Fréttablaðið - 07.07.2016, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 5 9 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 7 . j ú l Í 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
Fréttir Nýjar einkareknar
heilsugæslustöðvar virðast ekki
skila mörgum nýjum læknum á
höfuðborgarsvæðið frá öðrum
löndum. 6
skoðun Eygló Harðardóttir
skrifar um framkvæmdaáætlun í
málefnum fatlaðs fólks. 18
sport Þjóðverjar og Frakkar
spila í undanúrslitum á EM. 24
Menning Janina Ryszarda
Szymklewicz skrifar um Ísland
í pólsk ferðatímarit og erlendar
bækur. 34
lÍFið Júníus Meyvant er ekki
auðveldur í hljóðverinu. 44
plús 2 sérblöð l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Útsala
opið til 21
12 MANNA ÁSAMT FYLGIHLUTUM
YFIR 15 TEGUNDIR
VERÐ FRÁ KR.24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
45 ÁRA
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
Mannréttindi Útlendingastofnun
og IOM, Alþjóðafólksflutninga-
stofnunin, undirrituðu í gær samn-
ing um að hælisleitendur, sem eiga
ekki rétt á vernd hér á landi, geti
snúið aftur heim í öruggar aðstæður
án aðkomu lögreglu og án aðkomu
stjórnvalda og fái jafnvel til þess
fjárstuðning.
IOM rekur slík verkefni á Norður-
löndunum, til að mynda í Noregi
og víðar. Fjárstuðningur til hælis-
leitanda í Noregi getur numið allt
að hálfri milljón íslenskra króna.
Útlendingastofnun benti á þörf-
ina á fyrirkomulagi sem þessu og
Ríkisendurskoðun tók undir mikil-
vægi þess í skýrslu sinni á síðasta ári
að gerður yrði samningur sem tryggi
þeim hælisleitendum sem er hafnað
um vernd stuðning.
Innanríkisráðuneytið segir
aðstoð við sjálfviljuga heimför
hugsaða sem mannúðlega aðferð
við að snúa hælisleitendum aftur
til heimalandsins; þeim sem geta
ekki, vilja ekki, eða fá ekki að dvelja
í því landi sem þeir eru staddir í og
óska þess sjálfir að snúa aftur til
heimalandsins. Ráðuneytið leggur
áherslu á að fjárstuðningurinn geti
skipt máli fyrir fólk sem hafi kost á
því að snúa aftur til heimalandsins
í hættulaust ástand.
Í nýjum útlendingalögum er
heimild til þess að gefa fólki stuðn-
ing sem þennan. Í Noregi var mark-
miðið að aðstoða 2.300 hælisleit-
endur með þessum hætti – reyndin
varð önnur en aðeins 1.100 sóttust
eftir stuðningi.
Þessi aðferð IOM krefst sam-
starfs við hælisleitendur, stofnanir
og stjórnvöld bæði í því landi sem
tekur upp aðferðina og uppruna-
land hælisleitanda. IOM hefur
aðstoðað rúmlega 40 þúsund
umsækjendur á þennan hátt síðustu
fimm ár.
Þeir sem gætu átt rétt á þessari
aðstoð IOM eru til dæmis: Hælis-
leitendur sem er hafnað eða hafa
dregið umsókn sína til baka, þol-
endur mansals og viðkvæmir hópar,
fylgdarlaus börn eða fólk með
heilsufarsbrest.
Nú er fyrirkomulagið hins vegar
þannig að allar ákvarðanir Útlend-
ingastofnunar og úrskurðir kæru-
nefndar útlendingamála, sem fela
í sér að útlendingur skuli yfirgefa
landið, eru sendar til alþjóðadeildar
ríkislögreglustjóra til framkvæmdar.
Þær upplýsingar fengust úr inn-
anríkisráðuneytinu að verkferlar og
fyrirkomulag á þessum málum væru
reglulega til skoðunar með umbæt-
ur að leiðarljósi, og er samningurinn
við IOM dæmi um þá vinnu. – kbg
Hælisleitendur
fái fjárstuðning
til að fara burt
Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og IOM
um að hælisleitendum sem er neitað um vernd hér á
landi sé veittur fjárstuðningur til að fara sjálfviljugir
heim. Byggir á ákvæði í útlendingalögum.
lÍFið „Þeir komu til landsins fyrir um
tuttugu árum og spiluðu þá á Listahá-
tíð. Tónleikarnir fóru fram í Laugar-
dalshöllinni og þeir stútfylltu hana
þá. Sem ekki var á allra færi á þeim
tíma. Þeir áttu náttúrulega risastóra
smelli á sínum tíma. Voru spilaðir út
í eitt í partíum hérna heima,“ útskýrir
Þorsteinn Stephensen tónleika-
haldari sem stendur fyrir tónleikum
Gipsy Kings í Hörpu í lok ágúst. Þrátt
fyrir að sveitin hafi margsundrast á
ferlinum verður öllu til tjaldað, segir
Þorsteinn. – ga / sjá síðu 46
Gipsy Kings á
leið til Íslands
Hljómsveitin hefur áður komið hingað.
500
þúsund íslenskar krónur
er hámarksupphæðin sem
hælisleitendur í Noregi geta
fengið frá hinu opinbera.
Innanríkisráðuneytið
segir aðstoð við sjálfviljuga
heimför hugsaða sem mann-
úðlega aðferð við að snúa
hælisleitendum aftur til
heimalandsins; þeim sem
geta ekki, vilja ekki, eða fá
ekki að dvelja í því landi sem
þeir eru staddir í.
Það hlýtur að vera krefjandi verk að þrífa glugga á turninum við Höfðatorg, en byggingin er nítján hæðir. Og þá
er gott að vera ekki mjög lofthræddur. Þessir vösku menn ákváðu að nýta góða veðrið í gær til verksins.
Fréttablaðið/anton brink
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
F
-9
6
6
0
1
9
E
F
-9
5
2
4
1
9
E
F
-9
3
E
8
1
9
E
F
-9
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K