Fréttablaðið - 07.07.2016, Síða 4
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
50 áraAFMÆLISTILBOÐ
Nr. 12961
Á R A
gasgrill 4ra brennara
AFMÆLISTILBOÐ
99.900
VERÐ ÁÐUR 124.900
Grillbúðin
• 4 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Gashella í hliðarborði
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Einnig til svart
• Afl 14,8 KW
www.grillbudin.is
Iðnaður „Stjórnvöld hafa brugðist
hlutverki sínu og með því grafið
undan innlendri framleiðslu,“ segir
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Varma, sem framleiðir
ullar- og skinnavörur.
Fyrirtækið rekur verksmiðjur í
Reykjavík og á Akureyri en þarf nú
að hætta rekstri á Akureyri.
Páll segir stjórnvöld ekki hafa
sinnt reglugerðum í iðnaðinum, inn-
fluttar ullar- og skinnavörur séu án
upprunamerkinga og kaupandinn
sjái engan mun á íslenskri vöru og
innfluttri erlendri vöru.
Páli finnst að merkingar nokk-
urra samkeppnisaðila hans gangi út
á að láta neytendur trúa því að um
íslenska framleiðslu og hráefni sé að
ræða.
Fyrirspurn Fréttablaðsins til
Ólafar Nordal innanríkisráðherra
og Ragnheiðar Elínar Árnadóttur,
atvinnu- og iðnaðarráðherra, leiddi í
ljós að starfshópur sem var skipaður
í innanríkisráðuneytinu í október
síðastliðnum og átti að vinna í
tengslum við upprunamerkingar
á neytendavörum, skilaði aðeins
niðurstöðu sem tók til notkunar
íslenska þjóðfánans við markaðs-
setningu á vöru og þjónustu.
„Þegar vinna starfshópsins var
komin nokkuð á veg kom í ljós að
fyrir þinginu lá frumvarp til laga
um breytingu á lögum um þjóðfána
Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið,
nr. 34/1944, með síðari breytingum.
Frumvarpið fjallaði um notkun
íslenska þjóðfánans við markaðs-
setningu á vöru og þjónustu. Samtök
iðnaðarins gerðu breytingartillögur
við frumvarpið sem byggðu að miklu
leyti á þeim hugmyndum sem fram
höfðu komið í vinnu starfshópsins.
Úr varð að lögum nr. 34/1944 var
breytt með lögum nr. 28/2016,“ segir
í svari frá innanríkisráðuneytinu.
Páll segir starfshópinn ekki hafa
gert það sem hann var skipaður til.
„Þessi lög breyta í engu því að fyrir-
tæki þurfa eftir sem áður ekki að
innihalds- eða upprunamerkja inn-
fluttar ullar- og skinnavörur, nema
þau noti íslenska þjóðfánann í merk-
ingum sínum. Það er ekkert gagn að
þessari lagasetningu,“ ítrekar Páll.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn-
aðarráðherra tekur undir með Páli.
„Upprunamerkingar varða neyt-
endavernd og neytendur eiga rétt á
að vera upplýstir um vöruna, hvar
hún er framleidd og um uppruna
hráefnisins. Með réttum merkingum
bætum við einnig samkeppnisstöðu
íslensks iðnaðar,“ segir Ragnheiður.
„Það er sjálfsagt að neytandinn geti
séð á umbúðunum hvaða vörur eru
framleiddar hér úr íslensku hráefni
og hvaða vörur eru framleiddar
annars staðar úr sama hráefni, t.d. í
Asíu,“ segir hún.
Neytendamál heyra undir innan-
ríkisráðuneyti og Ragnheiður vísar
í starfandi vinnuhóp. „Mitt ráðu-
neyti átti fulltrúa í þeim vinnuhópi.
Hópurinn gerði hlé á störfum sínum
þegar fánalagafrumvarpið svokall-
aða var til meðferðar í þinginu og
voru menn að freista þess þar að ná
heildstætt utan um þessi mál.
Það er hins vegar ljóst miðað við
framkomnar athugasemdir að svo
varð ekki,“ segir Ragnheiður Elín
um lyktir mála og segir tilefni til
að skoða málin þegar þing kemur
saman í haust.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Segir stjórnvöld hafa grafið
undan innlendri framleiðslu
Framkvæmdastjóri ullarvinnslufyrirtækisins Varma rekur lokun verksmiðju á Akureyri til sinnuleysis
stjórnvalda. Engar kvaðir séu hér á landi um uppruna- eða innihaldsmerkingar á innfluttum ullar- og
skinnavörum. Innlendir framleiðendur geti ekki keppt við erlenda framleiðslu sem líki eftir þeirri íslensku.
Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri, hér í verksmiðju Varma í Reykjavík, segir ekkert gagn að breytingum sem gerðar hafi verið
á lögum um notkun þjóðfánans. FRéttablaðið/Vilhelm
Dómsmál Karlmaður var í gær
dæmdur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir að hafa dreift nekt-
armynd af fjórán ára stúlku og fyrir
að hafa viðhaft kynferðislegt tal við
hana á samskiptamiðlinum Skype.
