Morgunblaðið - 29.08.2016, Side 21

Morgunblaðið - 29.08.2016, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Hér í Vesturbænum er haustdagskráin að taka á sig mynd. Opna vinnustofan alla daga kl. 9, félagsvist alla mánudaga kl. 13, útskurður byrjar 5. sept., tálgun 6. sept, bókaklúbbur 8. sept. Postulín og myndlist 13., 14., 15. sept. Fyrsta BINGÓ 23. sept. og leik- fimi 1. okt. Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30-16, Zumba gold meðTanya kl. 10.30–11.30, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30–16.30, félagsvist með vinningum kl. 13, bútasaumur, ljósbrotið kl. 13-16. Boðinn Félagsvist kl. 13. Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá 9:30-16. Bridge í Jónshúsi kl 13. Ath, vatnsleikfimi og kvennaleikfimi hefst mánudaginn 5. september nk. Gjábakki Handavinna kl. 9, lomber kl. 13, handavinna kl. 13, kanasta kl. 13.15. Dans hjá Sigvalda hefst 15. september, síðdegisdans hjá Heiðari hefst 16. september, söngur hjá Ingvari, annan hvern mið- vikudag, hefst 21. september, postulín hjá Rannsý hefst 12. septem- ber, bókband hjá Stefáni hefst 15. september, tréskurður hjá Friðgeiri hefst 22. september, bingó FEBK, annan hvern fimmtudag kl. 13.30, hefst 1. september. Lomber og kanasta alla mánudaga kl. 13. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10, göngu- hópur kl. 10.30 – þegar veður leyfir, Dóra djákni í heimsókn kl. 10–12, hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30 Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Kaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, handavinnuhornið kl. 13, myndlist hjá Margréti Zóphoníasd. kl.12.30, félagsvist kl. 13.15. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu, nánar í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, trésmiðja kl. 13–16, samverustund með djákna kl. 13.30, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2. hæð kl. 15.30. Uppl. í síma 4112760. Selið, Sléttuvegi 11–13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og búsetu. Opið er kl. 10–14. Matur er afgreiddur kl. 11.30–12.30. Nánari upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568-2586. Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13, leir Skólabraut kl. 9, billj- ard Selinu kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, handavinna með meiru kl. 13 í salnum á Skólabraut, vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. Jóga byrjar fimmtudaginn 1. sept. Allir velkomnir til þátttöku í félags og tómstundastarfinu. Smáauglýsingar Geymslur Ferðavagnageymsla Borgarfirði Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól- hýsi, báta og fleira í upphituðu rými. Gott verð. Sími 499-3070. Sólbakki. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is fasteignir ✝ Baldvin Schev-ing Jónsson fæddist á Urðarstíg 11 í Reykjavík 21. desember 1922. Hann lést á Lands- spítalanum við Hringbraut 18. ágúst 2016. Foreldrar hans voru Jón Magnús- son, f. 12.8. 1881, d. 18.4. 1955, og Hólm- fríður Pálsdóttir, f. 5.12. 1884, d. 20.3. 1943. Hann átti átta systkini Þau voru: Sigurjón Jónsson, f. 19.4. 1903, d. 27.2. 1995. Páll Scheving Jónsson, f. 9.8. 1908, d. (síðar Jónsson), f. 24.2. 1916, d. 19.5. 2013, á Íslandi þar sem hún hafði komið frá Færeyjum til að vinna á Vífilsstaðaspítala í skamm- an tíma. Þau giftu sig 28. júní 1947. Hann vann mestalla ævi sína í Hampiðjunni. Saman áttu þau einn son, Jón Baldvinsson, f. 20.12. 1947, d. 30.3. 1992. Börn hans og fyrrverandi eiginkonu hans, Helgu Stolzenwald, eru a) Helena María, hún á þrjú börn og tvö stjúpbörn, b) Baldvin, hann á þrjú börn, c) Berglind, hún á tvö börn, d) Líney Rakel, hún á sex börn, og e) Anna Björg, hún á fjögur börn. Fyrir átti Paulína einn son, Herolv Andr- easen, f. 13.9. 1939, d. 7.2. 1999. Börn hans eru: a) Mary Tindskarð, hún á tvær dætur, b) Jonna M. Ped- ersen, hún á þrjú börn og c) Jörgin Ewald Solmunde. Útför Baldvins fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 29. ágúst 2016, og hefst athöfnin klukkan 11. 12.10. 1932. Ragna Magnea Scheving, f. 30.7. 1909, d. 27.3. 1912. Kristjana Guð- rún Jónsdóttir, f. 1.8. 