbrigði þín og hjálpar við að lagfæra helstu ummerki öldrunar. Húðin virðist sléttari, *Ánægja prófuð hjá 95 konum í 6 mánuði. Húðin virðist unglegri Mimi Thorisson er franskur matarbloggari. Divine Cream með Immortelle blómum HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ FYRIR LIFANDI FEGURÐ Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland Nú þegar berjalyng um land allt er þrungið af ávöxtum sínum, blessuð- um berjunum, er aldeilis lag að skella sér í berjamó áður en næturfrostið skellur á okkur og skemmir gómsæt- ið. Fátt er betra en að eiga þessa vít- amínhlöðnu bolta fyrir dimman vetur, þeim má skella í frysti og draga fram við bakstur nú eða á morgnana, beint út á grautinn eða kurlið. Bæði bláber, krækiber og aðalbláber eru stútfull af andoxunarefnum og annarri heilsubætandi hollustu, svo það er bannað að láta þessa dásemd fram hjá sér fara. Hvur að verða síðastur Morgunblaðið/Ómar Bláber Gott gúmmelaði fyrir alla. Farið í berjamó Boðið verður upp á heimanámsað- stoð fyrir nemendur í grunnskólum á aðalsafni Bókasafns Kópavogs alla þriðjudaga í vetur. Fyrsta heima- námsaðstoðin fer fram á morgun milli klukkan 14:30 og 16:30. Aðstoð- in er opin öllum grunnskólanemum bæjarins og þurfa nemendur ekki að skrá sig. Kennari mun aðstoða nemendur við heimanámið og það er engin mætingarskylda. Heimanámsaðstoðin er ókeypis. Morgunblaðið/Styrmir Kári Nám Það er kósý að læra á bókasafni. Aðstoð við heimanámið Heilabrot í Kópavogi Tjaldsvæði Þessir tóku því rólega á tjaldsvæði en settust ekki í stólana. Umferðarreglur Ekki fer sögum af því hvort þessi kann umferðarreglur. Í starfi sínu vinnur Geir Gunnar mikið með fólki sem glímir við hina ýmsu lífsstílssjúkdóma. „Það er staðreynd að stóran hluta af lífsstíls- sjúkdómum má rekja til næringar. Mér finnst það áhugavert og í mínum störfum hvetur það mig áfram að með því að hvetja fólk til hollari lífs- hátta næ ég að bæta líf þeirra. Það eru lífsstíls- sjúkdómar sem eru að drepa okkur í dag, en ekki alvarlegar veirur eða sýkingar. Við höfum lækninguna í okkar hönd- um, sem er betri næring og meiri hreyfing.“ Lækningin í okkar höndum LÍFSSTÍLSSJÚKDÓMAR SEM VALDA DAUÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.