Þá reyndi hann að falast eftir því að
hitta hana í kynferðislegum tilgangi.
Brotin áttu sér stað árið 2014 en
maðurinn játaði brot sín skýlaust
fyrir dómi. Fram kemur í dómi hér-
aðsdóms að hann iðrist mjög gjörða
sinna og féllst hann á að greiða
einkaréttarkröfu í málinu að fullu
sem hljóðaði upp á eina milljón
króna. Hann var ekki með verjanda
í málinu. – ngy
Dreifði mynd af
nakinni stúlku
reykjavík Stýrihópur um framtíð-
arfyrirkomulag í málefnum mið-
borgarinnar hefur sent frá sér til-
lögur sem lesa má um á heimasíðu
borgarinnar.
Tillögurnar eru gerðar til að
bregðast við breytingum á mið-
borginni í þeim mikla uppgangi og
uppbyggingu sem þar hefur verið
síðustu misseri og ekki virðist lát á.
Þar sem aukning ferðaþjónustu
hefur orðið mun meiri en gert var
ráð fyrir í Aðalskipulagi Reykjavíkur
2010-2030 er nú unnið að breyting-
artillögum á miðborgarkafla aðal-
skipulagsins.
Einnig er stefnt að gerð hverfis-
skipulags í miðborginni og þá er
talið mikilvægt að fjölga tekju-
stofnum borgarinnar vegna aukins
ferðamannastraums, til dæmis með
gistináttagjaldi.
Borgarar eru hvattir til að kynna
sér drög skýrslu stýrihópsins og
senda inn ábendingar og athuga-
semdir fyrir 10. ágúst. – ebg
Borgin bregst við fleiri ferðamönnum
Verið er að bregðast við fjölda ferðamanna í miðborginni og uppbyggingu tengdri
ferðamennsku með nýju framtíðarfyrirkomulagi. FRéttablaðið/PjetuR
Dómsmál Tveir menn voru í gær
sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur
vegna bruna í iðnaðarhúsi á Grettis-
götu í mars síðastliðnum.
Mennirnir eru bræður en annar
þeirra játaði brot sitt. Sá var metinn
ósakhæfur og var því sýknaður af
kröfu ákæruvaldsins um refsingu.
Hinn maðurinn var sakfelldur fyrir
að láta hjá líðast að gera það sem í
hans valdi stóð til þess að vara við eða
afstýra eldsvoða og því eignatjóni sem
af hlaust.
Mikill eldur kom upp í húsinu á
Grettisgötu 87 og gjöreyðilagðist það
í eldinum. Í húsinu var líkamsræktar-
stöð, vinnustofa, tvö bifreiðaverk-
stæði og íbúð listmálara. – ngy
Dæmdir vegna
bruna í mars
mennirnir eru bræður en annar þeirra
játaði brot sitt. FRéttablaðið/Valli
suður-afríka Oscar Pistorius var í
gær dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að
hafa myrt kærustu sína, Reevu Steen-
kamp, árið 2013.
Lögmenn hans sögðu hann ekki
ætla að áfrýja dómnum heldur
afplána refsingu sína.
Dómarinn, Thokozile Masipa,
sagði kringumstæður valda því að
hann fengi ekki einu sinni þann lág-
marksdóm, sem lög kveða á um, sem
er fimmtán ára fangelsi.
Pistorius hafi sem sagt ekki vís-
vitandi ætlað sér að valda kærustu
sinni bana, heldur talið að þar væri
innbrotsþjófur á ferð. Hann hafi líka
sýnt af sér greinilega iðrun.
Á móti vegi að hann hafi greinilega
ætlað sér að drepa manneskjuna, sem
hann taldi vera innbrotsþjóf.
Í september árið 2014 dæmdi sami
dómari Pistorius í fimm ára fangelsi
fyrir að hafa orðið Steenkamp að
bana.
Hæstiréttur ógilti þennan dóm
í desember síðastliðnum og sagði
Pistorius sekan um morð, þar sem
hann hefði átt að hafa gert sér fulla
grein fyrir því að hann væri að verða
manni að bana.
Masipa fékk málið aftur til með-
ferðar og sagðist sannfærð um að
Pistorius væri ekki ofbeldismaður.
Sér bæri skylda til að leiðrétta þann
þráláta misskilning að Pistorius hefði
vísvitandi ætlað að drepa kærustu
sína: „Almannarómur getur verið
hávær og þrálátur, en hann getur
ekki átt neinn hlut að ákvörðun þessa
dómstóls.“ – gb
Pistorius sleppur með sex ár í staðinn fyrir fimmtán
Almannarómur
getur verið hávær og
þrálátur, en hann getur ekki
átt neinn hlut að ákvörðun
þessa dómstóls.
Thokozile Masipa, dómari
Oscar Pistorius í réttarsal í gær.
NORdicPhOtOs/aFP
7 . j ú l í 2 0 1 6 f I m m T u D a G u r4 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
F
-A
F
1
0
1
9
E
F
-A
D
D
4
1
9
E
F
-A
C
9
8
1
9
E
F
-A
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K