1910, d. 10.6. 1936. Magnea Jónsdóttir, f. 28.7. 1912, d. 1.4. 1936. Ragnar Schev- ing Jónsson, f. 20.6, 1914, d. 20.3. 1989. Sigríður Þórunn Jónsdóttir, f. 7.8. 1918, d. 20.3. 1997. Guðbjörn Scheving Jónsson, f. 2.6. 1926, d. 1.6. 2016. Baldvin ólst upp í Reykjavík og kynntist konunni sinni, Paulínu Jakobínu Joensen Elsku, elsku afi okkar. Nú ertu farinn frá okkur, en þú kvaddir okkur hinn 18. ágúst síðastliðinn. En um leið ertu sameinaður ömmu aftur og elsku pabba okkar, sem kvaddi þetta líf alltof ungur. Það er mikill söknuður eftir ykkur öllum. Ég gleymi því aldrei þegar þú varst að keyra um með okkur barnabörnin, hvað okkur fannst gaman í bíl með þér og ömmu og alltaf áttuð þið til afanammi í hanskahólfinu eins og við kölluð- um það. Og þegar við heimsóttum ykkur í Breiðagerðið áttir þú alltaf fulla skál af kúlum sem börnin og við hlupum í, ef skálin kláraðist þá var einhver sem reddaði því að kaupa nammi strax og fyllt var á skálina. Þegar ég giftist svo ástinni minni Árna Elvari árið 2002 þá fékkst þú heiðurinn af því að leiða mig inn kirkjugólfið og ég var svo stolt af því að hafa þig mér við hlið og þú varst einnig svo glaður og stoltur að fá að leiða mig inn gólfið. Þegar þú fluttir svo á Sólvang eftir að amma fór þá reyndi ég að vera dugleg að heimsækja þig, elsku afi minn, og reyndi í flestum heimsóknum að hafa eitthvað af börnunum með og nokkrar súkku- laðiplötur að sjálfsögðu því þú varst jú víst sá mesti nammikall sem við þekktum. Börnunum fannst ekki leiðinlegt að fá að koma með í heimsókn til þín, elsku afi. Þú bauðst þeim alltaf súkku- laðibita og þau gáfu þér. Margréti Línu fannst svo gaman að heim- sækja þig hún fagnaði alltaf upp- hátt úti í bíl: „Við erum komin til afa.“ Hún elskaði að fá að stinga súkkulaðimola upp í þig og svo fékk hún sér alltaf líka um leið og hún gaf þér. Mér fannst svo gam- an að sjá bros þitt skína og hvað þú lifnaðir allur við að sjá okkur koma. Og frá minni fyrstu heim- sókn á Sólvang, þegar ég kom allt- af með Margréti Línu dóttur mína ca. 3-4 mánaða í barnabílstól, fyrir þremur árum og nú þar til undir það síðasta þá varstu alltaf að monta þig af nafninu hennar Mar- grétar Línu þegar við komum til þín. Starfsfólkið og fólkið sem bjó á Sólvangi fékk mjög oft að heyra það að hún var skírð eftir tveimur ömmum sínum og þú varst svo montinn yfir því að hún var skírð eftir konunni þinni, ömmu okkar, Lína. Margs er að minnast um hann afa glaður og góður kall hann var stundvís var hann og vel til fara félagslyndi hann alltaf bar. Guð þig leiddi himnaríki í á móti þér tók hópur af fólki þú komst þar og settist á ský. En amma stóð þar á stólpi hún tilbúin var að giftast á ný skotið var úr fallbyssuhólki þið hringa upp settuð og fóruð í frí. (Líney Rakel Jónsdóttir.) Takk fyrir allt sem þú varst og gerðir, elsku afi. Hvíl í friði. Ég elska þig, afi minn. Líney Rakel Jónsdóttir. Elsku afi. Hvar á ég að byrja? Þegar ég vissi að þú varst kominn upp á spítala vissi ég að þú ættir ekki langt eftir. Ég kom og sat hjá þér heila kvöldstund, þó að þú gæt- ir varla talað þá hlóstu samt þegar ég labbaði inn og sagði Anna Margret eins og öll skipti síðustu ár – alltaf koma þetta bros yfir allt andlitið þegar þú sást mig og þú hlóst í hvert sinn sem ég sagði: „Þetta er bara ég, Anna Margret.“ Fyrir mér var ég ekki merkileg en fyrir þér var ég svo miklu meira. Þú varst mér miklu meira en bara afi, þú varst eins og uppeldisfor- eldri númer tvö. Ég hef eytt meira en hálfri ævi minni heima hjá þér, hvort sem ég bjó þar eða í heim- sókn. Þegar ég fór í fyrsta og annan bekk í skólanum hjá ykkur þá skutlaðir þú mér yfir götuna í skól- ann, svo mikil prinsessa var ég. Þegar ég byrjaði í framhaldsskóla varst þú mættur alla morgna klukkan sjö til að fá þér einn kaffi- bolla með mjólk og ½ lítra af sykri, til að skutla mér svo í skólann. Þeg- ar ég byrjaði í minni fyrstu vinnu um helgar skutlaðir þú mér og sótt- ir mig allar helgar. Þetta gerðir þú í heilt ár þar til ég fékk bílpróf. Og manstu þegar við fórum og fengum okkur alltaf ís í brauðformi og þú borðaðir þinn svo hægt til þess að geta skipt við mig