Fréttablaðið - 07.07.2016, Side 52

Fréttablaðið - 07.07.2016, Side 52
Fólk er svo meðvirkt, þetta er allt saman bara pjúra meðvirkni og allir að vera næs,“ segir Unnar Gísli Sigurmundsson sem oftast er kallaður Júníus Meyvant, spurður út í viðbrögð við hans fyrstu breið- skífu. Platan ber heitið Floating Harmonies og kemur út á efnislegu formi á morgun, föstudag. Er útgáfan í höndum Record Records. Inniheldur platan meðal annarra laga Color Decay, sem notið hefur gríðarlegra vinsælda. Lagið var valið lag ársins í flokki popptónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra, auk þess sem Unnar hreppti sjálfur hnossið sem besti nýliðinn í popp- og rokksenunni. Color Decay var sömuleiðis spilað um allan heim og var til að mynda valið lag ársins á útvarpsstöðinni KEXP í Seattle fyrir árið 2014. Fyrsta þröngskífa Júníusar Meyvants kom út í fyrra og hlaut mikið lof, til dæmis í dönsku tónlistarpressunni, þar sem Gaffa, virtasta tímaritið í sínum flokki, gaf plötunni fimm af sex mögulegum stjörnum. Meint meðvirkni teygir þannig anga sína ansi víða. „Ég vildi gera plötu þar sem sixtís og seventís tvinnast saman við nútímann. Annars veit ég ekki alveg hvernig best er að orða þetta, maður semur bara eitthvað og gefur það svo út,“ segir Unnar umlukinn stóískri ró sem yfirleitt er ekki langt undan í hans tilfelli. „Ég er ekki lengi að semja, það er allur gangur á þessu. Ég get samið lag á fjórum mínútum eða á fjórum mánuðum, stundum semur maður part og svo kemur annar partur löngu seinna. Maður verður að reyna að þvinga þetta sem minnst. Oftar en ekki kemur tónlistin til mín þegar ég er að pússa upp gamalt borð eða hvað það er hverju sinni. Það er hins vegar ólíklegt að nokkuð gerist ef ég sest markvisst niður til að semja lag,“ útskýrir hann aðspurður um tilurð plötunnar. Hann segir gömul brýni á borð við Bob Dylan vera áhrifavalda í tónlist Júníusar Mey- vants. „Annars eru svo margar fyrir- myndir þannig séð. Ég elska gamlan blús, frá 1950 til 1960. Soul- og folk- músík heilla mig mikið.“ Líkt og máltækið segir, þá gerast góðir hlutir ansi oft skrambi hægt. Unnar tók sér góðan tíma í plötuna og það skilar sér vafalaust í útkom- unni. Hann er að minnsta kosti sáttur við sitt en það tekur á að ná hinum fullkomna sándi. „ Ég er ekki auðveldur í hljóðverinu. Það sem einkennir gerð plötunnar er senni- lega það að við leituðum mjög djúpt í sándin. Þarna var mikil hreinskilni og mikið um rökræður, og má sannarlega segja að þetta hafi ekkert verið eitt endalaust knús. En ég er á því að mótlætið slípi menn bara. Að vera hreinskilinn er gott þó svo að menn tryllist kannski stundum. Ég vissi bara að ég yrði að vera hreinn og beinn með þetta, þannig myndi ég geta lagst sáttur á koddann.“ Skyldi Unnar eiga sér eitthvert uppáhaldslag á plötunni eða á hin fornkveðna klisja um að ekki sé hægt að gera upp á milli barnanna sinna við í þessu samhengi? „Ég tel að börnin manns séu nú mikil- vægari en tónlistin sem maður býr til. En ætli fyrsta lagið sem kom út sé ekki í mestu uppáhaldi, Color Decay. Mesta strögglið er í kringum það og svo er sándið á plötunni svo- lítið komið út frá því. Annars eru ansi mörg lög á plötunni sem mér þykir vænt um,“ svarar hann, auðheyrilega sáttur. Unnar segist eiga von á að platan dreifi sér um allan heim og horfir þannig til sérstaklega til netsins. Evrópubúar séu hrifnir af efninu hans og Danir þá sérstaklega dug- legir við að nálgast tónlistina. „Svo er mikið að gerast í Frakklandi, Hol- landi og Englandi. En það hefur samt komið á daginn að Bandaríkjamenn eru langduglegastir við að streyma tónlistinni minni,“ útskýrir hann ánægður en bætir við að til þess að láta verða af tónleikaferðalagi vestur um haf verði hann að hafa ansi gott bakland. „Ég hef aðeins einu sinni farið þangað og spilað. Við erum að setja saman teymi af fólki til að vinna með í Bandaríkjunum og Kanada. Þá er bara að hefjast almennilega handa en ég geri ekki ráð fyrir að neitt gerist þar fyrr en eftir áramót.“ Unnar kemur ekki til með að sitja auðum höndum á næstunni því útgáfutónleikarnir verða þann 27. ágúst næstkomandi þar sem öllu verður til tjaldað í Háskólabíói. „Við ætlum að reyna að taka lögin eins og þau eru á plötunni. Þarna verða strengja- og blásturssveit, en ég hef einmitt aldrei spilað með svona stóru bandi. Þetta verður líklega mjög skemmtilegt,“ bendir hann á. Hann segir að í beinu framhaldi taki svo við mánaðarlangt tónleikaferða- lag um alla Evrópu. „Annars er ég nú ekki stressaður með þetta, ég held þetta eigi allt saman eftir að ganga nokkuð vel bara,“ segir hann lauf- léttur að lokum. gudrun@frettabladid.is Mótlætið slípar menn Júníus Meyvant sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu á morgun. „Oftar en ekki kemur tón- listin til mín þegar ég er að pússa upp gamalt borð,“ segir Unnar Gísli Sigurmundsson. Unnar segist ekki sérlega auðveldur í hljóðverinu en það skili sér vissulega í betri nætursvefni þegar öllu er á botninn hvolft. Fréttablaðið/anton brink Trendið Bakpokar gera lífið auðveldara Fyrir marga er nauðsynlegt að ganga með tösku dags daglega til þess að geyma allt dótið sitt. Munurinn á því að vera með hand- tösku og bakpoka er þó alvarlega mikill. Maður finnur lítið sem ekkert fyrir honum og það er mikið úrval af flottum bakpokum í dag enda eru þeir í tísku um þessar mundir. Bakpokarnir eru ekki bara fyrir skólakrakkana til að geyma skólabækurnar. Bakpokarnir eru fyrir þá sem hugsa um tísku og vilja lifa auðveldara lífi. Það væri ekki leiðinlegt að eiga eitt stykki louis Vuitton-bakpoka. Gucci-bakpoki er eitthvað sem flestar tískudrósir hafa sést með upp á síð- kastið. bakpokar af öllum gerðum geta gengið. Þessi er til dæmis afslappaður og flottur. Það er ekki á allra færi að kaupa sér Chanel-bakpoka en eitthvað í þessa áttina ætti að ganga upp. GARÐ VE ISL A FT T SAMARIS ÚLFUR ÚLFUR GLOWIE TÓNLEIKAR Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM FÖSTUDAGINN 8. JÚLI KL. 20.30 AÐGANGUR ÓKEYPIS! 7 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R44 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð Lífið 0 7 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E F -B D E 0 1 9 E F -B C A 4 1 9 E F -B B 6 8 1 9 E F -B A 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.