þegar ég var komin að brauðforminu og manstu öll skiptin sem ég hringdi til að fá að lúlla hjá ykkur ömmu og þú fórst alltaf í sófann svo ég gæti sofið í rúminu ykkar. Og manstu öll skipt- in sem við fórum í húsdýragarðinn og ég fékk að hlaupa um allt á með- an þú tókst allt upp á eldgömlu ca- meruna þína og þú beiðst við hlið- ina mér allan tímann sem ég stóð í röð til að komast í bílana aftur og aftur. Þú varst alltaf til staðar, þú varst alltaf tilbúinn að gera allt fyr- ir prinsessuna þína. Aldrei hik og aldrei nei. það eru svo margir tímar og minningar sem við eigum saman sem passa ekki á eitt blað. Allur þessi tími er ómetanlegur og ég mun halda í hann þar til ég fer til þín og ömmu. Ég veit að þú ert komin á miklu betri stað og þér líð- ur mun betur og ég er nokkuð viss um að amma hafi setið með kross- lagða fætur og hendur, muldrandi, og spennt að sjá þig aftur. Ég skal viðurkenna að ég féll saman þegar ég kom á bænastundina hjá þér og þú bara lást þarna – eða líkaminn þinn – svo tómur en samt svo frið- sæll. Þjáningin var á enda fyrir þig og það er það sem skiptir öllu máli. Ég elska þig, elsku besti afi sem til hefur verið á jarðríki. Ég veit að þú heldur áfram að fylgja mér í gegn- um lífið og fussa yfir ýmsu sem ég geri en þú ert samt alltaf stoltur af mér. Þín prinsessa, bara ég, Anna Margret. Elsku afi, þá ertu kominn í faðm þinnar yndislegu fjölskyldu sem ég veit að þú saknaðir svo innilega. Það er mjög skrýtið að hugsa um að þú sért farinn og við hittum þig ekki aftur en ég veit að þú ert kom- inn heim til ömmu og pabba og allra hinna sem þér þykir svo vænt um. Þú varst alveg einstakur maður mikið snyrtimenni og mikill ná- kvæmnismaður. Þú og amma byggðuð ykkur heimili að Breiða- gerði 11 á þeim tíma sem sement var skammtað eins og allt annað og þetta gerðuð þið af mikilli alúð og þolinmæði og alla tíð síðan hugs- uðuð þið mjög vel um ykkar heimili. Garðurinn alltaf vel snyrtur, trén klippt og húsið málað og lagað á hverju ári, það var aldrei setið auð- um höndum. Á veturna voru gang- stéttar og innkeyrsla mokuð svo vel, kantskorið með skóflunni í þráðbeina og vel breiða stíga svo allir kæmust vel að og frá húsinu. Ef það þurfti að láta skutla sér eða sækja sig einhvers staðar varst þú alltaf boðinn og búinn og fljótur á staðinn þú sagðir aldrei nei ef þú varst beðinn. Þið voruð bestu amma og afi í heimi og þær voru ekki fáar ferðirnar sem farið var með barnabörnin eða barnabarna- börnin í ferðalög innanlands eða ut- anlands og þá oft til Færeyja sem var ykkur mjög hjartfólginn stað- ur, enda amma frá Færeyjum og fólkið þar okkur mjög kært. Þegar ég hugsa um þig, afi, sé ég alltaf fyrir mér mjög rólegan þol- inmóðan og góðan mann, þú hugs- aðir alltaf vel um konuna þína eins og hún væri drottning sem hún sannarlega var hjá þér og það var mjög erfitt fyrir ykkur að missa einkasoninn þinn, hann pabba, allt of snemma og svo Herolv stuttu seinna. En áfram hélt lífið og þið hafið alltaf staðið ykkur eins og hetjur í gegnum gleði og sorg. Mennirnir okkar systra kölluðu ykkur alltaf líka ömmu og afa enda voru þeir ykkur mjög kærir. Ég vona það, afi, að við getum áfram staðið okkur eins vel og þið og stað- ið saman og hjálpað hvert öðru á erfiðum tímum og reynt að kenna börnunum okkar allt það sem þið kennduð okkur, góði Guð geymi þig, góða nótt, elsku afi. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Helena, Smári og börn, Baldvin, Immakulate og börn, Berglind, Sævar og börn, Anna Björg, Ragnar og börn. Elsku langafi okkar kvaddi okk- ur 18. ágúst síðastliðinn. Hann var góður afi sem öllum þótti gott að vera með. Við minnumst hans um alla tíð og hann mun lifa í okkar hugum til eilífðar. Nú sofnaði hann afi okkar, hann ömmu okkar fór nú til. Hans bíða hennar hvítu lokkar, það veitir honum hjartayl. Við munum hans afa alltaf sakna, í örmum ömmu hann mun vakna. Í minningunni mun hann alltaf vera, þau fara tvö saman margt að gera. (Líney Rakel Jónsdóttir) Kristófer, Viktor Ingi, Eyjólfur Júlíus, Hjálmar Þór, Helga Þóra og Margrét Lína. Baldvin Scheving Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.